Beint í efni

Miðbær, svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreyting.

Málsnúmer 2406836

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

4. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðbæjar, svæði I og II að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Lögð fram greinargerð umhverfissviðs þar sem athugasemdir hafa verið flokkaðar eftir efnisatriðum. Umhverfissvið hefur verið með málið til skoðunar.
Skipulagsnefnd óskar eftir því að eftirfarandi atriði verði skoðuð nánar:
-Tenging Hrísmóa við Bæjarbraut m.t.t. hljóðvistar og öryggis.
-Útfærsla á aðkomu að fjölbýlishúsum í Hrísmóum.
-Að sett verði ákvæði í deiliskipulagi sem tekur á áhrifum framkvæmda á aðliggjandi byggingar m.t.t. sprengivinnu og framkvæmdatíma.
-Að útfærsla á bílastæðum og göngutenginum verði skoðuð við Kirkjulund 14.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði með ofangreindum óskum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðbæjar, svæði I og II að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Lögð fram greinargerð umhverfissviðs þar sem athugasemdir hafa verið flokkaðar eftir efnisatriðum.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til úrvinnslu á umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

1. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðbæjar Garðabæjar, svæðis I og II, að lokinni auglýsingu. Athugasemdir og umsagnir sem borist hafa lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

15. (967). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 22. október 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða og aukningu á atvinnurými á lóðinni Garðatorg 1 (A). Einnig er gert ráð fyrir fjölgun fermetra á lóð 5a (H) þar sem gert verður ráð fyrir kjallara og 2.hæð að hluta. Hámarksfjöldi nýrra íbúða skal vera 40-45 íbúðir og gera skal ráð fyrir einu bílastæði í lokuðum bílakjallara og 0,7 bílastæði í opnum bílakjallara. Fyrir þá fermetra sem bætast við vegna atvinnurýma skal gera ráð fyrir 1 bílastæði á 35 fermetra í opnum bílakjallara. Ef sýnt verður fram á með rökstuðningi að samnýting bílastæða sé möguleg getur fjöldi fermetra atvinnurýma orðið allt að 50 á hvert bílstæði. Gera skal ráð fyrir byggingarreit fyrir stækkaðan bílakjallara á Garðatorgi. Hámarks hæðafjöldi fjölbýlishúss skal vera 5 hæðir til að koma í veg fyrir áhrif skuggavarps á nærliggjandi byggð. Bæta skal við 18 nýjum bílastæðum meðfram Vífilsstaðavegi í deiliskipulagi og skipulagsnefnd beinir því til Umhverfissviðs að útfærsla bílastæða framan við Garðatorg 5 og 7 sé löguð að gildandi deiliskipulagi og þar með fjölgað. Skipulagsnefnd beinir því þar að auki til umhverfissviðs að lögð verði fram áætlun um aðgerðir til þess að dreifa betur nýtingu bílastæða í Miðbæ Garðabæjar og létta á álagi um miðjan dag eins og samgöngumat hefur sýnt fram á að sé orðið töluvert. Byggingarreitur efstu hæðar syðsta hluta Garðatorgs 1 verði inndreginn að vestanverðu sem kemur í veg fyrir áhrif skuggavarps á Garðatorg 2. Fjöldi hæða þess hluta húss sem verður við hlið Hrísmóa 2 getur orðið 4 hæðir en þó ekki hærra en svo að komið sé í veg fyrir innsýn. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr. og 1.mgr.43.gr.skipulagslaga. Halda skal almennan kynningarfund á meðan á auglýsingu stendur.

Bæjarráð Garðabæjar

05

40. (2188). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 22. október 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða og aukningu á atvinnurými á lóðinni Garðatorg 1 (A). Einnig er gert ráð fyrir fjölgun fermetra á lóð 5a (H) þar sem gert verður ráð fyrir kjallara og 2.hæð að hluta.
Hámarksfjöldi nýrra íbúða skal vera 40-45 íbúðir og gera skal ráð fyrir einu bílastæði í lokuðum bílakjallara og 0,7 bílastæði í opnum bílakjallara. Fyrir þá fermetra sem bætast við vegna atvinnurýma skal gera ráð fyrir 1 bílastæði á 35 fermetra í opnum bílakjallara. Ef sýnt verður fram á með rökstuðningi að samnýting bílastæða sé möguleg getur fjöldi fermetra atvinnurýma orðið allt að 50 á hvert bílstæði. Gera skal ráð fyrir byggingarreit fyrir stækkaðan bílakjallara á Garðatorgi. Hámarks hæðafjöldi fjölbýlishúss skal vera 5 hæðir til að koma í veg fyrir áhrif skuggavarps á nærliggjandi byggð.
Bæta skal við 18 nýjum bílastæðum meðfram Vífilsstaðavegi í deiliskipulagi og skipulagsnefnd beinir því til Umhverfissviðs að útfærsla bílastæða framan við Garðatorg 5 og 7 sé löguð að gildandi deiliskipulagi og þar með fjölgað.
Skipulagsnefnd beinir því þar að auki til umhverfissviðs að lögð verði fram áætlun um aðgerðir til þess að dreifa betur nýtingu bílastæða í Miðbæ Garðabæjar og létta á álagi um miðjan dag eins og samgöngumat hefur sýnt fram á að sé orðið töluvert.
Byggingarreitur efstu hæðar syðsta hluta Garðatorgs 1 verði inndreginn að vestanverðu sem kemur í veg fyrir áhrif skuggavarps á Garðatorg 2. Fjöldi hæða þess hluta húss sem verður við hlið Hrísmóa 2 getur orðið 4 hæðir en þó ekki hærra en svo að komið sé í veg fyrir innsýn. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr. og 1.mgr.43.gr.skipulagslaga. Halda skal almennan kynningarfund á meðan á auglýsingu stendur.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

15. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðbæjar sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða og aukningu á atvinnurými á lóðinni Garðatorg 1 (A). Einnig er gert ráð fyrir fjölgun fermetra á lóð 5a (H) þar sem gert verður ráð fyrir kjallara og 2.hæð að hluta.
Hámarksfjöldi nýrra íbúða skal vera 40-45 íbúðir og gera skal ráð fyrir einu bílastæði í lokuðum bílakjallara og 0,7 bílastæði í opnum bílakjallara. Fyrir þá fermetra sem bætast við vegna atvinnurýma skal gera ráð fyrir 1 bílastæði á 35 fermetrar í opnum bílakjallara. Ef sýnt verður fram á með rökstuðningi að samnýting bílastæða sé möguleg getur fjöldi fermetra atvinnurýma orðið allt að 50 á hvert bílstæði. Gera skal ráð fyrir byggingarreit fyrir stækkaðan bílakjallara á Garðatorgi. Hámarks hæðafjöldi fjölbýlishúss skal vera 5 hæðir til að koma í veg fyrir áhrif skuggavarps á nærliggjandi byggð.
Bæta skal við 18 nýjum bílastæðum meðfram Vífilsstaðavegi í deiliskipulagi og skipulagsnefnd beinir því til Umhverfissviðs að útfærsla bílastæða framan við Garðatorg 5 og 7 sé löguð að gildandi deiliskipulagi og þar með fjölgað.
Skipulagsnefnd beinir því þar að auki til umhverfissviðs að lögð verði fram áætlun um aðgerðir til þess að dreifa betur nýtingu bílastæða í Miðbæ Garðabæjar og létta á álagi um miðjan dag eins og samgöngumat hefur sýnt fram á að sé orðið töluvert.
Byggingarreitur efstu hæðar syðsta hluta Garðatorgs 1 verði inndreginn að vestanverðu sem kemur í veg fyrir áhrif skuggavarps á Garðatorg 2. Fjöldi hæða þess hluta húss sem verður við hlið Hrísmóa 2 getur orðið 4 hæðir en þó ekki hærra en svo að komið sé í veg fyrir innsýn. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr. og 1.mgr.43.gr.skipulagslaga. Halda skal almennan kynningarfund á meðan á auglýsingu stendur.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

14. fundur

Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir skipulagsfræðingur, Daði Baldur Ottósson og Valur Elli Valsson samgönguverkfræðingar frá ráðgjafastofunni Eflu gerðu grein fyrir samgöngumati Miðbæjar sem unnin hefur verið að beiðni skipulagsnefndar. Einnig voru ræddar mögulegar útfærslur á yfirbyggðri göngugötu.
Vísað til úrvinnslu hjá ráðgjöfum og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

13. fundur

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu á mótun tillagna að breytingu deiliskipulags Miðbæjar Garðabæjar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

12. fundur

Lagðar fram tillögur um útfærslur á breytingu deiliskiplags Miðbæjar.
Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

11. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Miðbæjar, svæði I og II að lokinni forkynningu, ásamt þeim umsögnum og ábendingum sem bárust á kynningartíma. Skipulagsstjóri gerði nánar grein fyrir fundum með rekstraraðilum og fulltrúum húsfélaga á svæðinu.
Ræddir þeir valkostir sem staðið er frammi fyrir um áframhald verkefnisins.
Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

10. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Miðbæjar, svæði I og II að lokinni forkynningu, ásamt þeim umsögnum og ábendingum sem bárust á kynningartíma. Skipulagsnefnd vísar framlögðum gögnum til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

9. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðbæjar Garðabæjar sem vísað hefur verið til forkynningar. Útfærsla á vöruaðkomu að Garðatorgi 1 frá Hrísmóum, sem skipulagsnefnd óskaði eftir að yrði mótuð nánar, er nú hluti af tillögunni. Klara Sól Ágústsdóttir arkitekt hjá THG arkitektum gerði grein fyrir útfærslunni.
Skipulagsnefnd samþykkir útfærsluna og skal hún kynnt á almennum kynningarfundi sem verður haldinn á morgun, þriðjudaginn 27. maí.

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

7. (959). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. maí 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir 6 hæða fjölbýlishúsi á lóðinni Garðatorg 1 og breyttri útfærslu á byggingarreit á lóð H, við austurenda yfirbyggðrar göngugötu, ásamt byggingarreit ofan á fremri hluta núverandi húss við Garðatorg 1, sem snýr út að torgi. Tillagan er unnin að hálfu fasteignafélagsins Heima sem er lóðarhafi Garðatorgs 1. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Boða skal til almenns kynningarfundar á meðan á forkynningu stendur og er stefnt að því að hann verði haldinn maímánuði. Skipulagsnefnd fól umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum að útfæra vöruaðkomu norðan við Garðatorg 1 með ítarlegri hætti en tillagan gerir ráð fyrir og með áherslu á öryggi vegfarenda.

Bæjarráð Garðabæjar

14

18. (2166). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. maí 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir 6 hæða fjölbýlishúsi á lóðinni Garðatorg 1 og breyttri útfærslu á byggingarreit á lóð H, við austurenda yfirbyggðrar göngugötu, ásamt byggingarreit ofan á fremri hluta núverandi húss við Garðatorg 1, sem snýr út að torgi. Tillagan er unnin að hálfu fasteignafélagsins Heima sem er lóðarhafi Garðatorgs 1.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Boða skal til almenns kynningarfundar á meðan á forkynningu stendur og er stefnt að því að hann verði haldinn maímánuði.
Skipulagsnefnd fól umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum að útfæra vöruaðkomu norðan við Garðatorg 1 með ítarlegri hætti en tillagan gerir ráð fyrir og með áherslu á öryggi vegfarenda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

15

8. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðbæjar sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir 6 hæða fjölbýlishúsi á lóðinni Garðatorg 1 og breyttri útfærslu á byggingarreit á lóð H, við austurenda yfirbyggðrar göngugötu, ásamt byggingarreit ofan á fremri hluta núverandi húss við Garðatorg 1, sem snýr út að torgi. Tillagan er unnin að hálfu fasteignafélagsins Heima sem er lóðarhafi Garðatorgs 1. Freyr Frostason arkitekt hjá THG gerði grein fyrir tillögunni.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Boða skal til almenns kynningarfundar á meðan á forkynningu stendur og er stefnt að því að hann verði haldinn miðvikudaginn 21.maí nk.
Skipulagsnefnd felur umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum að útfæra vöruaðkomu norðan við Garðatorg 1 með ítarlegri hætti en tillagan gerir ráð fyrir og með áherslu á öryggi vegfarenda.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

16

7. fundur

Freyr Frostason og Klara Sól Ágústsdóttir arkitektar hjá THG, ásamt Bjarka Páli Eysteinssyni gerðu grein fyrir tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar Garðabæjar fyrir hönd fasteignafélagsins Heima.
Tillögu vísað til úrvinnslu hjá THG, Heimum og Umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

17

1. fundur

Lögð fram verkefnislýsing sem hefur verið í kynningu ásamt þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa. Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og deiliskipulagsráðgjafa.

Bæjarstjórn Garðabæjar

18

17. (950). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar frá fundi 14. nóvember 2024, varðandi tillögu að verkefnislýsingu að breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar sem gerir ráð fyrir áframhaldandi uppbyggingu á lóðinni Garðatorg 1 og nágrenni. Fram kemur í lýsingu að stefnt sé að því að tillögur verði mótaðar og kynntar samhliða tillögum að deiliskipulagi Móa. Skipulagsnefnd samþykkti framlagða verkefnislýsingu í samræmi við 1. mgr. 40.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

19

43. (2144). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar frá fundi 14. nóvember 2024, varðandi tillögu að verkefnislýsingu að breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar sem gerir ráð fyrir áframhaldandi uppbyggingu á lóðinni Garðatorg 1 og nágrenni.
Fram kemur í lýsingu að stefnt sé að því að tillögur verði mótaðar og kynntar samhliða tillögum að deiliskipulagi Móa.
Skipulagsnefnd samþykkti framlagða verkefnislýsingu í samræmi við 1. mgr. 40.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

20

15. fundur

Lögð fram tillaga að verkefnislýsingu að breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar sem gerir ráð fyrir áframhaldandi uppbyggingu á lóðinni Garðatorg 1 og nágrenni.
Eins og fram kemur í lýsingu er stefnt að því að tillögur verði mótaðar og kynntar samhliða tillögum að deiliskipulagi Móa.
Skipulagsnefnd samþykkir framlagða verkefnislýsingu í samræmi við 1. mgr. 40.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

21

13. fundur

Skipulagsstjóri kynnti drög að verkefnislýsingu vegna tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

22

9. fundur

Elín Rita Sveinbjörnsdóttir hjá Eflu og Bjarki Eysteinsson hjá Heimum hf gerðu grein fyrir niðurstöðu valkostagreiningar vegna aðkomu að austanverðu að húsum við Garðatorg og tengsl við umferð um Hrísmóa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.