Beint í efni

12. fundur

28.08.2025
Skipulagsnefnd Garðabæjar

12. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

28.08.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Kjartan Vilhjálmsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Rakel Steinberg Sölvadóttir - varamaður
  • Einar Þór Einarsson - varaáheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2504060

01

Smalaholt, óveruleg breyting Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á rammahluta aðalskipulags sem nær til Vífilsstaðalands. Lagt fram minnisblað Eflu ehf um áhrif tillögunnar á umferð innan aðliggjandi svæða m.a. Hnoðraholti.

Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði.

Málsnúmer 2202488

02

Deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarskógur.

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts ásamt tillögu að viðbrögðum við þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa á auglýsingartíma. Lagt fram minnisblað Eflu ehf um áhrif tillögunnar á umferð innan aðliggjandi svæða m.a. Hnoðraholti.

Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði.

Málsnúmer 2410080

03

Hnoðraholt - Háholt - Aðalskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að breytingu rammahluta aðalskipulags Vífilsstaðalands sem nær til Hnoðraholts. Tillaga er í samræmi við tillögu að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts.

Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði.

Málsnúmer 2409103

04

Hnoðraholt-háholt, deiliskipulag

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts.

Skipulagsnefnd beinir því til umhverfissviðs og deiliskipulagsráðgjafa að stilla upp breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður sem gerir m.a. ráð fyrir því að lóðir fyrir leikskóla og búsetukjarna verði felldar út enda gert ráð fyrir þeim í tillögu að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts.

Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði.

Málsnúmer 2502449

05

Vetrarmýri, tillaga að breytingu á deiliskipulagi, leikvangur ofl.

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem hefur verið lagfærð í kjölfar athugasemda Skipulagsstofnunar. Skipulagsnefnd felur umhverfissviði að senda stofnuninni lagfærð gögn og undirbúa birtingu auglýsingar í B-deild stjórnartíðinda um gildistöku breytingarinnar.

Málsnúmer 2406836

06

Miðbær, svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreyting.

Lagðar fram tillögur um útfærslur á breytingu deiliskiplags Miðbæjar.

Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði.

Málsnúmer 2508149

07

Nýibær á Garðaholti - Skrímslasmiðja

Lögð fram fyrirspurn um rekstur verkstæðis, kaffihúss og sölubúðar í útihúsum austan Garðavegar á landi sem Nýibær hefur haft til umráða. Skipulagsnefnd telur að starfsemi skrímslasmiðju brjóti ekki í bága við deiliskipulag Garðahverfis sem er í næsta nágrenni. Gildandi aðalskipulag gerir ráð fyrir íbúðarbyggð á svæðinu. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu og því þarf að gera ráð fyrir því að starfsemin geti verið víkjandi þegar til þess kemur. Huga þarf vel að útfærslu á aðkomu frá Garðavegi og skal það gert í samráði við Umhverfissvið.

Málsnúmer 2501011

08

Garðprýði 1 - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahrauns sem nær til lóðarinnar Garðprýði 1.

Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði. Skipulagsstjóra falið að funda með þeim aðilum sem gert hafa athugasemdir.

Málsnúmer 2508103

09

Stekkholt 31-41- Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á raðhúslengjunni Stekkholt 31-41 ásamt umsögn gatnahönnuðar.

Vísað til frekari skoðunar hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði.

Málsnúmer 2505078

10

Þorraholt 2-4, br dsk Hnoðrah Norður.

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður að lokinni grenndarkynningu og skoðun hjá Umhverfissviði, ásamt þeim athugasemdum sem bárust á kynningartíma og þeim viðbótargögnum sem bætt var við á meðan á kynningu stóð.

Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarkshæð byggingarreits verslunar og þjónustulóðarinnar Þorraholt 2-4 hækki um 38 cm úr 78 mys í 78,38 mys. Hámarkshæðin nær til byggingarreits húss 2 á lóðinni.

Þann 8. maí 2025 vísaði skipulagsnefnd tillögunni til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti ákvörðun skipulagsnefndar á fundi sínum þann 15. maí.

Grenndarkynning stóð frá 15. maí til 12. júní. Eigandi Útholts 1 og 3 óskaði eftir viðbótargögnum sem sýndu betur áhrif breytingarinnar á útsýni frá báðum hæðum verðandi húss. Við því var orðið og bárust viðkomandi þau gögn þann 12. júní. Skipulagsstjóri framlengdi frest til að skila inn athugasemdum til 18. júní.

Alls bárust athugasemdir frá þremur aðilum sem grenndarkynningin náði til eða frá eigendum Útholts 1 og 3, Útholts 2 og 4 og Útholts 8 og 10. Athugasemdir snerust aðallega um skerðingu útsýnis sem hlytist af breytingartillögunni.

Skipulagsnefnd telur að áhrif breytingartillögunnar, þ.e. hækkun hámarkshæðar um 38 cm, á útsýni frá lóðum við Útholt sé óveruleg og ekki sé hægt að sýna fram á að tillagan muni hafa áhrif á virði eignanna enda verði útsýni frá verðandi byggingum til vesturs og norðurs eftir sem áður mjög gott. Eigandi Þorraholts 2-4 hefur gert grein fyrir því að þessi hækkun sé mikilvæg fyrir útfærslu hússins sem hefur verið í hönnunar- og uppbyggingarferli samhliða ferli deiliskipulagsbreytingarinnar. Verkefnið er umfangsmikið og flókið og hefur kallað á breytingar á deiliskipulagi. Skipulagsnefnd hefur skilning á því að lóðarhafar við Útholt geri athugasemdir við þær tilfærslur sem hafa orðið á deiliskipulaginu undanfarna mánuði. Um leið hefur skipulagsnefnd skilning á því að hönnun og uppbygging svo viðamikils verkefnis kalli á breytingar.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts Norður í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 2507143

11

Kópavogsbær - ask.br. og dsk.br Vatnsendahlíð, Vatnsvík og Kjóavellir - Umsögn

Lögð fram skipulagslýsing og samráðsáætlun Kópavogsbæjar vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga í Vatnsendahlíð og Vatnsvík við Elliðavatn. Unnið verður að aðalskipulagsbreytingum, deiliskipulagsbreytingum og nýjum deiliskipulagsáætlunum.

Vísað til frekari skoðunar hjá umhverfissviði. Skipulagsnefnd óskar eftir lengri frest til að skila inn umsögn um framlagða lýsingu og samráðsáætlun. Einnig er óskað eftir samtali við bæjarskipulags Kópavogs um málið.

Málsnúmer 2506417

12

Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 - Landnotkunarheimildir við Hringbraut - ósk um umsögn

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Málsnúmer 2409370

13

Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040- Keldur og nágrenni - Ósk um umsögn

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.