Beint í efni

Hnoðraholt-háholt, deiliskipulag

Málsnúmer 2409103

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

3. (973). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. janúar 2026 varðandi tillögu að deiliskipulagi Hnoðraholts suður, háholts að lokinni auglýsingu og skoðun umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa. Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á tillögunni: Einnar hæðar raðhús verða 18 í stað 11. Tveggja hæða raðhús verða 22 í stað 30. Parhús er fellt út úr tillögu. Íbúðareiningar verða 75 í stað 77. Gert er ráð fyrir staðsetningu dreifistöðvar rafmagns eins og minnst er á í umsögn Veitna. Ýmsar minniháttar lagfæringar gerðar á greinargerð að tillögu umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa. Með breytingum á gerðum raðhúsa er komið til móts við athugasemdir sem borist hafa. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með ofangreindum breytingum í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

02

4. (2199). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 29. janúar 2026 varðandi tillögu að deiliskipulagi Hnoðraholts suður, háholts að lokinni auglýsingu og skoðun umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á tillögunni:
Einnar hæðar raðhús verða 18 í stað 11.
Tveggja hæða raðhús verða 23 í stað 30.
Parhús er fellt út úr tillögu.
Íbúðareiningar verða 75 í stað 77.
Gert er ráð fyrir staðsetningu dreifistöðvar rafmagns eins og minnst er á í umsögn Veitna.
Ýmsar minniháttar lagfæringar gerðar á greinargerð að tillögu umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa.
Með breytingum á gerðum raðhúsa er komið til móts við athugasemdir sem borist hafa.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna með ofangreindum breytingum í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

2. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Hnoðraholts suður, háholts að lokinni auglýsingu og skoðun umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Eftirfarandi breytingar hafa verið gerðar á tillögunni:
Einnar hæðar raðhús verða 18 í stað 11.
Tveggja hæða raðhús verða 23 í stað 30.
Parhús er fellt út úr tillögu.
Íbúðareiningar verða 75 í stað 77.
Gert er ráð fyrir staðsetningu dreifistöðvar rafmagns eins og minnst er á í umsögn Veitna.
Ýmsar minniháttar lagfæringar gerðar á greinargerð að tillögu umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa.
Með breytingum á gerðum raðhúsa er komið til móts við athugasemdir sem borist hafa.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindum breytingum í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

18. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts ásamt athugasemdum og umsögnum sem bárust á auglýsingartíma.
Vísað til úrvinnslu hjá deiliskipulagsráðgjafa og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

17. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

13. (965). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

13. (965). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

08

13. (965). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 18. september 2025 varðandi tillögu að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts. Tillagan gerir alls ráð fyrir 77 íbúðareiningum, þar af 26 einbýlishúsum, 41 raðhúsaeiningu, 2 parhúsaeiningum og 8 fjölbýliseiningum, ýmist á einni eða tveimur hæðum. Auk þess er gert ráð fyrir lóð fyrir leikskóla og búsetukjarna. Megináhersla deiliskipulagsins er að skapa lágreista og uppbrotna íbúðabyggð sem fellur að landinu á háholti og niður hlíðarnar í suðurhluta Hnoðraholts. Gert er ráð fyrir blöndu einbýlishúsa og raðhúsa, einnar og tveggja hæða, sem raðast í sveigðar byggðalínur í takt við hæðarlínur og landslag. Græn svæði og stígar tengja byggðina innbyrðis og við nærliggjandi hverfi. Áhersla er lögð á að byggðin styðji við fjölbreytni í búsetu og aðgengi að náttúru og útivist. Mikilvægt er að tryggja góða tengingu við Vetrarbraut, stíga yfir háholtið og framtíðaruppbyggingu aðliggjandi svæða í Vífilsstaðalandi. Deiliskipulagið tekur mið af sjálfbærum lausnum í innviðum, þar með talið blágæna meðferð ofanvatns, vistvænt efnisval og aðgengi fyrir gangandi og hjólandi. Skipulagsnefnd samþykkti að vísa tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Boða skal til kynningarfundar á meðan á auglýsingu tillögunnar stendur.

Bæjarráð Garðabæjar

09

34. (2182). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 18. september 2025 varðandi tillögu að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts.
Tillagan gerir alls ráð fyrir 77 íbúðareiningum, þar af 26 einbýlishúsum, 41 raðhúsaeiningu, 2 parhúsaeiningum og 8 fjölbýliseiningum, ýmist á einni eða tveimur hæðum.
Auk þess er gert ráð fyrir lóð fyrir leikskóla og búsetukjarna.
Megináhersla deiliskipulagsins er að skapa lágreista og uppbrotna íbúðabyggð sem fellur að landinu á háholti og niður hlíðarnar í suðurhluta Hnoðraholts. Gert er ráð fyrir blöndu einbýlishúsa og raðhúsa, einnar og tveggja hæða, sem raðast í sveigðar byggðalínur í takt við hæðarlínur og landslag.
Græn svæði og stígar tengja byggðina innbyrðis og við nærliggjandi hverfi. Áhersla er lögð á að byggðin styðji við fjölbreytni í búsetu og aðgengi að náttúru og útivist. Mikilvægt er að tryggja góða tengingu við Vetrarbraut, stíga yfir háholtið og framtíðaruppbyggingu aðliggjandi svæða í Vífilsstaðalandi.
Deiliskipulagið tekur mið af sjálfbærum lausnum í innviðum, þar með talið blágæna meðferð ofanvatns, vistvænt efnisval og aðgengi fyrir gangandi og hjólandi.
Skipulagsnefnd samþykkti að vísa tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Boða skal til kynningarfundar á meðan á auglýsingu tillögunnar stendur.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

13. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts.
Tillagan gerir alls ráð fyrir 77 íbúðareiningum, þar af 26 einbýlishúsum, 41 raðhúsaeiningu, 2 parhúsaeiningum og 8 fjölbýliseiningum, ýmist á einni eða tveimur hæðum.
Auk þess er gert ráð fyrir lóð fyrir leikskóla og búsetukjarna.

Megináhersla deiliskipulagsins er að skapa lágreista og uppbrotna íbúðabyggð sem fellur að landinu á háholti og niður hlíðarnar í suðurhluta Hnoðraholts. Gert er ráð fyrir blöndu
einbýlishúsa og raðhúsa, einnar og tveggja hæða, sem raðast í sveigðar byggðalínur í takt við hæðarlínur og landslag.
Græn svæði og stígar tengja byggðina innbyrðis og við nærliggjandi hverfi. Áhersla er lögð á að byggðin styðji við fjölbreytni í búsetu og aðgengi að náttúru og útivist. Mikilvægt er að tryggja góða tengingu við Vetrarbraut, stíga yfir háholtið og framtíðaruppbyggingu aðliggjandi svæða í Vífilsstaðalandi.
Deiliskipulagið tekur mið af sjálfbærum lausnum í innviðum, þar með talið blágæna meðferð ofanvatns, vistvænt efnisval og aðgengi fyrir gangandi og hjólandi.
Skipulagsnefnd samþykkir að vísa tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Boða skal til kynningarfundar á meðan á auglýsingu tillögunnar stendur.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

12. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts.
Skipulagsnefnd beinir því til umhverfissviðs og deiliskipulagsráðgjafa að stilla upp breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður sem gerir m.a. ráð fyrir því að lóðir fyrir leikskóla og búsetukjarna verði felldar út enda gert ráð fyrir þeim í tillögu að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts.
Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

8. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts að lokinni forkynningu í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þær umsagnir sem borist hafa lagðar fram.
Tillögu vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
Skipulagsnefnd felur Umhverfissviði og skipulagsráðgjafa að vinna tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts Norður sem lagar sig að tillögu að deiliskipulagi háholtsins sem og tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til sama svæðis.

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

6. (958). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. mars 2025 varðandi tillögu að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts. Tillagan gerir ráð fyrir 15 lóðum fyrir einbýlishús á 1 hæð, 11 lóðum fyrir einbýlishús á 2 hæðum, 18 lóðum fyrir raðhús á 1 hæð og 21 lóð fyrir raðhús á 2 hæðum. Einnig er gert ráð fyrir lóðum fyrir leikskóla og búsetukjarna fyrir fatlað fólk með stuðningsþarfir. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Tillagan skal forkynnt samhliða með tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til sama svæðis.

Bæjarráð Garðabæjar

14

13. (2161). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. mars 2025 varðandi tillögu að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts.
Tillagan gerir ráð fyrir 15 lóðum fyrir einbýlishús á 1 hæð, 11 lóðum fyrir einbýlishús á 2 hæðum, 18 lóðum fyrir raðhús á 1 hæð og 21 lóð fyrir raðhús á 2 hæðum.
Einnig er gert ráð fyrir lóðum fyrir leikskóla og búsetukjarna fyrir fatlað fólk með stuðningsþarfir.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Tillagan skal forkynnt samhliða með tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til sama svæðis.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

15

6. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts. Sigurður Einarsson arkitekt og skipulagsráðgjafi hjá Batteríinu gerði grein fyrir tillögunni.
Tillagan gerir ráð fyrir 15 lóðum fyrir einbýlishús á 1 hæð, 11 lóðum fyrir einbýlishús á 2 hæðum, 18 lóðum fyrir raðhús á 1 hæð og 21 lóð fyrir raðhús á 2 hæðum.
Einnig er gert ráð fyrir lóðum fyrir leikskóla og búsetukjarna fyrir fatlað fólk með stuðningsþarfir.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Tillagan skal forkynnt samhliða með tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til sama svæðis.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

16

4. fundur

Sveinn Bjarki Þórarinsson arkitekt hjá Batteríinu kynnti drög að tillögu deiliskipulags háholts Hnoðraholts, sem gera ráð fyrir íbúðarbyggð í sérbýli og tilfærslu á lóðum leikskóla og búsetukjarna sem deillskipulag Hnoðraholts norður gerir ráð fyrir.
Skipulagsnefnd vísar drögunum til frekari mótunar hjá ráðgjöfum og umhverfissviði og felur skipulagsstjóra að undirbúa tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem tillagan kallar á.

Bæjarstjórn Garðabæjar

17

15. (948). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar vegna tillögu að verkefnislýsingu fyrir deiliskipulag á svæði efst á Hnoðraholti. Verkefnislýsingin er sameiginleg fyrir breytingu á aðalskipulagi sem nær til sama svæðis. Skipulagsnefnd samþykkti verkefnislýsinguna í samræmi við 11. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skal hún auglýst á vef Garðabæjar og send umsagnaraðilum.

Bæjarráð Garðabæjar

18

38. (2139). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar vegna tillögu verkefnislýsingu fyrir deiliskipulag á svæði efst á Hnoðraholti. Verkefnislýsingin er sameiginleg fyrir breytingu á aðalskipulagi sem nær til sama svæðis.
Skipulagsnefnd samþykkti verkefnislýsinguna í samræmi við 11. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skal hún auglýst á vef Garðabæjar og send umsagnaraðilum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

19

13. fundur

Lögð fram tillaga að verkefnislýsingu fyrir deiliskipulag á svæði efst á Hnoðraholti. Verkefnislýsingin er sameiginleg fyrir breytingu á aðalskipulagi sem nær til sama svæðis.
Skipulagsnefnd samþykkir verkefnislýsinguna í samræmi við 11. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skal hún auglýst á vef Garðabæjar og send umsagnaraðilum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

20

11. fundur

Skipulagsstjóri leggur til að umhverfissviði verði falið að undirbúa mótun tillögu að deiliskipulagsáfanga sem nái til háholts Hnoðraholts frá byggð við Vorbraut og Skerpluholt að fyrirhugaðri Haustbraut.
Skipulagsnefnd fellst á tillögu skipulagsstjóra og skipulagsráðgjafa Hnoðraholts norður verði falið að leggja fram tillögu að skipulagslýsingu.