Beint í efni

6. (958). fundur

03.04.2025
Bæjarstjórn Garðabæjar

6. (958). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

03.04.2025

Kl. 17:00 - 20:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Stella Stefánsdóttir - varabæjarfulltrúi
  • Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
  • Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
  • Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir - varabæjarfulltrúi
  • Guðlaugur Kristmundsson - bæjarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 20. mars 2025 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2503031F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 25/3 ´25.

Fundargerðin sem er 10. tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2503041F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 1/4 ´25.

Björg Fenger ræddi 9.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar, 10.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu svæðisskipulags höfuðborgarsvæðisins, höfuðborgarsvæðið 2040 og tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030, 11.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts, 13.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar Smalaholts sem gerir m.a. ráð fyrir golfvelli og útivistarskógi og 14.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til rammahluta Vífilsstaðalands.

Almar Guðmundsson ræddi 6.tl. meðferðarheimili að Friðarvöllum.

Ingvar Arnarson ræddi 6.tl. meðferðarheimili að Friðarvöllum og 13.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts sem gerir m.a. ráð fyrir golfvelli og útivistarskógi.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 6.tl. meðferðarheimili að Friðarvöllum 14.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts sem gerir m.a. ráð fyrir golfvelli og útivistarfskógi, 2.tl. félag um rekstur almenningssamgangna og 7.tl. tilkynning um stjórnsýslukæru ÚUA nr. 49/2025 - framkvæmdir við lóðamörk Skerpluholts og Vorbrautar.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 11.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts.

Almar Guðmundsson tók til máls að nýju og ræddi 13.tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts sem gerir m.a. ráð fyrir golfvelli og útivistarskógi.

Harpa Rós Gísladóttir ræddi 9.tl. afgreiðslu skiplagsnefndar varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar.

Fundargerðin sem er 17.tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2503025F

03

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 19/3 ´25.

Harpa Rós Gísladóttir ræddi 2.tl. nýting hvatapeninga 2024, 4.tl. ályktun FÍÆT um áfengissölu á íþróttaviðburðum og 5.tl. ráðning forstöðumanna íþróttamannvirkja í Ásgarði og á Álftanesi.

Guðfinnur Sigurvinsson ræddi fundargerðina.

Ingvar Arnarson ræddi 2.tl. nýtingu hvatapeninga 2024.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi fundargerðina.

Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir ræddi 2.tl. nýtingu hvatapeninga 2024.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 5.tl. ráðningu forstöðumanna íþróttamannvirkja í Ásgarði og á Álftanesi og 2.tl. nýtingu hvatapeninga.

Björg Fenger ræddi 2.tl. nýtingu hvatapeninga 2024, 3.tl. ósk um aðstöðu/styrk fyrir Pílufélag Garðabæjar og fundargerðina.

Stella Stefánsdóttir ræddi 2.tl. nýtingu hvatapeninga 2024 og fundargerðina.

Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. nýtingu hvatapeninga 2024.

Ingvar Arnarson tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. nýtingu hvatapeninga 2024.

Harpa Rós Gísladóttir tók til máls að nýju og ræddi 2.tl. nýtingu hvatapeninga 2024.

Almar Guðmundsson ræddi 5.tl. ráðningu forstöðumanna íþróttamannvirkja í Ásgarði og á Álftanesi. Hann óskaði fyrir hönd bæjarstjórnar bikarmeisturum Stjörnunnar í hópfimleikum til hamingju með bikarmeistaratitla. Jafnframt óskaði hann bikarmeisturum í yngri flokkum Stjörnunnar í körfuknattleik til hamingju með bikarmeistaratitla sem þeir unnu til.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2503036F

04

Fundargerð skipulagsnefndar frá 27/3 ´25.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2503022F

05

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 19/3 ´25.

Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. þróunarsjóð grunnskóla 2025.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2503037F

06

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 26/3 ´25.

Almar Guðmundsson ræddi 2.tl. grunnskóla, árangur og líðan, 4.tl. útboð skólamáltíða í grunn- og leikskólum og 7.tl. aukna skólaþjónustu í grunnskólum.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi fundargerðina, 1.tl. aðgerðaráætlun í jafnréttismálum 2024-2026, 2.tl. grunnskólar, árangur og líðan og 5.tl. íslensku æskulýðsrannsóknina.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi fundargerðina, 2.tl. grunnskóla, árangur og líðan.

Guðfinnur Sigurvinsson ræddi fundargerðina.

Björg Fenger ræddi fundargerðina.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2503027F

07

Fundargerð velferðarráðs frá 21/3 ´25.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. frumkvæðisathugun á reglum sveitarfélaga um stoð- og stuðningsþjónustu, 2.tl. frumkvæðisathugun á akstursþjónustu fyrir fatlað fólk og eldra fólk á landsvísu, 3.tl. vinnu og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ, 4.tl. tillögu um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk, 5.tl. búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti, 6.tl. móttöku flóttafólks - stöðu mála.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 6.tl. móttöku flóttafólks - stöðu mála.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2501149

08

Fundargerðir stjórnar SSH frá 17/3 og 28/3 ´25.

Fundargerðirnar eru lagðar fram.

Málsnúmer 2501405

09

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 5/3 ´25.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. ársreikning Sorpu bs. 2024 og endurskoðunarskýrslu fyrir starfsárið 2024.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 1.tl. ársreikning Sorpu bs. 2024 og endurskoðunarskýrslu fyrir starfsárið 2024 og 4.tl. starfskjaranefnd.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls að nýju og ræddi 1.tl. ársreikning Sorpu bs. 2024 og endurskoðunarskýrslu fyrir starfsárið 2024 og 4.tl. starfskjaranefnd.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2501492

10

Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 14/3 ´25.

Björg Fenger ræddi 1.tl. veitur - vatnsvernd höfuðborgarsvæðisins og 2.tl. KÓP Gunnarshólma breytt svæðisskipulag - vaxtarmörk.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2412068

11

Félag um rekstur almenningssamgangna

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.

Björg Fenger tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir fyrir hönd Garðabæjar stofnsamning, samþykktir og hluthafasamkomulag Almenningssamgangna ohf., félags um rekstur almenningssamgangna.

Bæjarstjórn veitir bæjarstjóra umboð til að undirrita og staðfesta gögn varðandi Almenningssamgöngur ohf. fyrir hönd Garðabæjar.

Málsnúmer 2408525

12

Ársreikningur Garðabæjar 2024

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2024. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum. Almar þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra hlut að góðum rekstri bæjarins. Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Björg Fenger tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2024 endurspeglar sterka fjárhagslega stöðu bæjarsjóðs. Rekstrarniðurstaða ársins er jákvæð um 1.183 milljónir króna og sjóðstreymið er sterkt. Traust og sterk fjárhagsstaða bæjarsjóðs er grundvöllur þess að Garðabær sé vel undir það búinn að mæta aukinni þjónustu vegna fjölgunar íbúa samhliða uppbyggingu nýrra hverfa.

Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum A-hluta á árinu 2024 nam 6.264 milljónum króna, þar af vó uppbygging skóla og íþróttamannvirkja í bænum langþyngst, um 2.800 milljónum króna eða um 45% af öllum fjárfestingum A-hluta bæjarsjóðs. Myndarleg uppbygging samgönguinnviða í nýjum hverfum setur einnig svip sinn á ársreikninginn og var allur rekstrarafgangur ársins auk hóflegrar lántöku nýttur til fjárfestinga. Það er til marks um góðan árangur í rekstri ársins að skuldir A sjóðs lækkuðu um 2 milljarða króna á árinu.

Allar kennitölur í rekstri bera vott um trausta fjárhagsstöðu Garðabæjar. Skuldaviðmið nemur 97% og skuldahlutfall 120% en var 126% árið 2023. Veltufé frá rekstri er 2.466 m.kr. sem er um 8,1% í hlutfalli við rekstrartekjur, en var 2,2% árið 2023.

Ábyrgur rekstur bæjarsjóðs með vellíðan og lífsgæði bæjarbúa að leiðarljósi endurspeglar áherslur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Við teljum mikilvægt að tryggja öryggi, festu og skilvirkni í rekstri bæjarins, álögum í Garðabæ sé haldið sem lægstum meðal stærstu sveitarfélaga landsins og þjónustukannanir staðfesti áfram mikla ánægju íbúa með þjónustu bæjarins."

Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Við í Viðreisn erum ánægð að sjá afgang af rekstri sveitarfélagsins. Hluti af þeim árangri er að íbúafjöldi hefur aukist umfram spár sem hefur aukið útsvarstekjur sveitarfélagsins umfram tekjuáætlanir og aukin hlutlæg framlög úr jöfnunarsjóði vegna málaflokks fólks með fötlun. Hlutur stjórnenda sem hafa góða þekkingu á rekstrinum okkar fóru í mikilvægar og verðmætar aðhaldsaðgerðir.

Nýja íbúa bjóðum við velkomna í Garðabæ, þau sem flytja hingað aftur bjóðum við velkomin heim.

Viðreisn sæi fyrir sér að við í pólítíkinni í samvinnu við starfsmenn bæjarins venjum okkur við umræðu og vinnubrögð við ársreikninga og fjárhagsáætlanir að nálgast þá með áhættumiðaðri umfjöllun í huga. Við þurfum öll í bæjarstjórn að skilja og þekkja hvaða áhættu rekstur félagsins felur í sér, en áhættan getur verið fólgin í vinnslu og vistun gagna, fjármögnun, fyrirséðar ógnir, veikleikar eða hvað annað sem eru í eðli sínu ekki fjárhagslegt en geta haft mikil eða takmörkuð fjárhagslegar áhrif til skemmri eða lengri tíma."

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls.

Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir tók til máls.

Almar Guðmundsson tók til máls að nýju.


Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2024 til síðari umræðu í bæjarstjórn sem er fyrirhuguð 15. maí 2025.