Beint í efni

Ársreikningur Garðabæjar 2024 - seinni umræða

Málsnúmer 2408525

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. (959). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri kvaddi sér hljóðs og fór nánar yfir helstu niðurstöður ársreiknings Garðabæjar fyrir árið 2024.

Bæjarstjóri lagði til við bæjarstjórn að samþykkja ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2024.

Rakel Steinberg Sölvadóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun: "Við í Viðreisn erum ánægð að sjá afgang af rekstri sveitarfélagsins. Hluti af þeim árangri er að íbúafjöldi hefur aukist umfram spár sem hefur aukið útsvarstekjur sveitarfélagsins umfram tekjuáætlanir og aukin hlutlæg framlög úr jöfnunarsjóði vegna málaflokks fólks með fötlun. Hlutur stjórnenda sem hafa góða þekkingu á rekstrinum okkar fóru í mikilvægar og verðmætar aðhaldsaðgerðir.
Nýja íbúa bjóðum við velkomna í Garðabæ, þau sem flytja hingað aftur bjóðum við velkomin heim.
Viðreisn sæi fyrir sér að við í pólítíkinni í samvinnu við starfsmenn bæjarins venjum okkur við umræðu og vinnubrögð við ársreikninga og fjárhagsáætlanir með að nálgast þá með áhættumiðaðri umfjöllun í huga. Við þurfum öll í bæjarstjórn að skilja og þekkja hvaða áhættu rekstur félagsins felur í sér, en áhættan getur verið fólgin í vinnslu og vistun gagna, fjármögnun, fyrirséðar ógnir, veikleikar eða hvað annað sem eru í eðli sínu ekki fjárhagslegt en geta haft mikil eða takmörkuð fjárhagslegar áhrif til skemmri eða lengri tíma."

Gunnar Valur Gíslason tók til máls.

Björg Fenger tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2024 endurspeglar sterka fjárhagslega stöðu bæjarsjóðs. Rekstrarniðurstaða ársins er jákvæð um 1.183 milljónir króna og sjóðstreymið er sterkt. Traust og sterk fjárhagsstaða bæjarsjóðs er grundvöllur þess að Garðabær sé vel undir það búinn að mæta aukinni þjónustu vegna fjölgunar íbúa samhliða uppbyggingu nýrra hverfa.
Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum A-hluta á árinu 2024 nam 6.264 milljónum króna, þar af vó uppbygging skóla og íþróttamannvirkja í bænum langþyngst, um 2.800 milljónum króna eða um 45% af öllum fjárfestingum A-hluta bæjarsjóðs. Myndarleg uppbygging samgönguinnviða í nýjum hverfum setur einnig svip sinn á ársreikninginn og var allur rekstrarafgangur ársins auk hóflegrar lántöku nýttur til fjárfestinga. Það er til marks um góðan árangur í rekstri ársins að skuldir A sjóðs lækkuðu um 2 milljarða króna á árinu.
Allar kennitölur í rekstri bera vott um trausta fjárhagsstöðu Garðabæjar. Skuldaviðmið nemur 97% og skuldahlutfall 120% en var 126% árið 2023. Veltufé frá rekstri er 2.466 m.kr. sem er um 8,1% í hlutfalli við rekstrartekjur, en var 2,2% árið 2023.
Ábyrgur rekstur bæjarsjóðs með vellíðan og lífsgæði bæjarbúa að leiðarljósi endurspeglar áherslur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Við teljum mikilvægt að tryggja öryggi, festu og skilvirkni í rekstri bæjarins, álögum í Garðabæ sé haldið sem lægstum meðal stærstu sveitarfélaga landsins og þjónustukannanir staðfesti áfram mikla ánægju íbúa með þjónustu bæjarins."

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða við síðari umræðu ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2024 samkvæmt 61. gr. sveitarstjórnalaga nr. 138/2011, sbr. 2. tl. 1. mgr. 18. gr. laganna.

Samþykktinni til staðfestingar er ársreikningurinn undirritaður af viðstöddum bæjarfulltrúum.

Bæjarráð Garðabæjar

02

18. (2166). fundur

Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri gerði grein fyrir skýrslu endurskoðenda varðandi ársreikning Garðabæjar fyrir árið 2024. Í skýrslunni er gerð grein fyrir framkvæmd endurskoðunar, helstu áherslum, niðurstöðum og öðrum mikilvægum atriðum.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

03

14. (2162). fundur

Umræða bæjarráðs, eftir fyrri umræðu um ársreikning Garðabæjar sem fram fór í bæjarstjórn Garðabæjar 3. apríl 2025.
Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri Garðabæjar og Helgi Kristjónsson deildarstjóri bókhaldsdeildar Garðabæjar mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir lykiltölur úr rekstri bæjarins. Fóru þeir nánar tiltekið yfir sundurliðun ársreiknings Garðabæjar og rekstrarreikning aðalbókar, þar sem farið var yfir rauntölur ársins 2024 samanborið við áætlun ársins 2024.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

6. (958). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri fylgdi úr hlaði ársreikningi Garðabæjar fyrir árið 2024. Gerði bæjarstjóri grein fyrir helstu niðurstöðum reikningsins og lykiltölum. Almar þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra hlut að góðum rekstri bæjarins. Bæjarstjóri lagði til að vísa ársreikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Björg Fenger tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Ársreikningur Garðabæjar fyrir árið 2024 endurspeglar sterka fjárhagslega stöðu bæjarsjóðs. Rekstrarniðurstaða ársins er jákvæð um 1.183 milljónir króna og sjóðstreymið er sterkt. Traust og sterk fjárhagsstaða bæjarsjóðs er grundvöllur þess að Garðabær sé vel undir það búinn að mæta aukinni þjónustu vegna fjölgunar íbúa samhliða uppbyggingu nýrra hverfa.
Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum A-hluta á árinu 2024 nam 6.264 milljónum króna, þar af vó uppbygging skóla og íþróttamannvirkja í bænum langþyngst, um 2.800 milljónum króna eða um 45% af öllum fjárfestingum A-hluta bæjarsjóðs. Myndarleg uppbygging samgönguinnviða í nýjum hverfum setur einnig svip sinn á ársreikninginn og var allur rekstrarafgangur ársins auk hóflegrar lántöku nýttur til fjárfestinga. Það er til marks um góðan árangur í rekstri ársins að skuldir A sjóðs lækkuðu um 2 milljarða króna á árinu.
Allar kennitölur í rekstri bera vott um trausta fjárhagsstöðu Garðabæjar. Skuldaviðmið nemur 97% og skuldahlutfall 120% en var 126% árið 2023. Veltufé frá rekstri er 2.466 m.kr. sem er um 8,1% í hlutfalli við rekstrartekjur, en var 2,2% árið 2023.
Ábyrgur rekstur bæjarsjóðs með vellíðan og lífsgæði bæjarbúa að leiðarljósi endurspeglar áherslur bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Við teljum mikilvægt að tryggja öryggi, festu og skilvirkni í rekstri bæjarins, álögum í Garðabæ sé haldið sem lægstum meðal stærstu sveitarfélaga landsins og þjónustukannanir staðfesti áfram mikla ánægju íbúa með þjónustu bæjarins."

Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Við í Viðreisn erum ánægð að sjá afgang af rekstri sveitarfélagsins. Hluti af þeim árangri er að íbúafjöldi hefur aukist umfram spár sem hefur aukið útsvarstekjur sveitarfélagsins umfram tekjuáætlanir og aukin hlutlæg framlög úr jöfnunarsjóði vegna málaflokks fólks með fötlun. Hlutur stjórnenda sem hafa góða þekkingu á rekstrinum okkar fóru í mikilvægar og verðmætar aðhaldsaðgerðir.

Nýja íbúa bjóðum við velkomna í Garðabæ, þau sem flytja hingað aftur bjóðum við velkomin heim.

Viðreisn sæi fyrir sér að við í pólítíkinni í samvinnu við starfsmenn bæjarins venjum okkur við umræðu og vinnubrögð við ársreikninga og fjárhagsáætlanir að nálgast þá með áhættumiðaðri umfjöllun í huga. Við þurfum öll í bæjarstjórn að skilja og þekkja hvaða áhættu rekstur félagsins felur í sér, en áhættan getur verið fólgin í vinnslu og vistun gagna, fjármögnun, fyrirséðar ógnir, veikleikar eða hvað annað sem eru í eðli sínu ekki fjárhagslegt en geta haft mikil eða takmörkuð fjárhagslegar áhrif til skemmri eða lengri tíma."

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason tók til máls.

Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir tók til máls.

Almar Guðmundsson tók til máls að nýju.


Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi Garðabæjar 2024 til síðari umræðu í bæjarstjórn sem er fyrirhuguð 15. maí 2025.

Bæjarráð Garðabæjar

05

13. (2161). fundur

Davíð Búi Halldórsson, löggiltur endurskoðandi, Arnór Orri Jóhannsson, löggiltur endurskoðandi, starfsmenn Enor, Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri og Helgi Kristjónsson, deildarstjóri bókhalds, mættu á fund bæjarráðs.

Davíð Búi Halldórsson, gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2024, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.

Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikning Garðabæjar 2024 samkvæmt 3.mgr. 61.gr. sveitar-stjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur er undirritaður af bæjastjóra og bæjarráði og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 3. apríl 2025 og síðari umræða á fundi bæjarstjórnar 15. maí 2025.

Bæjarráð Garðabæjar

06

9. (2157). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu um afskriftir viðskiptakrafna árið 2024 samkvæmt framlögðum lista samtals að fjárhæð kr. 192.471,

Bæjarráð Garðabæjar

07

32. (2133). fundur

Á fundi bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir árshlutauppgjöri Garðabæjar fyrir tímabilið janúar - júní 2024.
Niðurstaða A og B hluta fyrir tímabilið er í þ.kr.: Rekstrartekjur 14.298.680. Rekstrargjöld 11.930.404. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir 2.368.276.
Afskriftir (883.260). Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og gjalda 1.485.016. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld (1.391.890). Rekstrarniðurstaða er jákvæð 93.126.

Fjármálastjóri lagði fram minnisblað með skýringum og upplýsingum.