14. (2162). fundur
14. (2162). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
08.04.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Margrét Bjarnadóttir - varamaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
01
Ársreikningur Garðabæjar 2024
Umræða bæjarráðs, eftir fyrri umræðu um ársreikning Garðabæjar sem fram fór í bæjarstjórn Garðabæjar 3. apríl 2025.
Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri Garðabæjar og Helgi Kristjónsson deildarstjóri bókhaldsdeildar Garðabæjar mættu á fund bæjarráðs og fóru yfir lykiltölur úr rekstri bæjarins. Fóru þeir nánar tiltekið yfir sundurliðun ársreiknings Garðabæjar og rekstrarreikning aðalbókar, þar sem farið var yfir rauntölur ársins 2024 samanborið við áætlun ársins 2024.
02
Grásteinsmýri 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Grásteinsmýri ehf., kt. 510220-1960, leyfi fyrir byggingu 30 íbúða fjölbýlishúss að Grásteinsmýri 3.
03
Suðurhraun 12a - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Hávarðsstöðum ehf., kt. 540617-0150, leyfi til að stækka millipall að Suðurhrauni 12a.
04
Vorbraut 8-12 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Hnoðraholti ehf., kt. 660124-0470, leyfi fyrir 42 íbúða fjölbýlishúsi að Vorbraut 8-12.
05
Vorbraut 14 - Umsókn um byggingarleyfi
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Meistarasmíð ehf., kt. 661011-0410, leyfi fyrir byggingu fjölbýlishúss með 14 íbúðum að Vorbraut 14.
06
Samræmd innkaup á sorphirðu í stofnunum.
Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir drög að útboði í sorphirðu fyrir ýmsar stofnanir bæjarins. Verkefnið felur í sér reglubundna losun flokkunaríláta og flutning úrgangs á viðurkennda móttöku- og úrvinnslustaði. Verktaki skal bera ábyrgð á úrvinnslu sorpsins og tekur á sig allan kostnað eða njóta hugsanlegra tekna vegna móttöku og úrvinnslu þ.m.t. vegna mögulegra úrvinnslugjalda.
Bæjarráð felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins.
07
Þarfagreining vegna uppbyggingar leik- og grunnskóla í innbæ Garðabæjar.
Sviðsstjórar umhverfissviðs og fræðslu og frístundasviðs fóru yfir minnisblað um þarfagreiningu vegna uppbyggingar leik- og grunnskóla í innbæ Garðabæjar. Í minnisblaðinu er farið yfir þarfagreiningu húsnæðis leik- og grunnskóla, samhliða fyrirhugaðri uppbyggingu íbúða í innbæ Garðabæjar á næstu árum. Þörfum Urriðaholts verður mætt með uppbyggingu 3. áfanga Urriðaholtsskóla. Þá liggur fyrir minnisblað um stöðu og þörf á Álftanesi, sem unnið er eftir.
Fylgiskjöl
08
Skýrsla Eflu verkfræðistofu um tillögu að lækkun leyfilegs hámarkshraða í Garðabæ.
Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir skýrslu Eflu verkfræðistofu um endurskoðun leyfilegs hámarkshraða í Garðabæ. Verkefnið nær til gatnakerfis sem er í eigu Garðabæjar, þ.e. ekki á vegum þar sem veghaldari er Vegagerðin.
Í skýrslunni kemur fram að lækkun hámarkshraða geti hjálpað til að ná markmiðum sveitarfélagsins um fækkun slysa og þá sérstaklega á óvörðum og yngri vegfarendum. Þó sjá megi að aksturstími geti aukist eitthvað þá geta aðgerðirnar skilað töluverðum ávinningi í umferðaröryggi innan sveitarfélagsins og því mat ráðgjafa að ráðast eigi í aðgerðir og lækka hraða.
Bæjarráð felur umhverfissviði að gera tillögur að lækkun hámarkshraða í Garðabæ með vísan í niðurstöður skýrslunnar.
Fylgiskjöl
09
Bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag Íslands varðandi umsóknir í Styrktarsjóð EBÍ, dags. 2. apríl 2025.
Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.
10
Bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélag íslands varðandi breytingar á samþykktum, dags. 2. apríl 2025.
Lagt fram bréf Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands varðandi breytingar á samþykktum félagsins. Breytingatillögurnar rúmast innan E-liðs 56.gr. Samþykkta um stjórn Garðabæjar.
11
Bréf Alþingis varðandi mál til umsagnar um verndar- og orkunýtingaráætlun (bætt málsmeðferð og aukin skilvirkni), 268. mál, dags. 3. apríl 2025.
Lagt fram.