Beint í efni

Skýrsla Eflu verkfræðistofu um tillögu að lækkun leyfilegs hámarkshraða í Garðabæ.

Málsnúmer 2302361

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

14. (2162). fundur

Sviðsstjóri umhverfissviðs fór yfir skýrslu Eflu verkfræðistofu um endurskoðun leyfilegs hámarkshraða í Garðabæ. Verkefnið nær til gatnakerfis sem er í eigu Garðabæjar, þ.e. ekki á vegum þar sem veghaldari er Vegagerðin.
Í skýrslunni kemur fram að lækkun hámarkshraða geti hjálpað til að ná markmiðum sveitarfélagsins um fækkun slysa og þá sérstaklega á óvörðum og yngri vegfarendum. Þó sjá megi að aksturstími geti aukist eitthvað þá geta aðgerðirnar skilað töluverðum ávinningi í umferðaröryggi innan sveitarfélagsins og því mat ráðgjafa að ráðast eigi í aðgerðir og lækka hraða.
Bæjarráð felur umhverfissviði að gera tillögur að lækkun hámarkshraða í Garðabæ með vísan í niðurstöður skýrslunnar.

Fylgiskjöl

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

3. (918). fundur

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn samþykkir að fela umhverfissviði að útfæra aðgerðir til lækkunar aksturshraða á sem flestum vegum innan Garðabæjar þar sem nú er 50 km hámarkshraði, t.d. með lækkun hámarkshraða og öðrum hraðatakmarkandi aðgerðum.“

Greinargerð
Í árekstri bíls á 30 km hraða og gangandi vegfaranda eru 95% líkur á því að vegfarandi lifi áreksturinn af. Keyri bíll á 40 km hraða eru 87% líkur á því að gangandi vegfarandi lifi af, en lífslíkur eru 71% eftir árekstur gangandi vegfaranda við bíl á 50 km hraða á klukkustund (Hussain o.fl. 2019). Alvarleg slys eru einnig algengari því meiri sem hraðinn er og við þetta bætist að því hraðar sem bílar keyra, því lengur tekur það þá að stöðva í aðstæðum þar sem þess þarf skyndilega við. Óháð umferðaröryggisástæðum gæti lægri aksturshraði innanbæjar einnig auðveldað Garðabæ áframhaldandi innviðauppbyggingu fyrir virka ferðamáta.
Lækkun aksturshraða eykur öryggi allra í umferðinni, en þá sérstaklega gangandi og hjólandi vegfarenda. Vegir innan Garðabæjar sem nú hafa 50 km hámarkshraða, þótt þeir séu ekki beinlínis innan íbúðahverfa, skera bæjarfélagið í sundur og verða þess valdandi að gönguleiðir milli hverfa sem liggja þétt upp að hvert öðru verða ekki eins öruggar og best væri á kosið. Dæmi um vegi sem tillagan gæti náð til undir þessum formerkjum eru Bæjarbraut, Vífilsstaðavegur, Karlabraut, Hnoðraholtsbraut og Suðurnesvegur.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans.
Guðjón Pétur Lýðsson, varabæjarfulltrúi Garðabæjarlistans.

Guðlaugur Kristmundsson, tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu.