3. (918). fundur
3. (918). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
16.02.2023
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Guðjón Pétur Lýðsson - varabæjarfulltrúi
- Guðlaugur Kristmundsson - varabæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð fundar bæjarstjórnar frá 2. febrúar 2023 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2302005F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 7/2 ´23.
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 1. tl, jafnlaunavottun Garðabæjar 2022.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 8. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði og svör við fyrirspurnum. Þorbjörg lagði fram eftirfarandi bókun.
„Í ársskýrslum Flataskóla, sem ná á vefnum aftur til ársins 2018, virðist ekki hafa verið hefð fyrir því að tala um ástand húsnæðis. Í ársskýrslunni frá 2020-2021 kemur þó fram að í viðtölum við starfsfólk komi margar ábendingar varðandi viðhald og ásigkomulag húsnæðis. Vitað er að kallað var eftir úttekt á skólanum árið 2019 og að skýrsla um umfangsmikinn leka, rakaskemmdir og myglu kom fram þá. Um þá úttekt höfum við í Garðabæjarlistanum fjallað áður og fengið svör við fyrirspurn okkar um hana. Svörin og núverandi ástand benda að okkar mati til óljóss verklags og eftirfylgni sem var ábótavant, þótt farið hafi verið í valdar framkvæmdir við skólann.
Í ársskýrslum Hofsstaðaskóla aftur á móti er talað um aðkallandi viðhaldsþörf m.a. vegna leka á hverju ári frá árinu 2010. Þetta eru ársskýrslur 2009-10, 2010-11, 2011-12, árin 2013-14 og 2014-15 er sérstaklega talað um viðhaldsþörf ytra byrðis og það ítrekað í ársskýrslu 2015-16, aftur árið 2016-17, 2017-18, 2018-19 og 2019-20. Í ársskýrslu 2020-2021 má sjá að einhver mál voru leyst en í ársskýrslu 2021-2022 er aftur talað um leka og ósk um viðhaldsáætlun, en eins og við vitum nú fannst árið 2021 mygla í skólastofu.
Það hefði mátt vera ljóst í hvað stefndi, og ég stend við orð mín sem voru tekin sérstaklega fyrir hér um daginn og endurtek að báðir þessir skólar voru tifandi tímasprengja. Ábyrgðin á núverandi ástandi skólahúsnæðis í Garðabæ liggur hjá meirihluta Sjálfstæðisflokksins.“
Almar Guðmundsson, ræddi 8. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði og svör við fyrirspurnum.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi að nýju 8. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði og svör við fyrirspurnum.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 8. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði og svör við fyrirspurnum.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 8. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði og svör við fyrirspurnum. Sigríður Hulda lagði fram eftirfarandi bókun.
„Vegna umræðu um viðgerðir á skólahúsnæði Flataskóla og Hofsstaðaskóla undanfarin ár og úttekta um ástand húsnæðis vilja bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins árétta eftirfarandi:
Búið er að endurskipuleggja allt verklag hvað varðar upplýsingagjöf, framkvæmdir og eftirfylgni þegar kemur að viðbrögðum við myglu og rakaskemmdum. Allar upplýsingar um þessi mál eru opinberar á vefsíðu bæjarins. Heilsa og öryggi nemenda og starfsfólk er í forgrunni í öllum aðgerðum og ákvörðunum.
Á undanförnum árum hefur verið ráðist í ýmsar framkvæmdir á skólahúsnæði í bænum til að gera við og koma í veg fyrir rakaskemmdir og upplýsingar um þær eru aðgengilegar á vefsíðu bæjarins.
Fyrir liggja tilvik þar sem ekki var farið yfir upplýsingar um ástandsúttektir á húsnæði skóla með starfsfólki og foreldrasamfélaginu. Einnig liggur fyrir að það skorti á skipulagðari eftirfylgni með ástandsskýrslum varðandi framvindu framkvæmda og árangur þeirra. Þá skorti á samskipti við starfsfólk og foreldrasamfélagið um framkvæmdir og eftirfylgni. Allt þetta er mjög miður.“
Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2302019F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 14/2 ´23.
Margrét Bjarnadóttir, ræddi 1. tl. íbúa- og þjónustukönnun Gallup. Margrét lagði fram eftirfarandi bókun.
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna góðri niðurstöðu þjónustukönnunar Gallup meðal íbúa Garðabæjar fyrir árið 2022 en könnunin var gerð í desember og janúar sl. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar er almennt mikil ánægja íbúa með þá þjónustu sem Garðabær veitir og íbúar eru mjög ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja mikilvægt að í kjölfar árlegrar þjónustukönnunar Gallup séu niðurstöður rýndar af stjórnendum og nefndum bæjarins með það að markmiði að bæta enn frekar þjónustu við íbúa Garðabæjar á sem skilvirkastan og hagkvæmastan hátt. Með vísan til niðurstöðu þjónustukönnunar Gallup er brýnt að unnið verði markvisst með samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar frá 15. september sl. varðandi rýni á þjónustu bæjarins við fatlað fólk til að dýpka skilning á þörf þjónustuþega og kanna væntingar notenda og aðstandenda þeirra til þjónustu við fatlað fólk í bænum með það að markmiði að efla og bæta þjónustuna."
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup og 20. tl., ályktun kennara Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi tillögu að styttingu vinnutímans samkvæmt kjarasamningi
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl. íbúa- þjónustukönnun Gallup. Sigríður Hulda færði starfsfólki bæjarins þakkir fyrir þeirra góðu störf en þau eiga hrós skilið fyrir þá góða niðurstöðu sem birtist í könnuninni.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup.
Almar Guðmundsson, ræddi 20. tl., ályktun kennara Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi tillögu að styttingu vinnutímans samkvæmt kjarasamningi og 1. tl. íbúa- og þjónustukönnun Gallup.
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup.
Fundargerðin sem er 27 tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
Málsnúmer 2302010F
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 8/2 ´23.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 12. tl., endurnýjun samstarfssamning við UMF Stjörnuna 2023-2025. Þorbjörg vakti sérstaka athygli á bókun fulltrúa Garðabæjarlistans varðandi fjölgreinaafslátt.
Björg Fenger, ræddi 12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025. Björg lagði fram eftirfarandi bókun.
„Ungmennafélagið Stjarnan gegnir mikilvægu hlutverki í bæjarfélaginu og reiða margir íbúar sig á þá framúrskarandi þjónustu sem félagið býður upp á. Stjarnan er sjálfstætt félag og bæjaryfirvöldum ber að virða sjálfsákvörðunarrétt félagsins við tilhögun reksturs og innra starfs. Innan Stjörnunnar starfa sjö deildir sem hver um sig reiðir sig á tekjur sem stafa frá æfingagjöldum iðkenda. Innleiðing fjölgreinaafslátta verður ekki komið á nema að undangenginni ítarlegri greiningu og stefnumótun hjá félaginu sjálfu en slík vinna er einmitt í gangi.
Á haustmánuðum 2022 var unnið minnisblað um frí- og tómstundastarf 6-9 ára barna af fræðslu- og menningarsviði. Í minnisblaðinu er farið yfir stöðu starfsins en einnig um mögulegar leiðir til að efla það í bænum. Gegnir Stjarnan þar mikilvægu hlutverki og munu bæjaryfirvöld óska eftir samtali við félagið vegna þess á allra næstu vikum.“
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025.
Björg Fenger, ræddi að nýju 12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025.
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi að nýju 12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025.
Almar Guðmundsson, ræddi 12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025 og 13. tl.., starfstyrkur til íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi að nýju12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025
Guðjón Pétur Lýðsson, ræddi 12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025.
Björg Fenger, ræddi að nýju 12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi að nýju 12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2302009F
04
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 8/2 ´23.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., tillögu um nafngiftir og fegrun hringtorga í Garðabæ, 2. tl., menningardagskrá fyrir skólahópa á vorönn 2023, 3. tl., safnanótt 2023 og 4. tl., umsókn Tónlistarskólans í Garðabæ um styrk vegna vortónleika skólans.
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 1. tl., tillögu um nafngiftir og fegrun hringtorga í Garðabæ og 4. tl., umsókn Tónlistarskólans í Garðabæ um styrk vegna vortónleika skólans.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi að nýju 1. tl., tillögu um nafngiftir og fegrun hringtorga í Garðabæ.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 3. tl., safnanótt 2023 og 1. tl., tillögu um nafngiftir og fegrun hringtorga í Garðabæ.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi að nýju 1. tl., tillögu um nafngiftir og fegrun hringtorga í Garðabæ.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi að nýju 1. tl., tillögu um nafngiftir og fegrun hringtorga í Garðabæ.
Bjarni Th. Bjarnason, ræddi 1. tl., tillögu um nafngiftir og fegrun hringtorga í Garðabæ.
Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi að nýju 3. tl., safnanótt 2023 og færði öllu því fólki þakkir sem kom að undirbúningi og uppsetningu á sýningunni Aftur til Hofsstaða.
Guðlaugur Kristmundsson, ræddi að nýju 1. tl., tillögu um nafngiftir og fegrun hringtorga í Garðabæ.
Almar Guðmundsson, ræddi 4. tl., umsókn Tónlistarskólans í Garðabæ um styrk vegna vortónleika skólans.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2302014F
05
Fundargerð skipulagsnefndar frá 9/2 ´23.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2302008F
06
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 7/2 ´23.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., aðgerðir í tengslum við rakaskemmdir í húsnæði skólanna og 3. tl., kynningu og samtal við skólastjórnendur í Garðaskóla.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2212004F
07
Fundargerð ungmennaráðs frá 2/12 ´22.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2302020F
08
Fundargerð ungmennaráðs frá 3/2 ´23.
Björg Fenger, ræddi 3. tl., fræðslu um barnvæn sveitarfélög.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi störf ungmennaráðs og fagnaði líflegri umræðu í ráðinu um ýmis mál.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2302122
09
Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 27/1 ´23.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2301318
10
Fundargerð stjórnar SSH frá 6/2 ´23.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 5. tl., húsnæðismarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu.
Almar Guðmundsson, ræddi 5. tl., húsnæðismarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 2302361
11
Tillaga Garðabæjarlistans um lækkun hámarkshraða.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram og gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn samþykkir að fela umhverfissviði að útfæra aðgerðir til lækkunar aksturshraða á sem flestum vegum innan Garðabæjar þar sem nú er 50 km hámarkshraði, t.d. með lækkun hámarkshraða og öðrum hraðatakmarkandi aðgerðum.“
Greinargerð
Í árekstri bíls á 30 km hraða og gangandi vegfaranda eru 95% líkur á því að vegfarandi lifi áreksturinn af. Keyri bíll á 40 km hraða eru 87% líkur á því að gangandi vegfarandi lifi af, en lífslíkur eru 71% eftir árekstur gangandi vegfaranda við bíl á 50 km hraða á klukkustund (Hussain o.fl. 2019). Alvarleg slys eru einnig algengari því meiri sem hraðinn er og við þetta bætist að því hraðar sem bílar keyra, því lengur tekur það þá að stöðva í aðstæðum þar sem þess þarf skyndilega við. Óháð umferðaröryggisástæðum gæti lægri aksturshraði innanbæjar einnig auðveldað Garðabæ áframhaldandi innviðauppbyggingu fyrir virka ferðamáta.
Lækkun aksturshraða eykur öryggi allra í umferðinni, en þá sérstaklega gangandi og hjólandi vegfarenda. Vegir innan Garðabæjar sem nú hafa 50 km hámarkshraða, þótt þeir séu ekki beinlínis innan íbúðahverfa, skera bæjarfélagið í sundur og verða þess valdandi að gönguleiðir milli hverfa sem liggja þétt upp að hvert öðru verða ekki eins öruggar og best væri á kosið. Dæmi um vegi sem tillagan gæti náð til undir þessum formerkjum eru Bæjarbraut, Vífilsstaðavegur, Karlabraut, Hnoðraholtsbraut og Suðurnesvegur.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans.
Guðjón Pétur Lýðsson, varabæjarfulltrúi Garðabæjarlistans.
Guðlaugur Kristmundsson, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða framkomna tillögu.