Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 7/2 ´23.

Málsnúmer 2302005F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

3. (918). fundur

Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 1. tl, jafnlaunavottun Garðabæjar 2022.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 8. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði og svör við fyrirspurnum. Þorbjörg lagði fram eftirfarandi bókun.

„Í ársskýrslum Flataskóla, sem ná á vefnum aftur til ársins 2018, virðist ekki hafa verið hefð fyrir því að tala um ástand húsnæðis. Í ársskýrslunni frá 2020-2021 kemur þó fram að í viðtölum við starfsfólk komi margar ábendingar varðandi viðhald og ásigkomulag húsnæðis. Vitað er að kallað var eftir úttekt á skólanum árið 2019 og að skýrsla um umfangsmikinn leka, rakaskemmdir og myglu kom fram þá. Um þá úttekt höfum við í Garðabæjarlistanum fjallað áður og fengið svör við fyrirspurn okkar um hana. Svörin og núverandi ástand benda að okkar mati til óljóss verklags og eftirfylgni sem var ábótavant, þótt farið hafi verið í valdar framkvæmdir við skólann.
Í ársskýrslum Hofsstaðaskóla aftur á móti er talað um aðkallandi viðhaldsþörf m.a. vegna leka á hverju ári frá árinu 2010. Þetta eru ársskýrslur 2009-10, 2010-11, 2011-12, árin 2013-14 og 2014-15 er sérstaklega talað um viðhaldsþörf ytra byrðis og það ítrekað í ársskýrslu 2015-16, aftur árið 2016-17, 2017-18, 2018-19 og 2019-20. Í ársskýrslu 2020-2021 má sjá að einhver mál voru leyst en í ársskýrslu 2021-2022 er aftur talað um leka og ósk um viðhaldsáætlun, en eins og við vitum nú fannst árið 2021 mygla í skólastofu.
Það hefði mátt vera ljóst í hvað stefndi, og ég stend við orð mín sem voru tekin sérstaklega fyrir hér um daginn og endurtek að báðir þessir skólar voru tifandi tímasprengja. Ábyrgðin á núverandi ástandi skólahúsnæðis í Garðabæ liggur hjá meirihluta Sjálfstæðisflokksins.“

Almar Guðmundsson, ræddi 8. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði og svör við fyrirspurnum.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi að nýju 8. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði og svör við fyrirspurnum.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 8. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði og svör við fyrirspurnum.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 8. tl., aðgerðir varðandi áhrif á skólastarf vegna viðgerða á skólahúsnæði og svör við fyrirspurnum. Sigríður Hulda lagði fram eftirfarandi bókun.

„Vegna umræðu um viðgerðir á skólahúsnæði Flataskóla og Hofsstaðaskóla undanfarin ár og úttekta um ástand húsnæðis vilja bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins árétta eftirfarandi:
Búið er að endurskipuleggja allt verklag hvað varðar upplýsingagjöf, framkvæmdir og eftirfylgni þegar kemur að viðbrögðum við myglu og rakaskemmdum. Allar upplýsingar um þessi mál eru opinberar á vefsíðu bæjarins. Heilsa og öryggi nemenda og starfsfólk er í forgrunni í öllum aðgerðum og ákvörðunum.
Á undanförnum árum hefur verið ráðist í ýmsar framkvæmdir á skólahúsnæði í bænum til að gera við og koma í veg fyrir rakaskemmdir og upplýsingar um þær eru aðgengilegar á vefsíðu bæjarins.
Fyrir liggja tilvik þar sem ekki var farið yfir upplýsingar um ástandsúttektir á húsnæði skóla með starfsfólki og foreldrasamfélaginu. Einnig liggur fyrir að það skorti á skipulagðari eftirfylgni með ástandsskýrslum varðandi framvindu framkvæmda og árangur þeirra. Þá skorti á samskipti við starfsfólk og foreldrasamfélagið um framkvæmdir og eftirfylgni. Allt þetta er mjög miður.“

Fundargerðin sem er 10 tl. er samþykkt samhljóða.