Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 14/2 ´23.

Málsnúmer 2302019F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

3. (918). fundur

Margrét Bjarnadóttir, ræddi 1. tl. íbúa- og þjónustukönnun Gallup. Margrét lagði fram eftirfarandi bókun.

"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna góðri niðurstöðu þjónustukönnunar Gallup meðal íbúa Garðabæjar fyrir árið 2022 en könnunin var gerð í desember og janúar sl. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar er almennt mikil ánægja íbúa með þá þjónustu sem Garðabær veitir og íbúar eru mjög ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja mikilvægt að í kjölfar árlegrar þjónustukönnunar Gallup séu niðurstöður rýndar af stjórnendum og nefndum bæjarins með það að markmiði að bæta enn frekar þjónustu við íbúa Garðabæjar á sem skilvirkastan og hagkvæmastan hátt. Með vísan til niðurstöðu þjónustukönnunar Gallup er brýnt að unnið verði markvisst með samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar frá 15. september sl. varðandi rýni á þjónustu bæjarins við fatlað fólk til að dýpka skilning á þörf þjónustuþega og kanna væntingar notenda og aðstandenda þeirra til þjónustu við fatlað fólk í bænum með það að markmiði að efla og bæta þjónustuna."

Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup og 20. tl., ályktun kennara Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi tillögu að styttingu vinnutímans samkvæmt kjarasamningi

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl. íbúa- þjónustukönnun Gallup. Sigríður Hulda færði starfsfólki bæjarins þakkir fyrir þeirra góðu störf en þau eiga hrós skilið fyrir þá góða niðurstöðu sem birtist í könnuninni.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup.

Almar Guðmundsson, ræddi 20. tl., ályktun kennara Tónlistarskóla Garðabæjar varðandi tillögu að styttingu vinnutímans samkvæmt kjarasamningi og 1. tl. íbúa- og þjónustukönnun Gallup.

Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup.

Guðfinnur Sigurvinsson, ræddi 1. tl., íbúa- og þjónustukönnun Gallup.

Fundargerðin sem er 27 tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.