Beint í efni

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 8/2 ´23.

Málsnúmer 2302010F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

3. (918). fundur

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 12. tl., endurnýjun samstarfssamning við UMF Stjörnuna 2023-2025. Þorbjörg vakti sérstaka athygli á bókun fulltrúa Garðabæjarlistans varðandi fjölgreinaafslátt.

Björg Fenger, ræddi 12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025. Björg lagði fram eftirfarandi bókun.

„Ungmennafélagið Stjarnan gegnir mikilvægu hlutverki í bæjarfélaginu og reiða margir íbúar sig á þá framúrskarandi þjónustu sem félagið býður upp á. Stjarnan er sjálfstætt félag og bæjaryfirvöldum ber að virða sjálfsákvörðunarrétt félagsins við tilhögun reksturs og innra starfs. Innan Stjörnunnar starfa sjö deildir sem hver um sig reiðir sig á tekjur sem stafa frá æfingagjöldum iðkenda. Innleiðing fjölgreinaafslátta verður ekki komið á nema að undangenginni ítarlegri greiningu og stefnumótun hjá félaginu sjálfu en slík vinna er einmitt í gangi.
Á haustmánuðum 2022 var unnið minnisblað um frí- og tómstundastarf 6-9 ára barna af fræðslu- og menningarsviði. Í minnisblaðinu er farið yfir stöðu starfsins en einnig um mögulegar leiðir til að efla það í bænum. Gegnir Stjarnan þar mikilvægu hlutverki og munu bæjaryfirvöld óska eftir samtali við félagið vegna þess á allra næstu vikum.“

Guðlaugur Kristmundsson, ræddi 12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025.

Björg Fenger, ræddi að nýju 12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025.

Guðlaugur Kristmundsson, ræddi að nýju 12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025.

Almar Guðmundsson, ræddi 12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025 og 13. tl.., starfstyrkur til íþróttakarls og íþróttakonu Garðabæjar.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi að nýju12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025

Guðjón Pétur Lýðsson, ræddi 12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025.

Björg Fenger, ræddi að nýju 12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi að nýju 12. tl., endurnýjun samstarfssamnings við UMF Stjörnuna 2023-2025

Fundargerðin lögð fram.