Beint í efni

32. (2133). fundur

03.09.2024
Bæjarráð Garðabæjar

32. (2133). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

03.09.2024

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - varamaður
  • Margrét Bjarnadóttir - varamaður
  • Rakel Steinberg Sölvadóttir - varamaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2408525

01

Árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2024.

Á fundi bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir árshlutauppgjöri Garðabæjar fyrir tímabilið janúar - júní 2024.

Niðurstaða A og B hluta fyrir tímabilið er í þ.kr.: Rekstrartekjur 14.298.680. Rekstrargjöld 11.930.404. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir 2.368.276.

Afskriftir (883.260). Rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og gjalda 1.485.016. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld (1.391.890). Rekstrarniðurstaða er jákvæð 93.126.

Fjármálastjóri lagði fram minnisblað með skýringum og upplýsingum.


Málsnúmer 2304350

02

Samkomulag ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um uppfærslu samgöngusáttmála frá árinu 2019 og samkomulag um rekstur almenningssamgangna, stjórnskipulag og veghald.

Umræðum um uppfærslu samgöngusáttmála framhaldið, frá fundi bæjarráðs 27. ágúst 2024.

Bæjarráð samþykkir að vísa samkomulaginu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2408576

03

Minnisblað sviðsstjóra þjónustu- og þróunarsviðs um tölvubúnað Garðabæjar, dags. 29. ágúst 2024.

Sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs fór yfir minnisblað um tölvubúnað Garðabæjar. Fræðslu- og menningarsvið setur sér markmið varðandi tölvubúnað fyrir skólastigin. Þróunar- og þjónustusvið setur samskonar markmið fyrir starfsmenn bæjarins og aldur búnaðar, þannig að hann uppfylli öryggis- og gæðakröfur.

Lagt er til að endurnýjunarþörf verði mætt með því að forgangsraða búnaði fyrir börn.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja framlag að fjárhæð kr. 40.212.000, sem viðauka við fjárhagsáætlun 2024, samkvæmt 2.mgr. 63.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Málsnúmer 2305173

04

Keldugata 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Björgvini Guðbjörnssyni, kt. 100959-3999, leyfi fyrir breytingu á rými í kjallara. Um er að ræða lagnarými sem verður að geymslu, að Keldugötu 5.

Málsnúmer 2402519

05

Miðhraun 2 EH - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Eik fasteignafélagi hf., kt. 590902-3730, leyfi fyrir breytingu á innra skipulagi efri hæðar húss að Miðhrauni 2.

Málsnúmer 2312042

06

Vinastræti 1-3 - Umsókn um byggingarleyfi ( 3. áfangi Urriðaholtsskóli)

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Garðabæ, kt. 570169-6109, leyfi fyrir byggingu 3. áfanga (sem er lokaáfangi) Urriðaholtsskóla, að Vinastræti 1-3.

Málsnúmer 2404411

07

Vorbraut 37- Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vanga V1 ehf., kt. 461123-0740, leyfi til að byggja raðhús á tveimur hæðum að Vorbraut 37.

Málsnúmer 2404474

08

Vorbraut 39 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vanga V1 ehf., kt. 461123-0740, leyfi til að byggja raðhús á tveimur hæðum að Vorbraut 39.

Málsnúmer 2404491

09

Vorbraut 41 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vanga V1 ehf., kt. 461123-0740, leyfi til að byggja raðhús á tveimur hæðum að Vorbraut 41.

Málsnúmer 2404490

10

Vorbraut 43 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vanga V1 ehf., kt. 461123-0740, leyfi til að byggja raðhús á tveimur hæðum að Vorbraut 43.

Málsnúmer 2404489

11

Vorbraut 45 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vanga V1 ehf., kt. 461123-0740, leyfi til að byggja raðhús á tveimur hæðum að Vorbraut 45.

Málsnúmer 2404488

12

Vorbraut 47- Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vanga V1 ehf., kt. 461123-0740, leyfi til að byggja raðhús á tveimur hæðum að Vorbraut 47.

Málsnúmer 2406834

13

Þorraholt 13 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita ÞG Hnoðraholti ehf., kt. 660124-0470, leyfi til að byggja 4 hús hvert með 4-5 hæðir, auk bílakjallara að Þorraholti 13.

Málsnúmer 2403271

14

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030, vegna breytingar á rammahluta Vífilsstaðalands, dags. 29. ágúst 2024.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024 að gera þá breytingu á tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030, rammahluta Vífilstaðalands, að ákvæði einstakra reita verði einfölduð hvað varðar fjölda íbúðareininga og fjöldi íbúða á hektara. Einnig að gert verði ráð fyrir að þær tölur sem settar eru fram í töflu um áætlað byggingarmagn og fjölda íbúða geri ráð fyrir ákveðnum slaka, en ákvarðist síðan endanlega í útfærslu deiliskipulags. Breytingartillögunni skal vísað til auglýsingar í samræmi við 3. mgr. 30.gr. og 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrrgreindum breytingum.

Tillagan skal auglýst samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður.

Málsnúmer 2208311

15

Afgreiðsla skipulagnefndar vegna tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir athafnasvæði í Búðum, dags. 29. ágúst 2024.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024 að endurskoðuðu deiliskipulagi í Búðum (Iðnbúð/Smiðsbúð/Gilsbúð). Í umsögn heilbrigðiseftirlits var bent á að vísað sé í samþykkt Garðabæjar um skilti sem liggi ekki fyrir. Skipulagsnefnd leggur til að texti greinargerðar um skilti verði lagfærður hvað þetta atriði varðar. Aðrir umsagnaraðilar gerðu ekki athugasemdir við tillöguna.

Tillagan, með ofangreindri lagfæringu, verði samþykkt sem deiliskipulag Athafnahverfis í Búðum í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Við gildistöku deiliskipulagsins fellur úr gildi deiliskipulag fyrir iðnaðar- og verslunarlóðir í Búðahverfi (Iðnbúð, Smiðsbúð), samþykkt 1977 og endurskoðað 2004. Einnig fellur út gildi samþykkt deiliskipulag Bæjargils sem náði til Gilsbúðar, samþykkt 1984.

Málsnúmer 2208310

16

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir Bæjargil, dags. 29. ágúst 2024.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024 að endurskoðuðu deiliskipulag fyrir Bæjargil. Í umsögn heilbrigðiseftirlits var lagt til að ákvæði yrði bætt við greinargerð þess efnis að óheimilt sé að hella spilliefnum í regnvatnslagnir til að stuðla að því að gæði vatns í Arnarneslæk verði ekki skert. Skipulagsnefnd lagði til að ákvæði þess efnis verði bætt í fyrsta kafla greinargerðar. Aðrir umsagnaraðila gerðu ekki athugasemdir við tillöguna.

Tillagan, með ofangreindri lagfæringu, verði samþykkt sem deiliskipulag Bæjargils í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Við gildistöku deiliskipulagsins fellur út gildi samþykkt deiliskipulag Bæjargils sem náði einnig til Gilsbúðar, samþykkt 1984.

Málsnúmer 2406282

17

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður, dags. 29. ágúst 2024.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024 að vísa til auglýsingar tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:

- að hámarksfjöldi íbúða í fjölbýlishúsum sunnan Vorbrautar (húsgerð F3) fjölgi úr 12 í 14 í hverju húsi (alls um 16 íbúðir, úr 96 í 112).

- að byggingarreitir húsa sunnan Vorbrautar breikki úr 14 m í 15m.

- að byggingarreitir bílakjallara breikki úr 17 í 18 m á lóðunum Vorbraut 2,4,6,14 og 16.

- að lóðirnar Vorbraut 8, 10 og 12 sameinist í eina lóð með sameiginlegum bílakjallara.

- að raðhúseiningum í Útholti fjölgi um eina í hverri lengju (alls 5 einingar)

- að raðhúseiningum í Stekkholti fjölgi um eina í hverri raðhúslengju (alls 6 einingar)

- að hámarkshæð farsímamastur á lóðinni Vorbraut 6b hækki úr 16 m í 20 m.

Tillögunni skal vísað til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Auglýsa skal tillöguna samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til rammahluta Vífilsstaðalands.

Breyta þarf breytingaruppdrætti til samræmis við deiliskipulagsbreytingu sem nær til raðhúsa við Vorbraut áður en tillagan verður auglýst.

Málsnúmer 2405091

18

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður, vegna fjölgunar á raðhúsaeiningum við Vorbraut, dags. 29. ágúst 2024.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024 að samþykkja tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður, að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir því að raðhúseiningum við Vorbraut verði fjölgað um þrár. Engar athugasemdir bárust.

Tillagan er samþykkt sem breyting deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2311113

19

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir Hæðir, dags. 29. ágúst 2024.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024, að endurskoðuðu deiliskipulagi fyrir Hæðir. Engar athugasemdir bárust að lokinni auglýsingu. Í umsögn heilbrigðiseftirlits er lagt til að ákvæði verði bætt við greinargerð þess efnis að óheimilt sé að hella spilliefnum í regnvatnslagnir til að stuðla að því að gæði vatns í Arnarneslæk sé ekki skert. Skipulagsnefnd leggur til að ákvæði þess efnis sé bætt við fyrsta kafla greinargerðar. Aðrir umsagnaraðilar gerðu ekki athugasemdir við tillöguna.

Tillagan, með ofangreindri lagfæringu verði samþykkt sem deiliskipulag Hæða í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Við gildistöku deiliskipulagsins fellur úr gildi samþykkt deiliskipulags Bæjargils 2. áfanga (Hæðahverfi) samþykkt 1989.

Málsnúmer 2407143

20

Afgreiðsla skipulagsnefndar vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla innan lögsögu Kópavogsbæjar, dags. 29. ágúst 2024.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar, frá fundi 29. ágúst 2024, varðandi breytingu deiliskipulags Kjóavalla innan lögsögu Kópavogsbæjar. Deiliskipulagið nær til beggja sveitarfélaga. Tillagan gerir ráð fyrir því að svæði austan Markavegar verði skilgreint sem svæði fyrir garðlönd (skólagarða) og minnkun á lóð fyrir fjarskiptamastur sem staðsett er á sama svæði. Einnig breyting sama deiliskipulags sem nær til lóðar miðlunargeyma við Vatnsendahlíð, en þar er gert ráð fyrir einum miðlunargeymi til viðbótar.

Tillagan er samþykkt í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010, enda ekki gerð athugasemd af hálfu Garðbæjar við tillögurnar.

Málsnúmer 2408464

21

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi í tilefni listahátíðar á Garðatorgi

Lögð fram umsókn Garðabæjar um tímabundið áfengisleyfi að Garðatorgi 1-4 vegna tónleika, sem halda á laugardaginn 12. október 2024.

Bæjarráð gerir ekki fyrir sitt leyti athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2408466

22

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tímabundið áfengisleyfi í tilefni af sjávarútvegssýningu

Lögð fram umsókn Samhentra Kassagerðar hf. um tímabundið áfengisleyfi á starfsstöð Samhentra Kassagerðar, Suðurhauni 4 í tilefni af Sjávarútvegssýningu, þann 19. september 2024.

Bæjarráð gerir ekki fyrir sitt leyti athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2408462

23

Tilkynning frá mennta- og barnamálaráðuneytinu varðandi tillögur um breytingu aðalnámskrá tónlistarskóla í samráðsgátt, dags. 21.08.2024.

Erindi Mennta- og barnamálaráðuneytisins vegna breytinga aðalnámskrá tónlistarskóla. Aðalnámskrá tónlistarskóla hefur ekki verið uppfærð um langt skeið. Breytingunum er ætlað að mæta brýnum og breyttum þörfum tónlistarskóla nú, áður en haldið er áfram með heildarendurskoðun á námskránni. Umsagnarfrestur er til 2. október 2024.

Bæjarráð vísar erindinu til fræðslu- og menningarsviðs og umfjöllunar í Skólanefnd Tónlistarskóla Garðabæjar.

Málsnúmer 2402166

24

Reglur vegna úthlutunar styrkja til menningarmála

Bæjarráð samþykkir að framlengja umsóknarfrest, skv. 1.gr. reglna um úthlutun styrkja til menningarstarfsemi í Garðabæ, vegna síðari úthlutunar ársins 2024, fram til 1. október 2024.

Málsnúmer 2408560

25

Minnisblað umhverfissviðs um dúfnahald í Garðabæ

Bæjarráð samþykkir að veita Gunnari Þór Sigurðssyni, kt. 240770-4319, tímabundið leyfi til 6 mánaða að staðsetja bréfdúfukofa á opnu svæði sunnan gamla Álftanesvegar, þar sem nú þegar eru staðsettir bréfdúfukofar.

Skilyrði fyrir tímabundinni leyfisveitingu til 6 mánaða er góð og snyrtileg umgengni og að farga skuli fuglaúrgangi í lokuðum umbúðum á viðurkenndan förgunarstað.

Málsnúmer 2408580

26

Bréf til forráðamanna grunnskólabarna vegna vopna- og hnífaburðar ungmenna, dags. 30.ágúst 2024.

Bréf sviðsstjóra fræðslu- og menningarsvið Garðabæjar dags. 30. ágúst 2024, til foreldra/forsjáraðila barna vegna vopnaburðar barna og ungmenna, lagt fram.

Málsnúmer 2408558

27

Tilkynning frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga varðandi leiðbeiningar varðandi mat á hæfi kjörinna fulltrúa í sveitarstjórn, dags. 27.08.24.

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 27. ágúst um leiðbeininigar varðandi mat á hæfi kjörinna fulltrúa sveitarstjórna, lagt fram.