Keldugata 5 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
32. (2133). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Björgvini Guðbjörnssyni, kt. 100959-3999, leyfi fyrir breytingu á rými í kjallara. Um er að ræða lagnarými sem verður að geymslu, að Keldugötu 5.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags sem nær til lóðarinnar Keldugata 5 og opins svæðis vestan við lóð. Grenndarkynning hefur farið fram og voru gerðar athugasemdir við tillöguna. Skipulagsstjóri fundaði með þeim sem athugasemdir gerðu.
Eigandi lóðarinnar hefur nú óskað eftir því að tillagan verði dregin til baka.
Skipulagsnefnd dregur tillöguna hér með til baka og er gildandi deiliskipulag því óbreytt.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
10. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir sem gera ráð fyrir því að breyta rými í kjallara sem var lagnarými í geymslu. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað umrætt lagnarými varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
2. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Skipulagsstjóra falið að ræða við þá aðila sem hafa gert athugasemdir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
1. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu.
Athugasemdir hafa borist og þær lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
16. (931). fundur
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna stækkunar lóðarinnar við Keldugötu 5. Lagt er til að kvöð verði sett um trjágróður á milli stoðveggja á lóðamörkum og kvöð um að innkeyrsla verði brotin upp með gróðri.
Grenndarkynna skal tillöguna íbúum og eigendum að Keldugötu 2, 3, 4 og 7 og Víkurgötu 10 og 12.“ (Mál nr. 2305173)
Bæjarráð Garðabæjar
08
43.(2096). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna stækkunar lóðarinnar við Keldugötu 5. Lagt er til að kvöð verði sett um trjágróður á milli stoðveggja á lóðamörkum og kvöð um að innkeyrsla verði brotin upp með gróðri
Grenndarkynna skal tillöguna íbúum og eigendum að Keldugötu 2, 3, 4 og 7 og Víkurgötu 10 og 12.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
13. fundur
Lögð fram tillaga að útfærslu lóðar og tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir stækkun lóðar að grænu svæði.
Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar.
Með vísan í umsögn leggur skipulagsnefnd til að sú breyting verði gerð á tillögunni að ákvæði verði um gróður á lóð á milli stoðveggja og ákvæði verði um að bílastæði séu brotin upp með gróðri.
Skipulagsnefnd metur tillöguna með ofangreindum breytingum sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Keldugötu
2,3, 4 og 7 sem og Víkurgötu 10 og 12.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
9. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem fram kemur að lóðarhafi hyggst sækja um stækkun lóðar út að grænu svæði. Lögð fram umögn deiliskipulagshöfundar þar sem að lagt er til að lóðarhafi geri betur grein fyrir því hvernig hann hyggist ganga frá lóðarmörkum. Skipulagsnefnd tekur undir umsögnina.
Sækja þarf um breytingu deiliskipulags og ganga frá samkomulagi við bæjaryfirvöld um kaup á því landi sem bætist við lóðina ef fallist verður á deiliskipulagsbreytinguna.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
13
7. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem sótt er um að stækka lóðina til norðurs inn á grænt svæði við hlið lóðar. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar þar sem segir að lóðarhafi hafi steypt vegg út fyrir lóðamörk og óskar eftir að lóðin verði stækkuð sem því nemur. Töluverður hæðarmismunur er í götu og er steyptur stoðveggur á lóðamörkum ekki í samræmi við deiliskipulagsskilmála sem gerir ráð fyrir limgerði eða runnagróðri á lóðamörkum að götu en ekki stoðvegg. Girðingar á lóðamörkum skulu heldur ekki vera hærri en 0,9 m og gegnsæi þeirra skal aldrei vera minn en 50% en umræddur veggur uppfyllir hvorugt. Frágangur lóðarhafa er því ekki í samræmi við deiliskipulagskilmála jafnvel þótt lóð sé stækkuð þannig að steyptur veggur verði á lóðamörkum. Lóðarhafi hefur enn ekki gengið frá horni lóðarinnar þar sem bil myndast milli stoðveggja.
Skipulagsstjóri leggur til að lóðarhafi geri betur grein fyrir hvernig hann hyggist ganga frá lóð á lóðamörkum að grænu svæði þar sem gengið er frá fláa milli tveggja stoðveggja með möl.
Minnt er á að flái með grasi eða gróðri skal ekki vera brattari en 1:2 og skal grjóthlaðinn flái ekki bera brattari en 1:1,5. Öll stöllun lóðar skal gerð innan lóðarmarka.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
14
6. fundur
Umsókn um lóðarstækkun vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.