16. (931). fundur
16. (931). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
16.11.2023
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Harpa Þorsteinsdóttir - bæjarfulltrúi
- Sara Dögg Svanhildardóttir - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 2. nóvember 2023 er lögð fram.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 7/11 ´23.
Enginn tók til máls.
Fundargerð bæjarráðs sem er 7 tl., er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 14/11 ´23.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri ræddi 1. tl., jarðhræringar í Reykjanesi og rýmingu byggðar í Grindavík. Bæjarstjóri sendi bæjarstjórn Grindavíkur og Grindvíkingum hlýjar kveðjur bæjarstjórnar Garðabæjar við þær erfiðu aðstæður sem samfélagið í Grindavík er að takast á við.
Fundargerð bæjarráðs sem er 17 tl., er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
2.5 - 2305173 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Keldugötu 5.
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna stækkunar lóðarinnar við Keldugötu 5. Lagt er til að kvöð verði sett um trjágróður á milli stoðveggja á lóðamörkum og kvöð um að innkeyrsla verði brotin upp með gróðri.
Grenndarkynna skal tillöguna íbúum og eigendum að Keldugötu 2, 3, 4 og 7 og Víkurgötu 10 og 12.“ (Mál nr. 2305173)
Fylgiskjöl
2.6 - 2311065 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á skipulagi Kjóavalla vegna byggingareits fyrir vatnsmiðlunargeymi á lóðinni við Landsenda 31.
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla vegna byggingarreits fyrir vatnsmiðlunargeymi á lóðinni við Landsenda 31 í Kópavogi ásamt því að fella niður heimild fyrir fjarskiptamastri. Um er að ræða sameiginlegt deiliskipulag Garðabæjar og Kópavogsbæjar fyrir hesthúsasvæðið á Kjóavöllum.
Skipulagsráð Kópavogsbæjar samþykkti á fundi 6. nóvember 2023 að vísa tillögu um að auglýsa breytingartillöguna til afgreiðslu bæjarstjórnar.“ (Mál nr. 2311065)
Fylgiskjöl
- Skipulagsnefnd Garðabæjar - 13 (9.11.2023) - Kjóavellir - dsk.br. - Nýr miðlunargeymir.pdf
- Kjoavellir br. deil._Nýr miðlunargeymir_031123.pdf
- Bæjarráð Garðabæjar - 42.(2095) (7.11.2023) - Erindi Kópavogsbæjar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Kjóavelli vegna nýs byggingarreits fyrir vatnsmiðlunargeymi, dags. 02.11.23..pdf
2.7 - 2310471 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Vinastræti 1-3 (Urriðaholtsskóli).
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðar fyrir spennustöð innan lóðar Urriðaholtsskóla við Vinastræti 1-3 og breytingu á byggingarreit skólabyggingar“. (Mál nr. 2310471)
Fylgiskjöl
2.8 - 2310097 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts og Háholts vegna lóðanna við Vinastræti 20-28.
„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Vinastræti 22-28. Í tillögunni felst að lóðunum við Vinastræti 20-26 og Vinastræti 28 er skipt upp í þrjár lóðir. Vinastræti 20 ? 24, lóð fyrir atvinnustarfsemi, Vinastræti 26, bílastæðalóð og Vinastræti 28, lóð fyrir menningarstarfsemi.
Lóð við Vinastræti 28 minnkar. Heimilað heildarbyggingarmagn er óbreytt en byggingarmagn ofanjarðar eykst lítillega og byggingarreitur og skilmálar breytast til samræmis við verðlaunatillögu í samkeppni um nýtt regluheimili Oddfellow.
Lóð við Vinastræti 20-26 minnkar og fær nýtt lóðanúmer Vinastræti 20-24. Hluti byggingarreita á lóð eru felldir niður og byggingarreitur við lóðarmörk til suðausturs breytist lítillega.
Afmörkuð er ný bílastæðalóð við Vinastræti 26. Bílastæði á bílastæðalóð eru samnýtt af lóðunum við Vinastræti 20-24 og Vinastræti 28.
Bílastæðakrafa á lóðum breytist og verður 1 stæði fyrir hverja 50 m² í atvinnuhúsnæði innan lóðar. Með samnýtingu bílastæða á bílastæðalóð næst áfram krafa um 1 stæði fyrir hverja 35 m² af atvinnuhúsnæði. Mismunandi starfsemi er á lóðunum, þar sem lóðin við Vinastræti 22-26 nýtir bílastæðin aðallega á daginn en bílastæðaþörf lóðarinnar við Vinastræti 28 er mest eftir að vinnutíma lýkur, sem gerir samnýtingu ákjósanlegan kost.“ (Mál nr. 2310097)
Fylgiskjöl
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 8/11 ´23.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi 2. tl., tillögur að reglum um hvatapeninga 2024, 3. tl., íþróttahátíð Garðabæjar 2024, 5. tl., æskulýðsstarf Garðasóknar og önnur mál, Íslandsmeistaramót í Karate í Mýrinni. Hrannar Bragi óskaði Karatesambandi Íslands til hamingju með vel heppnað mót.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 2. tl., tillögur að reglum um hvatapeninga 2024.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., tillögur að reglum um hvatapeninga 2024.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi að nýju 2. tl., tillögur að reglum um hvatapeninga 2024.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, ræddi 2. tl., tillögur að reglum um hvatapeninga 2024.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 2. tl., tillögur að reglum um hvatapeninga 2024.
Björg Fenger, ræddi 2. tl., tillögur að reglum um hvatapeninga 2024.
Hrannar Bragi Eyjólfsson, ræddi að nýju 2. tl., tillögur að reglum um hvatapeninga 2024.
Fundargerðin lögð fram.
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 1/11 ´23.
Margrét Bjarnadóttir, ræddi 1. tl., kynningu á Bravo lesson - gæðakerfi fyrir skóla, 2. tl., menningarviðburði í grunn- og leikskólum 2023-2024 og 3. tl., menntadaginn 2023,
Fundargerðin lögð fram.
06
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 1/11 ´23.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., kynningu á Bravo lesson - gæðakerfi fyrir skóla, 2. tl., menningarviðburði í grunn- og leikskólum 2023-2024, 3. tl., menntadaginn 2023, 5. tl., umbótaverkefni í grunnskólunum 2023-2024 og 6. tl., starfsáætlanir grunnskólanna 2023-2024.
Björg Fenger kvaddi sér hljóðs og óskaði nemendum í Garðaskóla til hamingju með sigur í forritunar- og hönnunarkeppni LEGO á Íslandi.
Fundargerðin lögð fram.
07
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 13/10 og 20/10 ´23.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1. tl., fjárhagsáætlun Strætó bs. fyrir árið 2024 og 2. tl., útboð á akstri Strætó bs.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl., útboð á akstri Strætó bs.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., fjárhagsáætlun Strætó bs. fyrir árið 2024 og 2. tl., útboð á akstri Strætó bs.
Fundargerðirnar lagðar fram
08
Tillaga að breytingu á samþykktum Garðabæjar nr. 1182/2022 - Viðauki IV. (Fyrri umræða)
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að breytingu á samþykktum Garðabæjar og einnig reglum sem eru til afgreiðslu samkvæmt dagskrárliðum 9, 10 og 11. Bæjarstjóri þakkaði öllum sem komið hafa að undirbúningi málsins fyrir þeirra hlut að máli og hrósaði starfsmönnum fyrir góð og vönduð vinnubrögð.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls. Gunnar Valur sagði frá umræðu í fjölskylduráði og tók undir þakkir til starfsmanna sem komið hafa að undirbúningi málsins.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða að vísa tillögu að breytingu á samþykktum Garðabæjar nr. 1182/2022 ? Viðauka IV til síðari umræðu í bæjarstjórn.
09
Reglur um stoðþjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða reglur um stoðþjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
10
Reglur um stuðningsþjónustu.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða reglur um stuðningsþjónustu.
11
Reglur um notendasamninga.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða reglur um notendasamninga.
12
Tillögur um betra starfsumhverfi í leikskóla Garðabæjar.
Forseti bæjarstjórnar tók ákvörðun um að umræða um dagskrárliði 13 og 14 fari fram saman.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögum að betra starfsumhverfi í leikskólum. Tillögurnar voru unnar af starfshópi sem skipaður var stjórnendum í leikskólum, leikskólafulltrúa og sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs. Tillögurnar hafa verið til umfjöllunar í leikskólanefnd sem samþykkti þær á fundi sínum 18. október sl. Alls er um að ræða 15 tillögur og er gert ráð fyrir að tillögur 1-11 komi til framkvæmda á vorönn 2024 og á haustönn 2024 verði unnið að aðgerðaráætlun vegna tillagna 12-15 sem vísað verður til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.
Bæjarstjóri þakkaði öllum sem komið hafa að undirbúningi og mótun tillagnanna fyrir þeirra hlut að máli.
Margrét Bjarnadóttir, gerði nánari grein fyrir einstaka tillögum.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls. Þorbjörg lagði til eftirfarandi tillögu um breytingu á texta í kafla um innleiðingu.
Tillögur verða kynntar hagaðilum þegar þær liggja fyrir. Fylgja þarf framkvæmd þeirra eftir með könnunum og framlagningu á tölfræði sem metur árangur fyrir starfsumhverfi leikskólanna en metur einnig áhrif á vinnutíma, tekjur og líðan foreldra. Lögð verður áhersla á gott upplýsingaflæði til starfsfólks leikskóla og foreldra.
Breytingar geta haft mismunandi áhrif á stöðu fjölskyldna og mun fræðslu- og
menningarsvið í samstarfi við leikskólastjóra og félagsþjónustu fylgjast sérstaklega með stöðu ákveðinna hópa og skapa skýran farveg þar sem fólk getur óskað eftir lausn sinna mála ef þörf krefur.
Þorbjörg lagði fram eftirfarandi bókun.
„Miðað við stöðuna á leikskólum Garðabæjar þarf að grípa, meðal annars, til aðgerða sem eru íþyngjandi fyrir barnafjölskyldur. Þetta er ekki ákjósanleg staða að vera í, en við í Garðabæjarlistanum teljum að þær aðgerðir sem hér eru lagðar til séu vel ígrundaðar í ljósi aðstæðna.
Garðabæjarlistinn leggur höfuðáherslu á stranga eftirfylgni með árangrinum og hvort markmið breytinganna náist. Þá viljum við sjá gagnaöflun um áhrif breytinganna á vinnu, tekjur og streitu foreldra, með sérstakri áherslu á stöðu kvenna innan heimila og aðstæður fjölskyldna í viðkvæmri stöðu. Við viljum einnig að búinn verði til skýr farvegur í kerfinu fyrir þær fjölskyldur sem beinlínis geta ekki mætt skerðingu á hámarks vistunartíma. Fólk þarf að geta fengið úrlausn sinna mála ef brýn þörf er á. Þess vegna leggjum við fram breytingartillögu sem skerpir á þessu tvennu.
Við vonum svo sannarlega að tillögurnar skili tilætluðum árangri: Færri lokunum vegna manneklu, fleira starfsfólki á leikskólunum og þar með öruggari þjónustu fyrir fjölskyldur í bænum.“
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls. Sara Dögg lagði fram eftirfarandi bókun.
„Við í Viðreisn fögnum því sérstaklega að ný gjaldskrá leikskóla verði með óverulegum breytingum fyrir þau sem komast ekki hjá því að nýta 40 klst. vistun á viku.
Það er afar brýnt að mæta þeim hópi sem minnstan sveigjanleikann hefur hvort heldur sem litið er til fjárhagslegrar eða félagslegrar stöðu þegar kemur að þjónustu við foreldra leikskólabarna.“
Harpa Þorsteinsdóttir, tók til máls.
Brynja Dan Gunnarsdóttir, tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls. Almar lagði til að texti í kafla um innleiðingu verði uppfærður í samræmi við tillögu bæjarfulltrúa Þorbjargar.
Margrét Bjarnasóttir, tók til máls. Margrét lagði fram eftirfarandi bókun.
„Leikskólaþjónusta í Garðabæ hefur staðið traustum fótum í gegnum tíðina. Börn komast snemma inn á leikskóla þar sem viðmið er 12 mánaða aldur. Hlutfall fagmenntaðs starfsfólks er hátt og áhersla er lögð á snemmtæka íhlutun. Þróunarsjóður leikskóla ýtir svo undir metnaðarfullt fagumhverfi.
Á skömmum tíma er orðið ljóst að verja þarf gæðin í þjónustunni. Álag á starfsfólk er mikið, veikindahlutfall hátt og að hluta til gengur illa að manna skólana að fullu. Þá er mikilvægt að bregðast við og minnka vistunartíma með farsæld barna að leiðarljósi, en þar þarf einnig að hafa í huga aðstæður barnafjölskyldna til að mæta breytingum.
Tillögur að bættu leikskólaumhverfi eru settar fram með sveigjanleika í vistun barna sem mikilvægan þátt þannig að fjölskyldurnar velji sinn vistunartakt innan 40 tíma vistunar á viku að jafnaði. Gjaldskrá hvetur þær fjölskyldur sem geta til að stytta dvalartíma frekar og hún hækkar ekki að raunvirði.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja mikilvægt skref stigið með samþykkt tillagna um bætt leikskólaumhverfi sem verði börnum, fjölskyldum og síðast en ekki síst starfsfólki til heilla. Jafnframt er lögð áhersla á að mat verði gert með reglubundnu hætti á áhrif tillagnanna og brugðist við ef talin er þörf á. Garðabær mun hér eftir sem hingað til vera í fararbroddi í leikskólamálum.“
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að betra starfsumhverfi í leikskólum Garðabæjar með breytingu á texta um innleiðingu. Tillögur 1-11 komi til framkvæmda á vorönn 2024. Á haustönn 2024 verði unnið að aðgerðaráætlun vegna tillagna 12-15 sem vísað verður til afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.
13
Tillaga að nýrri gjaldskrá leikskóla Garðabæjar
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögu að gjaldskrá þar sem leikskólagjald verði óbreytt krónutala fyrir 38 klst. á viku miðað við núverandi gjaldskrá. Leikskólagjöld lækka frá og með 37 klst. miðað við núverandi gjaldskrá en hækka fyrir næstu tvær klst. (39 og 40).
Áfram verður hægt að sækja um afslátt sem er tekjutengdur. Í breyttri gjaldskrá er lagt til að viðmiðunartekjur verði annars vegar fyrir einstaklinga/forsjáraðila og hins vegar fyrir sambúðarfólk. Afslátturinn verði miðaðar við heildartekjur heimilis þar sem meðaltekjur einstaklings eru allt að 800.000 á mánuði en sambúðarfólks allt að 980.000 kr. á mánuði en var áður 865.469 kr. fyrir báða hópa. Afslátturinn verður áfram sem nemur 40% af almennu leikskólagjaldi. Systkinaafsláttur verður óbreyttur.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða nýja gjaldskrá leikskóla í Garðabæ.
14
Tillögur að breyttu stjórnskipulagi Garðabæjar.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögum að breyttu stjórnskipulagi Garðabæjar.
Í tillögunum er m.a. lagt til að stofnað verði nýtt svið þjónustu og þróunar sem fái til sín tiltekin verkefni sem sinnt hefur verið að hálfu fjármála- og stjórnsýslusviðs og er miðað við að breytingin taki gildi 1. janúar 2024. Auglýst verði nýtt starf sviðsstjóra þjónustu- og þróunar og starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.
Sara Dögg Svanhildardóttir tók til máls.
Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.
Björg Fenger, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að breyttu stjórnskipulagi Garðabæjar sem felur í sér nýtt skipurit, stofnun nýs sviðs þjónustu og þróunar, breytingar á verkefnum fjármála- og stjórnsýslusviðs og að auglýst verði störf sviðsstjóra viðkomandi sviða. Þá samþykkir bæjarstjórn tillögu um að heiti fjölskyldusviðs verði breytt í velferðarsvið.
Fylgiskjöl
15
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2024 - Tillaga um álagningarhlutfall útsvars.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um álagningu útsvars á árinu 2024.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 14,48% á tekjur manna á árinu 2024 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna. Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2023 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.“
Sara Dögg Svanhildardóttir tók til máls.
Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.
Björg Fenger, tók til máls.
Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls.
Tillagan samþykkt samhljóða.