Beint í efni

Tillögur að breyttu stjórnskipulagi Garðabæjar.

Málsnúmer 2308615

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

16. (931). fundur

Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir tillögum að breyttu stjórnskipulagi Garðabæjar.

Í tillögunum er m.a. lagt til að stofnað verði nýtt svið þjónustu og þróunar sem fái til sín tiltekin verkefni sem sinnt hefur verið að hálfu fjármála- og stjórnsýslusviðs og er miðað við að breytingin taki gildi 1. janúar 2024. Auglýst verði nýtt starf sviðsstjóra þjónustu- og þróunar og starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs.

Sara Dögg Svanhildardóttir tók til máls.

Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju.

Guðfinnur Sigurvinsson, tók til máls.

Sara Dögg Svanhildardóttir, tók til máls að nýju.

Gunnar Valur Gíslason, tók til máls.

Björg Fenger, tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu að breyttu stjórnskipulagi Garðabæjar sem felur í sér nýtt skipurit, stofnun nýs sviðs þjónustu og þróunar, breytingar á verkefnum fjármála- og stjórnsýslusviðs og að auglýst verði störf sviðsstjóra viðkomandi sviða. Þá samþykkir bæjarstjórn tillögu um að heiti fjölskyldusviðs verði breytt í velferðarsvið.

Fylgiskjöl

Bæjarráð Garðabæjar

02

43.(2096). fundur

Lögð fram greinargerð ARCUR varðandi úttekt á stjórnskipulagi Garðabæjar ásamt tillögum í níu töluliðum.

Í tillögunum er m.a. lagt til að stofnað verði nýtt svið þjónustu og þróunar sem fái til sín tiltekin verkefni sem sinnt hefur verið að hálfu fjármála- og stjórnsýslusviðs og er miðað við að breytingin taki gildi 1. janúar 2024. Auglýst verði nýtt starf sviðsstjóra þjónustu- og þróunar og starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs þar sem bæjarritari sem gegnt hefur því starfi mun láta af störfum í lok febrúar.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögur nr. 1-5. Tillögurnar fela í sér nýtt skipurit, stofnun nýs sviðs þjónustu og þróunar, breytingar á verkefnum fjármála- og stjórnsýslusviðs og að auglýst verði störf sviðsstjóra viðkomandi sviða. Þá samþykkir bæjarráð að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu nr. 9 um að heiti fjölskyldusviðs verði breytt í velferðarsvið.

Tillögur nr. 6, 7 og 8 koma til afgreiðslu síðar. Tillaga nr. 6 um nýtt stöðugildi bæjarlögmanns mun koma til afgreiðslu þegar nýr sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs hefur tekið til starfa. Tillögur nr. 7 og 8 lúta að innra skipulagi sem verða innleiddar með nýjum sviðsstjórum stoðsviða, sviðsstjórum fagsviða og bæjarstjóra sem liður í bættu verk- og vinnulagi á bæjarskrifstofum og koma til kynningar í bæjarráði.

Bæjarráð Garðabæjar

03

42.(2095). fundur

Á fund bæjarráð kom Arnar Pálsson, ráðgjafi hjá ARCUR og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum og tillögum í drögum að greinargerð um úttekt á stjórnskipulagi Garðabæjar. Gert er ráð fyrir að endanleg greinargerð verði lögð fram á fundi bæjarráðs Garðabæjar 14. nóvember nk. og til afgreiðslu á fundi bæjarstjórnar 16. nóvember nk.

Inga Þóra Þórisdóttir, mannauðsstjóri sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Að lokinni kynningu ráðgjafa viku embættismenn af fundi við umfjöllun um málið.

Bæjarráð Garðabæjar

04

38. (2091). fundur

Á fund bæjarráðs komu Arnar Pálsson og Þröstur Sigurðsson, ráðgjafar frá ARCUR og gerðu grein fyrir framgangi úttektar á stjórnskipulagi Garðabæjar. Fram kom að ráðgjafar hafa tekið viðtöl við sviðsstjóra og deildarstjóra á fjármála- og stjórnsýslusviði og haldið vinnufund með öllum starfsmönnum. Gert er ráð fyrir að niðurstöður úttektarinnar geti legið fyrir í lok október.

Bæjarráð Garðabæjar

05

32. (2085). fundur

Bæjarstjóri kynnti tillögu um að leita til ARCUR ehf. varðandi ráðgjöf um úttekt á stjórnskipulagi Garðabæjar með það að markmiði að rýna virkni stjórnskipulags Garðabæjar með áherslu á stoðþjónustu og meta þörf fyrir breytingar. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að greinargerð um niðurstöður liggi fyrir um miðjan október 2023.

Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri gangi til samninga við ARCUR ehf. um ráðgjöf vegna rýni á stjórnskipulagi Garðabæjar.

Fylgiskjöl