Beint í efni

43.(2096). fundur

14.11.2023
Bæjarráð Garðabæjar

43.(2096). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

14.11.2023

Kl. 08:00 - 09:45

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Gunnar Valur Gíslason - varaformaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varamaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - varamaður
  • Sara Dögg Svanhildardóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri fjölskyldusviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 2311260

01

Jarðhræringar á Reykjanesi - neyðarstig Almannavarna vegna rýminga á Grindavíkursvæðinu.

Lögð fram fundargerð neyðarstjórnar Garðabæjar frá 12. nóvember 2023 þar sem jarðhræringar á Reykjanesi voru á dagskrá. Í fundargerðinni kemur fram að haldnir hafa verið fundir með fulltrúum sveitarfélaga til að fara yfir hvernig brugðist verður við að veita Grindvíkingum aðstoð til skamms tíma og til lengri tíma. Ræddir voru þeir möguleikar sem geta verið í boði í Garðabæ t.d. hvað varðar skólahald og íþróttastarf barna.

Almannavarnir höfuðborgarsvæðisins (AHS) hafa hafið undirbúning í samstarfi við sveitarfélögin að undirbúa vinnu við að aðstoða íbúa Grindavíkur m.a. með því að koma grunnskólabörnum úr Grindavík í skóla og frístundastarf á höfuðborgarsvæðinu.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundum fulltrúa sveitarfélaga og mögulegum viðbrögðum við að aðstoða íbúa Grindavíkur.

Málsnúmer 2307150

02

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2024 (2024-2027).

Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu útsvars.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 14,48% á tekjur manna á árinu 2024 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna. Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2023 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.“

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Lagt fram yfirlit yfir ábendingar sem borist hafa fá íbúum varðandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2024

Bæjarstjóri fór yfir helstu atriði og dagsetningar varðandi vinnu við fjárhagsáætlun fram að seinni umræðu í bæjarstjórn sem er fyrirhuguð 7. desember nk.

Málsnúmer 2310187

03

Litlatún 1 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Orkunni IS, ehf. kt. 680319-0730, leyfi fyrir byggingu spennistöðvar á lóðinni við Litlatún 1.

Málsnúmer 2309448

04

Sunnuvellir 2 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ingibjörgu Guðrúnu Jafetsdóttur, kt. 030760-3609, leyfi til að byggja hesthús á lóðinni við Sunnuvelli 2.

Málsnúmer 2305173

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Keldugötu 5.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga vegna tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna stækkunar lóðarinnar við Keldugötu 5. Lagt er til að kvöð verði sett um trjágróður á milli stoðveggja á lóðamörkum og kvöð um að innkeyrsla verði brotin upp með gróðri

Grenndarkynna skal tillöguna íbúum og eigendum að Keldugötu 2, 3, 4 og 7 og Víkurgötu 10 og 12.

Málsnúmer 2311065

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á skipulagi Kjóavalla vegna byggingareits fyrir vatnsmiðlunargeymi á lóðinni við Landsenda 31.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla vegna byggingarreits fyrir vatnsmiðlunargeymi á lóðinni við Landsenda 31 í Kópavogi ásamt því að fella niður heimild fyrir fjarskiptamastri. Um er að ræða sameiginlegt deiliskipulag Garðabæjar og Kópavogsbæjar fyrir hesthúsasvæðið á Kjóavöllum.

Skipulagsráð Kópavogsbæjar samþykkti á fundi 6. nóvember 2023 að vísa tillögu um auglýsingu tillögunnar til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2310471

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Vinastræti 1-3 (Urriðaholtsskóli).

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðar fyrir spennustöð innan lóðar Urriðaholtsskóla við Vinastræti 1-3 og breytingu á byggingarreit skólabyggingar.

Málsnúmer 2310097

08

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts og Háholts vegna lóðanna við Vinastræti 20-28.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Vinastræti 22-28. Í tillögunni felst að lóðum Vinastrætis 20-26 og Vinastrætis 28 er skipt upp í þrjár lóðir. Vinastræti 20 - 24 lóð fyrir atvinnustarfsemi, Vinastræti 26 bílastæðalóð og Vinastræti 28 lóð fyrir menningarstarfsemi.

Lóð Vinastrætis 28 minnkar. Heimilað heildarbyggingarmagn er óbreytt en byggingarmagn ofanjarðar eykst lítillega og byggingarreitur og skilmálar breytast til samræmis við verðlaunatillögu í samkeppni um nýtt regluheimili Oddfellow.

Lóð Vinastrætis 20-26 minnkar og fær nýtt lóðanúmer Vinastræti 20-24. Hluti byggingarreita á lóð eru felldir niður og byggingarreitur við lóðamörk til suðausturs breytist lítillega.

Afmörkuð er ný bílastæðalóð Vinastræti 26. Bílastæði á bílastæðalóð eru samnýtt af lóðunum Vinastræti 20-24 og Vinastræti 28.

Bílastæðakrafa á lóðum breytist og verður 1 stæði fyrir hverja 50m² í atvinnuhúsnæði innan lóðar. Með samnýtingu bílastæða á bílastæðalóð næst áfram krafa um 1 stæði fyrir hverja 35 m² af atvinnuhúsnæði. Mismunandi starfsemi er á lóðunum, þar sem Vinastræti 22-26 nýtir bílastæðin aðallega á daginn en bílastæðaþörf Vinastrætis 28 er mest eftir að vinnutíma lýkur, sem gerir samnýtingu ákjósanlegan kost.

Málsnúmer 2307119

09

Tillögur um betra starfsumhverfi leikskóla í Garðabæ.

Tillögur að betra starfsumhverfi leikskóla sem voru til meðferðar á fundi bæjarráðs 7. nóvember eru teknar fyrir að nýju.

Fram komu upplýsingar um að tillögurnar hafa verið kynntar stjórnendum og starfsmönnum leikskólanna og framundan eru almennar kynningar fyrir foreldra í framhaldi af afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir breyttri tillögu að gjaldskrá þar sem leikskólagjald verði óbreytt krónutala fyrir 38 klst. á viku miðað við núverandi gjaldskrá eins og í fyrri tillögu. Leikskólagjöld samkvæmt gjaldskrá hækka fyrir næstu tvær klst. (39 og 40) en mun minna en samkvæmt tillögu sem kynnt var á fundi bæjarráðs 7. nóvember sl. Tillagan er óbreytt hvað varðar lækkun leikskólagjalda frá og með 37 klst. miðað við núverandi gjaldskrá.

Bæjarráð leggur áherslu á að fjölskyldur fái sanngjarna aðlögun að breyttum reglum um vistun og að áhrif breytinga á viðkvæma hópa verði metin sérstaklega.

Bæjarráð vísar tillögu að gjaldskrá leikskóla til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2309016

10

Greinargerð ÍTG um hvatapeninga og tillaga að viðauka við úthlutunarreglur varðandi tekjutengingu viðbótar hvatatapeninga á árinu 2024.

Lögð fram greinargerð íþrótta- og tómstundaráðs um hvatapeningakerfi Garðabæjar og mögulegar útfærslur, dags. í nóvember 2023.

Greinargerðinni fylgir tillaga um að tekin verði upp tekjutenging hvatapeninga á árinu 2024. Sem dæmi um útfærslu kemur fram að fjölskyldur sem eru undir skilgreindum viðmiðunartekjum eða uppfylla sambærileg skilyrði og gilda um afslátt leikskólagjalda, öðlist rétt á 15.000 kr. viðbótargreiðslu hvatapeninga eða 70.000 kr. heildargreiðslu hvatapeninga á hvert barn í þeirra forsjá í stað 55.000 kr. Lagt er til að fræðslu- og menningarsviði verði falið að semja nánari reglur og koma með tillögur að útfærslu á umsóknarferli.

Bæjarráð vísar greinargerðinni til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024.

Málsnúmer 2311138

11

Bréf Siglingaklúbbsins Vogs varðandi uppbyggingu á siglingaaðstöðu ásamt kaupum á nauðsynlegum búnaði, dags. 03.11.23.

Í bréfinu er farið fram á stuðning Garðabæjar við uppbyggingu á siglingarðastöðu ásamt kaupum á búnaði til að efla starfsemi klúbbsins.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2024.

Málsnúmer 2311132

12

Tilkynning frá innviðaráðuneytinu varðandi frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum sem varðar tímabundnar uppbyggingarheimildir, dags. 06.11.23.

Í tilkynningunni kemur fram að birt hafi verið í samráðsgátt frumvarp til laga um breytingu á skipulagslögum. Í frumvarpinu er lagt til að í þeim tilvikum þegar framkvæmdir við uppbyggingu hafa ekki hafist innan sjö ára frá birtingu samþykkts deiliskipulags skuli sveitarstjórn, áður en ákvörðun er tekin um samþykkt byggingaráforma, meta hvort þörf er á að skipulagið verði endurskoðað í heild eða að hluta.

Málsnúmer 2310064

13

Drög að tillögu að breytingu á samþykktum Garðabæjar nr. 1182/2022 - Viðauki IV.

Á fund bæjarráðs komu Sigríður Logadóttir, persónuverndarfulltrúi og lögfræðingur og Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði. Gerðu þær grein fyrir tillögu að breytingu á samþykktum Garðabæjar er varðar viðauka IV um embættisafgreiðslur sviðsstjóra fjölskyldusviðs ásamt því að gera grein fyrir drögum að reglum um stuðningsþjónustu, drögum að reglum um stoðþjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir og drögum að reglum um notendasamninga, sbr. dagskrárliðir 14, 15 og 16.

Bæjarráð vísar tillögu að breytingu á samþykktum Garðabæjar ásamt viðauka IV til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

Málsnúmer 2311256

14

Drög að reglum um stuðningsþjónustu.

Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Sigríður Logadóttir, persónuverndarfulltrúi og lögfræðingur og Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði, sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 2311256

15

Drög að reglum um stoðþjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Sigríður Logadóttir, persónuverndarfulltrúi og lögfræðingur og Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði, sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 2311257

16

Drög að reglum um notendasamninga.

Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Sigríður Logadóttir, persónuverndarfulltrúi og lögfræðingur og Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur á fjölskyldusviði, sátu fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.

Málsnúmer 2308615

17

Úttekt á stjórnskipulagi Garðabæjar 2023.

Lögð fram greinargerð ARCUR varðandi úttekt á stjórnskipulagi Garðabæjar ásamt tillögum í níu töluliðum.

Í tillögunum er m.a. lagt til að stofnað verði nýtt svið þjónustu og þróunar sem fái til sín tiltekin verkefni sem sinnt hefur verið að hálfu fjármála- og stjórnsýslusviðs og er miðað við að breytingin taki gildi 1. janúar 2024. Auglýst verði nýtt starf sviðsstjóra þjónustu- og þróunar og starf sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs þar sem bæjarritari sem gegnt hefur því starfi mun láta af störfum í lok febrúar.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögur nr. 1-5. Tillögurnar fela í sér nýtt skipurit, stofnun nýs sviðs þjónustu og þróunar, breytingar á verkefnum fjármála- og stjórnsýslusviðs og að auglýst verði störf sviðsstjóra viðkomandi sviða. Þá samþykkir bæjarráð að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu nr. 9 um að heiti fjölskyldusviðs verði breytt í velferðarsvið.

Tillögur nr. 6, 7 og 8 koma til afgreiðslu síðar. Tillaga nr. 6 um nýtt stöðugildi bæjarlögmanns mun koma til afgreiðslu þegar nýr sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs hefur tekið til starfa. Tillögur nr. 7 og 8 lúta að innra skipulagi sem verða innleiddar með nýjum sviðsstjórum stoðsviða, sviðsstjórum fagsviða og bæjarstjóra sem liður í bættu verk- og vinnulagi á bæjarskrifstofum og koma til kynningar í bæjarráði.