Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Vinastræti 1-3.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
6. (2107). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar við Vinastræti 1-3. Um er að ræða breytingu á lögun byggingarreits og afmörkuðum byggingarreit fyrir spennistöð. Tillagan var auglýst og bárust engar athugasemdir. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun og auglýst í B- deild Stjórnartíðinda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Vesturhluta sem nær til lóðarinnar Vinastræti 1-3 sem er lóð Urriðaholtsskóla að lokinni auglýsingu. Í deiliskipulagsbreytingunni felst að form byggingarreits breytist. Afmörkuð er lóð ásamt byggingarreit fyrir spennistöð. Skilmálar fyrir spennistöðvar 4.7.44 í skilmálahefti gilda fyrir lóð spennistöðvar. Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt sem breyting deiliskipulags Vesturhluta Urriðaholts í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
16. (931). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðar fyrir spennustöð innan lóðar Urriðaholtsskóla við Vinastræti 1-3 og breytingu á byggingarreit skólabyggingar“. (Mál nr. 2310471)
Bæjarráð Garðabæjar
04
43.(2096). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðar fyrir spennustöð innan lóðar Urriðaholtsskóla við Vinastræti 1-3 og breytingu á byggingarreit skólabyggingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
13. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðar Urriðaholtsskóla (Vinastræti 1-3).
Í deiliskipulagsbreytingunni felst að form byggingarreits breytist.
Afmörkuð er lóð ásamt byggingarreit fyrir spennistöð. Skilmálar fyrir spennistöðvar 4.7.44 í skilmálahefti gilda fyrir lóð spennistöðvar.
Að öðru leyti gilda gildandi deiliskipulagsskilmálar.
Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.