Beint í efni

13. fundur

09.11.2023
Skipulagsnefnd Garðabæjar

13. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

09.11.2023

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - verkefnastjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Þar sem að aðalmaður og varamaður Viðreisnar gátu ekki sótt fundinn sat Rakel Steinberg Sölvadóttir fundinn fyrir þeirra hönd sem gestur.
Einnig gátu hvorki áheyrnarfulltrúi Framsóknarflokksins né varaáheyrnarfulltrúi mætt og sat Einar Örn Ævarsson fundinn fyrir þeirra hönd sem gestur.
Formaður skipulagsnefndar lagði til við nefndina að hún féllist á að bæta við einu máli sem ekki fylgdi fundarboði og er það 12.mál á dagskrá fundarins. Skipulagsnefnd samþykkti það.
Vegna tímaskorts var málsliðum 14 til 18 frestað til næsta fundar.

Dagskrá

Málsnúmer 1405080

01

Móar, endurskoðað deiliskipulag

Bergdís Bjarnadóttir arkitekt hjá Nordic arkitektum og Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir skipulagsfræðingur hjá Eflu gerðu grein fyrir mótun tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi Móa og greiningu á umferðaröryggi.

Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði.

Málsnúmer 2303188

02

Sjáland Pikkolo - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Elín Ríta Sveinbjörnsdóttir skipulagsfræðingur hjá Eflu gerði grein fyrir umferðargreiningu á valkostum að staðsetningu afhendingarstöðvar og grenndargámastöðvar nærri bílastæði Sjálandsskóla.

Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.

Málsnúmer 2208310

03

Bæjargil, endurskoðað deiliskipulag

Einar Ingimarsson arkitekt gerði grein fyrir drögum að tillögu endurskoðaðs deiliskipulags Bæjargils. Tillaga nær ekki til atvinnulóða við Gilsbúð sem verður hluti af deiliskipulagi athafnasvæðis í Búðum. (Iðnbúð,Smiðsbúð,Gilsbúð)

Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.

Málsnúmer 2311113

04

Hæðir, endurskoðað deiliskipulag.

Einar Ingimarsson arkitekt gerði grein fyrir drögum að tillögu endurskoðaðs deiliskipulags Bæjargils 2.áfanga (Hæðahverfi).

Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.

Málsnúmer 2310097

05

Vinastræti 22-28 - Deiliskipulag

Stefán Veturliðason og Steindór Gunnlaugsson greindu frá áformum Oddfellowreglunnar um byggingu Regluheimilis við Vinastræti á háholti Urriðaholts.

Kristján Örn Kjartansson arkitekt hjá Krads arkitektum og Guðni Valberg arkitekt hjá Tripoli arkitektum gerðu grein fyrir vinningstillögu sinni í samkeppni um regluheimili við Vinastræti.

Björn Guðbrandsson arkitekt hjá Arkís gerði grein fyrir tillögu að breytingu deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 3 sem nær til lóðanna Vinastræti 20-26 og 28.

Í breytingartillögunni felst að lóðum Vinastrætis 20-26 og Vinastrætis 28 er skipt upp í þrjár lóðir; Vinastræti 20-24 (lóð fyrir atvinnustarfsemi), Vinastræti 26 (bílastæðalóð) og Vinastræti 28 (lóð fyrir menningarstarfsemi).

Lóð Vinastrætis 28 minnkar. Heildar heimilað byggingamagn er óbreytt en byggingarmagn ofanjarðar eykst lítillega og byggingarreitur og skilmálar breytast til samræmis við verðlaunatillögu í samkeppni um nýtt heimili Oddfellowreglunnar.

Lóð Vinastrætis 20-26 minnkar og fær nýtt lóðanúmer Vinastræti 20-24. Hluti byggingarreita á lóð eru felldir niður og byggingarreitur við lóðamörk til suðausturs breytist lítillega.

Afmörkuð er ný bílastæðalóð Vinastræti 26. Bílastæði á bílastæðalóð eru samnýtt af lóðum Vinastrætis 20-24 og Vinastræti 28. Bílastæðakrafa á lóðum breytist og verður 1 stæði fyrir hverja 50m² í atvinnuhúsnæði innan lóðar. Með samnýtingu bílastæða á bílastæðalóð næst áfram krafa um 1 stæði fyrir hverja 35 m² af atvinnuhúsnæði. Mismunandi starfsemi er á lóðunum, þar sem Vinastræti 22-26 nýtir bílastæðin aðallega á daginn en bílastæðaþörf Vinastrætis 30 er mest eftir að vinnutíma lýkur, sem gerir samnýtingu ákjósanlegan kost.

Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 2310471

06

Deiliskipulag - Vinastræti 1-3 (Urriðaholtsskóli)

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðar Urriðaholtsskóla (Vinastræti 1-3).

Í deiliskipulagsbreytingunni felst að form byggingarreits breytist.

Afmörkuð er lóð ásamt byggingarreit fyrir spennistöð. Skilmálar fyrir spennistöðvar 4.7.44 í skilmálahefti gilda fyrir lóð spennistöðvar.

Að öðru leyti gilda gildandi deiliskipulagsskilmálar.

Skipulagsnefnd vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Baldur Ó.Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 2311147

07

Vorbraut 1, br á dsk Hnoðraholts norður.

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur verði skilgreindur fyrir opið bílskýli og reiðhjólaskýli við lóðarmörk að Vorbraut 3. Bílageymsla fyrir tvo bíla verði á jarðhæð og að íbúð fjölgi um eina úr 6 í 7.

Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði. Athuga skal heildaráhrif og fordæmisgildi breytingartillögunnar.

Málsnúmer 2311111

08

Vorbraut 3 og 7 - fjölgun íbúða - Deiliskipulag

Lögð fram tillaga að útfærslu á fjölbýlishúsum að Vorbraut 3 og 7 þar sem gert er ráð fyrir bílakjallara og fjölgun íbúða um 4 til 5 í hvoru húsi.

Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði. Athuga skal heildaráhrif og fordæmisgildi breytingartillögunnar.

Málsnúmer 2305174

09

Mávanes 22 - stækkun á byggingarreit

Lögð fram tillaga lóðarhafa að breytingu á deiliskipulagi Arnarness sem nær til lóðarinnar Mávanes 22. Gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits til suðurs.

Tillögu vísað til umsagnar deiliskipulagsráðgjafa, Hornsteina.

Málsnúmer 2305173

10

Keldugata 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram tillaga að útfærslu lóðar og tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem gerir ráð fyrir stækkun lóðar að grænu svæði.

Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar.

Með vísan í umsögn leggur skipulagsnefnd til að sú breyting verði gerð á tillögunni að ákvæði verði um gróður á lóð á milli stoðveggja og ákvæði verði um að bílastæði séu brotin upp með gróðri.

Skipulagsnefnd metur tillöguna með ofangreindum breytingum sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Keldugötu

2,3, 4 og 7 sem og Víkurgötu 10 og 12.

Málsnúmer 2310248

11

Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 - Skotæfingasvæði á Álfsnesi. Drög að tillögu sbr. 2. mgr. 30 gr. skipulagslaga

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.

Málsnúmer 2311065

12

Kjóavellir - dsk.br. - Nýr miðlunargeymir

Lögð fram tillaga umhverfissviðs Kópavogsbæjar að breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla fyrir lóðina nr. 31 við Landsenda sem er innan lögsögu Kópavogsbæjar en deiliskipulagið nær til beggja sveitarfélaga.

Í breytingunni felst að komið verði fyrir nýjum byggingarreit um 38m að þvermáli fyrir nýjan 4.000 m³ miðlunargeymi norðan megin við núverandi vatnstank. Fyrirhugaður miðlunargeymir mun vera að sömu stærð og hæð og núverandi vatnstankur. Lóð stækkar til norðvesturs um 2.125 m², fer úr 2.134 m² í 4.258 m², og verður girt af með 2m hárri mannheldri girðingu á lóðarmörkum. Núverandi aðkoma helst óbreytt frá Landsenda en fyrirkomulag bílastæða breytist. Fallið er frá lóð fyrir fjarskiptamastur en gert verður ráð fyrir lóð fyrir fjarskiptamastur í deiliskipulagi Vatnsendahlíðar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar vísar breytingartillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsráð Kópavogsbæjar vísaði tillögunni til auglýsingar á fund sínum þann 6.november.

Málsnúmer 2203672

13

Erindi um að koma að uppbyggingu íbúðarbyggaðr á Hleinum.

Frestað til næsta fundar.

Málsnúmer 2311063

14

Gilsbúð 7 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Frestað til næsta fundar.

Málsnúmer 2306582

15

Þórukot - Umsókn um byggingarleyfi

Frestað til næsta fundar.

Málsnúmer 2302465

16

Akrakot - Fjarskipti - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs

Frestað til næsta fundar.

Málsnúmer 2302193

17

Ásahverfi, farsímasamband.

Frestað til næsta fundar.