Beint í efni

Ásahverfi, farsímasamband.

Málsnúmer 2302193

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

2. (954). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 23. janúar 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda að lokinni auglýsingu ásamt þeirri athugasemd og umsögnum sem borist hafa. Tillagan gerir ráð fyrir staðsetningu farsímamasturs við göngubrú yfir Hafnarfjarðarveg. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna óbreytta sem breytingu deiliskipulags Ása og Grunda í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

02

4. (2152). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 23. janúar 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda að lokinni auglýsingu ásamt þeirri athugasemd og umsögnum sem borist hafa. Tillagan gerir ráð fyrir staðsetningu farsímamasturs við göngubrú yfir Hafnarfjarðarveg. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna óbreytta sem breytingu deiliskipulags Ása og Grunda í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

1. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda að lokinni auglýsingu ásamt þeirri athugasemd og umsögnum sem borist hafa. Tillagan gerir ráð fyrir staðsetningu farsímamasturs við göngubrú yfir Hafnarfjarðarveg. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem breytingu deiliskipulags Ása og Grunda í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

17. fundur

Lögð fram að lokinni auglýsingu tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir staðsetningu farsímasendis við enda göngubrúar yfir Hafnarfjarðarveg til móts við Breiðás. Umsagnir sem borist hafa lagðar fram.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

15. (948). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar vegna tillögu að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir staðsetningu farsímasendis við Ásabraut ásamt athugasemdum sem borist hafa. Skipulagsstjóri og sviðsstjóri umhverfissviðs gerðu skipulagsnefnd grein fyrir fundum með Mílu og Íslandsturnum vegna málsins. Skipulagsnefnd lagði til að tillögunni yrði breytt og gert yrði ráð fyrir jafn háum sendi við norðurenda göngubrúar yfir Hafnarfjarðarveg. Skipulagsnefnd vísaði tillögu þess efnis til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

06

38. (2139). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar vegna tillögu breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir staðsetningu farsímasendis við Ásabraut ásamt athugasemdum sem borist hafa.
Skipulagsstjóri og sviðsstjóri umhverfissviðs gerðu skipulagsnefnd grein fyrir fundum með Mílu og Íslandsturnum vegna málsins.
Skipulagsnefnd lagði til að tillögunni yrði breytt og gert yrði ráð fyrir jafn háum sendi við norðurenda göngubrúar yfir Hafnarfjarðarveg.
Skipulagsnefnd vísaði tillögu þess efnis til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

13. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir staðsetningu farsímasendis við Ásabraut ásamt athugasemdum sem borist hafa.
Skipulagsstjóri og sviðsstjóri umhverfissviðs gerðu grein fyrir fundum með Mílu og Íslandsturnum vegna málsins.
Skipulagsnefnd leggur til að tillögu verði breytt og gert verði ráð fyrir jafn háum sendi við norðurenda göngubrúar yfir Hafnarfjarðarveg.
Skipulagsnefnd vísar tillögu þess efnis til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

12. fundur

Sviðstjóri umhverfissviðs og skipulagsstjóri gerðu grein fyrir samtali við farsímafyrirtækin um möguleika á öðrum útfærslum sem hafa það að markmiði að bæta farsímasamband í austanverðu Hraunsholti en um leið að draga úr neikvæðum áhrifum á umhverfið.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) að lokinni auglýsingu. Tillagan gerir ráð fyrir staðsetningu farsímasendamasturs. Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram. Tillögu og athugasemdum vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

10

10. (943). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

11

9. (942). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

12

21. (2122). fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis). Tillagan gerir fyrir staðsetningu 18 metra farsímamasturs við Ásabraut, á opnu svæði við gatnamót Ásabrautar og Stóráss.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

7. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir að staur fyrir farsímastenda við Ásabraut, á opnu svæði við gatnamót Ásabrautar við Stórás.
Hæð staursins yrði allt að 18 metrum til þess að þjóna austurhluta Ásahverfis. Með því móti geta þeir aðilar sem reka farsímaþjónustu nýtt sér aðstöðuna.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

14

5. fundur

Vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

15

17. (932). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna staðsetningar á 12 metra farsímamastri á opnu svæði vestan við Stórás og austan Ásabrautar. Vekja skal athygli á auglýsingunni með dreifibréfi í aðliggjandi hús. (Mál nr. 2302193)

Bæjarráð Garðabæjar

16

45.(2098). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hraunsholts vestra (Ásahverfis) vegna staðsetningar á 12 metra farsímamastri á opnu svæði vestan við Stórás og austan Ásabrautar. Vekja skal athygli á auglýsingunni með dreifibréfi í aðliggjandi hús.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

17

14. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir staðsetningu 12 metra hás staurs fyrir farsímasenda á opnusvæði vestan við Stórás og austan og norðan við Ásabraut.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010. Vekja skal sérstaklega athygli á auglýsingunni með dreifibréfi í aðliggjandi hús. Skýringarmynd sem sýnir útlit og umfang staursins skal vera hluti af grenndarkynntum gögnum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

18

13. fundur

Frestað til næsta fundar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

19

11. fundur

Tekið fyrir ástand farsímasambands efst í Ásahverfi. Vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

20

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir lóð fyrir fjarskiptamastur (gsm endurvarp) austan við Brekkuás 2.
Vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.