13. fundur
13. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
11.10.2024
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Kjartan Vilhjálmsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - varaáheyrnarfulltrúi
- Ingvar Arnarson - varamaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi
Hrönn Hafliðadóttir verkefnisstjóri og Þráinn Hauksson skipulagsráðgjafi kynntu drög að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis sem sett er fram í kafla 4.2 í greinargerð og á uppdráttum. Einnig voru kynnt drög að hjólreiðastefnu Garðabæjar.
Skipulagsnefnd vísar drögunum til umfjöllunar og umsagnar í umhverfisnefnd, íþrótta-og tómstundaráði, skólanefnd grunnskóla, velferðarráði, öldungaráði, ungmennaráði og samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.
02
Breyting á vaxtarmörkum svæðisskipulags í landi Garðabæjar. Aðal- og svæðisskipulagsbreyting.
Skipulagsstjóri fór yfir valkosti varðandi nálgun verkefnisins og næstu skref.
Vísað til áframhaldandi mótunar hjá skipulagsstjóra og skipulagsráðgjafa.
03
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 8.Arnarnesháls/Arnarland
Formaður skipulagsnefndar og skipulagsstjóri gerðu nefndinni grein fyrir þeirri vinnu sem átt hefur sér stað á tillögunni í ljósi þeirra athugasemda sem bárust við auglýsta tillögu.
Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá umhverfissviði, skipulagsráðgjafa og þróunaraðila.
04
Arnarland. Deiliskipulag
Formaður skipulagsnefndar og skipulagsstjóri gerðu nefndinni grein fyrir þeirri vinnu sem átt hefur sér stað á tillögunni í ljósi þeirra athugasemda sem bárust við auglýsta tillögu.
Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá umhverfissviði, skipulagsráðgjafa og þróunaraðila.
05
Hnoðraholt - Háholt - Aðalskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að verkefnislýsingu fyrir breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til svæðis á háholti Hnoðraholts. Þeir landnotkunarreitir sem tillaga nær til eru 4.04 Íb (Hnoðraholt suður), 4.18 Op (Hnoðraholt-Vífilsstaðir), 4.05 S (Hnoðraholt-leikskóli) og 4.22 I (Hnoðraholt veitumannvirki).
Skipulagsnefnd samþykkir verkefnislýsinguna í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skal hún auglýst á vef Garðabæjar, á vef skipulagsgáttar og send umsagnaraðilum.
06
Hnoðraholt-háholt, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að verkefnislýsingu fyrir deiliskipulag á svæði efst á Hnoðraholti. Verkefnislýsingin er sameiginleg fyrir breytingu á aðalskipulagi sem nær til sama svæðis.
Skipulagsnefnd samþykkir verkefnislýsinguna í samræmi við 11. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skal hún auglýst á vef Garðabæjar og send umsagnaraðilum.
07
Hátún 3 - Fyrirspurn til tækni- og umhverfissviðs
Lögð fram umsókn um framlengingu stöðuleyfis vegna geymslugáms sem tengist framkvæmdum á lóð einbýlishússins og er staðsettur innan lóðamarka norðanmegin við götu. Ekki er gert ráð fyrir gangstétt við götuna að sunnanverðu, þ.e. með norðurmörkum lóðarinnar.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við framlengingu á stöðuleyfi til skamms tíma.
08
Ásahverfi, farsímasamband.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásahverfis) sem gerir ráð fyrir staðsetningu farsímasendis við Ásabraut ásamt athugasemdum sem borist hafa.
Skipulagsstjóri og sviðsstjóri umhverfissviðs gerðu grein fyrir fundum með Mílu og Íslandsturnum vegna málsins.
Skipulagsnefnd leggur til að tillögu verði breytt og gert verði ráð fyrir jafn háum sendi við norðurenda göngubrúar yfir Hafnarfjarðarveg.
Skipulagsnefnd vísar tillögu þess efnis til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
09
Miðbær, Svæði I og II, Garðatorg 1, dsk breyting
Skipulagsstjóri kynnti drög að verkefnislýsingu vegna tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
10
Birkiás 1 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um staðsetningu smáhýsis á lóð að lokinni grenndarkynningu. Athugasemd barst frá eigendum aðliggjandi lóðar. Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
11
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 12
11.1 - 2410038 - Framkvæmdir - Stofnlögn hitaveitu milli Hraunhóla og Hraunholtslækjar
Fylgiskjöl
11.2 - 2409397 - Furulundur 9 - Umsókn um byggingarleyfi
Fylgiskjöl
11.3 - 2409278 - Vinastræti 28 - Umsókn um byggingarleyfi
Fylgiskjöl
12