Beint í efni

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi

Málsnúmer 2203422

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

4. (974). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

4. (974). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 12. febrúar 2026 varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis. Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á kafla 4.2 aðalskipulagsgreinargerðarinnar um stígakerfi. Svæðið sem tillagan nær til er allt land innan sveitarfélagsmarka Garðabæjar og miðar að því að skilgreina heildrænt og skilvirkt stígakerfi með öryggi og aðlaðandi umhverfi að leiðarljósi. Skilmálar tillögunnar eru ætlaðir til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar. Texti og myndir í kafla 4.2 um stígakerfi í greinargerð Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 munu verða felldir úr gildi og í staðinn komi endurskoðaður kafli um stígakerfið sem fram er settur í greinargerð framlagðrar tillögu sem kafli 2 "Breytingartillaga". Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

03

6. (2201). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 12. febrúar 2026 varðandi tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis. Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á kafla 4.2 aðalskipulagsgreinargerðarinnar um stígakerfi. Svæðið sem tillagan nær til er allt land innan sveitarfélagsmarka Garðabæjar og miðar að því að skilgreina heildrænt og skilvirkt stígakerfi með öryggi og aðlaðandi umhverfi að leiðarljósi. Skilmálar tillögunnar eru ætlaðir til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar. Texti og myndir í kafla 4.2 um stígakerfi í greinargerð Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 munu verða felldir úr gildi og í staðinn komi endurskoðaður kafli um stígakerfið sem fram er settur í greinargerð framlagðrar tillögu sem kafli 2 "Breytingartillaga".
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

3. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis. Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á kafla 4.2 aðalskipulagsgreinargerðarinnar um stígakerfi. Svæðið sem tillagan nær til er allt land innan sveitarfélagsmarka Garðabæjar og miðar að því að skilgreina heildrænt og skilvirkt stígakerfi með öryggi og aðlaðandi umhverfi að leiðarljósi. Skilmálar tillögunnar eru ætlaðir til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar. Texti og myndir í kafla 4.2 um stígakerfi í greinargerð Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 munu verða felldir úr gildi og í staðinn komi endurskoðaður kafli um stígakerfið sem fram er settur í greinargerð framlagðrar tillögu sem kafli 2 "Breytingartillaga".
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þráinn Hauksson frá Landslagi ehf gerði grein fyrir tillögunni.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

18. fundur

Þráinn Hauksson skipulagsráðgjafi hjá Landslagi ehf gerði grein fyrir mótun tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis.
Vísað í úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

15. fundur

Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerði grein fyrir tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis.
Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

8. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til ákvæða og umfjöllunar um stígakerfi í 4. kafla greinargerðar aðalskipulagsins sem fjallar um samgöngu- og þjónustukerfi að lokinni forkynningu í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Haldinn var kynningarfundur þann 2. apríl sl. Lagðar fram þær umsagnir sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

5. (957). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. mars 2025 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til ákvæða og umfjöllunar um stígakerfi í 4. kafla greinargerðar aðalskipulagsins sem fjallar um samgöngu- og þjónustukerfi. Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf. gerði grein fyrir tillögunni. Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á stígakerfi Garðabæjar og er áætluninni ætlað að vera til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar. Markmiðið er að til verði stefna um vistvænar samgöngur og uppbyggingu stígakerfisins í þágu útivistar og lýðheilsu og umhverfisverndar, með öryggi að leiðarljósi. Tillagan var sett fram í greinargerð í A4 formi með skýringarmyndum og uppdráttum. Tillagan hefur verið í mótun á umhverfissviði og hjá skipulagsráðgjafa. Verkefnisstjóri var Hrönn Hafliðadóttir fyrir hönd umhverfissviðs og Anna Kristín Guðmundsdóttir fyrir hönd Landslags ehf. Leitað var til almennings, félagasamtaka og stjórnkerfis bæjarins og kallað eftir hugmyndum og ábendingum. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til forkynningar í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal almennan kynningarfund á meðan á forkynningu stendur og stefnt er að því að hann verði haldinn 2. apríl nk.

Bæjarráð Garðabæjar

10

11. (2159). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. mars 2025 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til ákvæða og umfjöllunar um stígakerfi í 4. kafla greinargerðar aðalskipulagsins sem fjallar um samgöngu- og þjónustukerfi. Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf. gerði grein fyrir tillögunni. Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á stígakerfi Garðabæjar og er áætluninni ætlað að vera til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar. Markmiðið er að til verði stefna um vistvænar samgöngur og uppbyggingu stígakerfisins í þágu útivistar og lýðheilsu og umhverfisverndar, með öryggi að leiðarljósi.
Tillagan var sett fram í greinargerð í A4 formi með skýringarmyndum og uppdráttum.
Tillagan hefur verið í mótun á umhverfissviði og hjá skipulagsráðgjafa. Verkefnisstjóri var Hrönn Hafliðadóttir fyrir hönd umhverfissviðs og Anna Kristín Guðmundsdóttir fyrir hönd Landslags ehf. Leitað var til almennings, félagasamtaka og stjórnkerfis bæjarins og kallað eftir hugmyndum og ábendingum.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til forkynningar í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal almennan kynningarfund á meðan á forkynningu stendur og stefnt er að því að hann verði haldinn 2. apríl nk.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

5. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til ákvæða og umfjöllunar um stígakerfi í 4. kafla greinargerðar aðalskipulagsins sem fjallar um samgöngu- og þjónustukerfi. Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerði grein fyrir tillögunni. Viðfangsefni breytingartillögunnar er heildarendurskoðun á stígakerfi Garðabæjar og er áætluninni ætlað að vera til leiðbeiningar fyrir deiliskipulagsgerð, verkhönnun og uppbyggingu stíga í Garðabæ til framtíðar. Markmiðið er að til verði stefna um vistvænar samgöngur og uppbyggingu stígakerfisins í þágu útivistar og lýðheilsu og umhverfisverndar, með öryggi að leiðarljósi.
Tillagan er sett fram í greinargerð í A4 formi með skýringarmyndum og uppdráttum.
Tillagan hefur verið í mótun á umhverfissviði og hjá skipulagsráðgjafa. Verkefnisstjóri er Hrönn Hafliðadóttir fyrir hönd umhverfissviðs og Anna Kristín Guðmundsdóttir fyrir hönd Landslags ehf. Leitað hefur verið til almennings, félagasamtaka og stjórnkerfis bæjarins og kallað eftir hugmyndum og ábendingum.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal almennan kynningarfund á meðan á forkynningu stendur og stefnt er að því að hann verði haldinn 2. apríl nk.

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

12

33. fundur

Til kynningar er breyting á stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi út frá aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.

Kynntar voru breytingar á stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi út frá aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.

Velferðarráð Garðabæjar

13

8. fundur

Drög að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis lögð fram til kynningar.

Hrönn Hafliðadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála, kynnti drög að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis og svaraði spurningum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

14

21 (22-26). fundur

Þráinn stefnir á að koma inn í nefndina með kynningu vegna þess.
Einnig verður kynnt hjólreiðastefna Garðabæjar.

Þráinn Hauksson, skipulagsráðgjafi kynnti drög að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Drög að hjólreiðastefnu Garðabæjar kynnt. Umhverfisnefnd lýsir yfir ánægju sinni með drögin.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

15

13. fundur

Hrönn Hafliðadóttir verkefnisstjóri og Þráinn Hauksson skipulagsráðgjafi kynntu drög að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis sem sett er fram í kafla 4.2 í greinargerð og á uppdráttum. Einnig voru kynnt drög að hjólreiðastefnu Garðabæjar.
Skipulagsnefnd vísar drögunum til umfjöllunar og umsagnar í umhverfisnefnd, íþrótta-og tómstundaráði, skólanefnd grunnskóla, velferðarráði, öldungaráði, ungmennaráði og samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

16

7. fundur

Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf og Hrönn Hafliðadóttir verkefnisstjóri hjá Umhverfissviði kynntu drög að tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis í þéttbýli og þjónustukerfis.
Vísað til frekari úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

17

15 (22-26). fundur

Þráinn Hauksson hjá Landslagi ehf. kemur og heldur kynningu.

Þráinn Hauksson hjá Landslagi kynnti fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til 4.kafla greinargerðar sem tekur á stígakerfi og almenningssamgöngum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

18

2. fundur

Þráinn Hauksson hjá Landslagi ehf og Hrönn Hafliðadóttir verkefnisstjóri fóru yfir þær ábendingar sem borist hafa í gegnum Betri Garðabær.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa sem vinna nú að mótun breytingartillögu á Aðalskipulagsi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis og annarra þátta sem settir eru fram í 4.kafla greinargerðar aðalskipulagsins og fjallar um Samgöngu og þjónustukerfi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

19

9. fundur

Lögð fram lýsing fyrirhugaðrar breytingar á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til 4.kafla greinargerðar sem tekur á stígakerfi og almenningssamgöngum ásamt ábendingum og umsögnum sem borist hafa.
Í bókun skipulagsnefndar þann 22.maí sl vegna fráveitumála mælti skipulagsnefnd með að umfjöllun um fráveitumál yrði einnig hluti af aðalskipulagsbreytingu þessari og að leitað yrði ráðgjafar vegna þeirra.
Hrönn Hafliðadóttir verkefnisstjóri skipulagsmála gerði grein fyrir framlögðum umsögnum og ábendingum og ræddi hugmyndir um kynningu á vef Garðabæjar sem verður með gagnvirkum hætti.

Umsögnum og ábendingum vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

20

2. fundur

Kynning á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og almenningssamgöngur.

Anna Kristín Guðmundsdóttir, frá Landslagi, kynnti Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og almenningssamgöngur og svaraði fyrirspurnum.

Öldungaráð

21

2. fundur

Kynning á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og almenningssamgöngur.

Anna Kristín Guðmundsdóttir, frá Landslagi, kynnti Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og almenningssamgöngur.
Hrönn Hafliðadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála hjá Garðabæ, sat fundinn undir þessum dagskrárlið og svaraði fyrirspurnum. Stefnt er að kynningu á stígakerfinu fyrir félög eldri borgara í haust.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

22

9 (22-26). fundur

Anna Kristín Guðmundsdóttir, landslagsarkitekt og Hrönn Hafliðadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála kynntu skipulagslýsingu vegna breytingar á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 fyrir stígakerfi. Umhverfisnefnd er ánægð með vinnuna sem hefur verið unnin og fyrirhuguð samráð með hagsmunaaðilum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

23

6. (921). fundur

„Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030, sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða breytingu á stígakerfi samkvæmt 4. kafla greinargerðar aðalskipulags. Leita skal umsagnar hjá Skipulagsstofnun, umsagnaraðilum og kynna lýsinguna almenningi.“ (Mál nr. 2203422)

Bæjarráð Garðabæjar

24

14. (2067). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar vegna breytinga á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030, sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um er að ræða breytingu á stígakerfi samkvæmt 4. kafla greinargerðar aðalskipulags. Leita skal umsagnar hjá Skipulagsstofnun, umsagnaraðilum og kynna lýsinguna almenningi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

25

5. fundur

Tillaga að verkefnislýsingu endurskoðunar 4. kafla greinargerðar Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 lögð fram.
Anna Kristín Guðmundsdóttir landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf hefur unnið að gerð verkefnislýsingarinnar og gerði grein fyrir innihaldi hennar.
Endurskoðunin mun verða sett fram sem breyting á aðalskipulagi í samræmi við 30.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna í samræmi við 1.mgr. ofangreindrar lagagreinar og felur umhverfissviði að kynna lýsinguna og senda hana til umsagnar hjá umsagnaraðilum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

26

3. fundur

Þráinn Hauksson hjá Landslagi ehf., sem hefur verið falið að vinna að mótun breytingartillögu aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til 4.kafla greinargerðar, samgöngu og þjónustukerfi með áherslu á stígakerfi og almenningssamgöngur, fór yfir það verkefni sem framundan er.
Skipulagsnefnd felur ráðgjafa og umhverfissviði að vinna tillögu að lýsingu verkefnisins í samræmi við 1.mgr.30.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.