8. fundur
8. fundur
Velferðarráð Garðabæjar
í Seylunni í Sveinatungu, Garðatorgi
23.10.2024
Kl. 16:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - áheyrnarfulltrúi
- Theodóra Fanndal Torfadóttir - varamaður
- Berglind Víðisdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur
- Pála Marie Einarsdóttir - deildarstjóri
Ritari
- Snædís Björnsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2311400
01
Hjólreiðastefna Garðabæjar
Drög að hjólreiðastefnu Garðabæjar lögð fram til kynningar.
Hrönn Hafliðadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála, kynnti drög að hjólreiðastefnu Garðabæjar og svaraði spurningum.
Málsnúmer 2203422
02
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 10. Stígakerfi í þéttbýli og þjónustukerfi
Drög að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis lögð fram til kynningar.
Hrönn Hafliðadóttir, verkefnastjóri skipulagsmála, kynnti drög að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nær til stígakerfis og svaraði spurningum.
Málsnúmer 2306307
03
Vinna og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ
Kostnaðarmat á rekstri vinnu- og virkniúrræðis í Garðabæ, unnið af HLH ráðgjöf, lagt fram til kynningar.
Kostnaðarmat á rekstri vinnu- og virkniúrræðis í Garðabæ með stofnsetningu virknimiðstöðvar fyrir fatlað fólk. Greinargerðin, sem unnin var af HLH ráðgjöf, var lögð fram til kynningar. Við matið er stuðst við upplýsingar frá Garðabæ varðandi áætlaðan fjölda nýrra þjónustuþega í bænum á árunum 2024-2027. Tvær sviðsmyndir eru kostnaðarmetnar, annars vegar að útbúin sé virknimiðstöð fyrir fatlað fólk með lögheimili í Garðabæ og hins vegar að útbúin sé virknimiðstöð fyrir fatlað fólk með lögheimili í Garðabæ auk tiltekins fjölda þjónustuþega sem nágrannasveitarfélögunum er boðið að nýta sér gegn greiðslu gjalds fyrir þá þjónustu. Umræða. Velferðarráð fer þess á leit við bæjarráð að skoðaður verði nánar fýsileiki þess að stofna virknimiðstöð fyrir fatlað fólk í Garðabæ þar sem m.a. verði skilgreint nánar húsnæði slíkrar stöðvar miðað við að þar verði boðið upp á sambland úrræða.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2410319
04
Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti
Umræður um búsetuúrræði fyrir fatlað fólk sem áætlað er að taka í notkun í Hnoðraholti á næstu árum.
Umræður um búsetuúrræði fyrir fatlað fólk sem áætlað er að taka í notkun í Hnoðraholti á næstu árum. Samþykkt að fela starfsfólki velferðarsviðs að leggja fram á næsta fundi velferðarráðs minnisblað þar sem fram komi hugmyndir að mögulegri útfærslu á búsetuúrræðum fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2407394
05
Endurskoðun á reglum um stuðningsfjölskyldur fyrir fötluð börn
Drög að reglum Garðabæjar um stuðningsfjölskyldur við fjölskyldur fatlaðra barna, lögð fram til afgreiðslu. Á fundi sínum 8.10.2024 vísaði bæjarráð drögunum til velferðarráðs og til umsagnar hjá samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.
Drög að reglum Garðabæjar um stuðningsfjölskyldur fyrir fötluð börn lögð fram til afgreiðslu. Velferðarráð gerir ekki athugasemdir við drögin og leggur til að reglurnar verði samþykkktar.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2409553
06
Kostnaðar- og ábyrgðarskipting ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk
Í byrjun júlí 2022 skipaði félags- og vinnumarkaðsráðherra nýjan starfshóp með fulltrúum ríkis og sveitarfélaga sem fékk það hlutverk að móta tillögur um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk. Tillögur starfshópa er að finna í áfangaskýrsla I sem kom út 24. janúar 2024 og áfangaskýrslu II sem kom út 24. september 2024.
Áfangaskýrsla I um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga í þjónustu við fatlað fólk sem kom út 24. janúar 2024 og áfangaskýrsla II sem kom út 24. september 2024 lagðar fram til kynningar. Umræða.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2303550
07
Umsókn um stuðningsfjölskyldu.
Beiðni um endurskoðun ákvörðunar afgreiðslufundar stuðnings- og stoðþjónustu frá 10.9.2024.
Beiðni um endurskoðun ákvörðunar afgreiðslufundar stuðnings- og stoðþjónustu frá 10.9.2024. Velferðarráð staðfestir ákvörðun velferðarsviðs. Nánar er fjallað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
Málsnúmer 2303546
08

Málsnúmer 2303548
09

Málsnúmer 2304461
10
Umsókn um stuðningsfjölskyldu
Beiðni um endurskoðun ákvörðunar afgreiðslufundar stuðnings- og stoðþjónustu frá 10.9.2024.
Beiðni um endurskoðun ákvörðunar afgreiðslufundar stuðnings- og stoðþjónustu frá 10.9.2024. Velferðarráð staðfestir ákvörðun velferðarsviðs. Nánar er fjallað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.
Málsnúmer 2408358
11
Endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga
Kynning á fyrirhuguðu starfi samhæfingarteyma samkvæmt breytingum á lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Kynning á fyrirhuguðu starfi samhæfingarteyma samkvæmt breytingum á lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga. Velferðarráð leggur áherslu á að hugað verði að stafrænum innviðum Garðabæjar vegna málsins í tæka tíð.