Beint í efni

Vinna og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ

Málsnúmer 2306307

Ferill máls

Velferðarráð Garðabæjar

01

5. fundur

Staða verkefnis.

Sviðsstjóri velferðarsviðs fer yfir tímalínu minnisblaðs og upplýsir um þá þætti sem hafa verið til skoðunar.

Velferðarráð Garðabæjar

02

4. fundur

Staða verkefnis.

Farið yfir tímalínu minnisblaðs sem lagt var fram á síðasta fundi velferðarráðs. Sviðsstjóri upplýsir um þá þætti sem hafa verið til skoðunar.

Velferðarráð Garðabæjar

03

2. fundur

Vinna og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ.

Kynning á starfsemi og skipulagi vinnu- og virkniúrræða hjá Ás styrktarfélagi. Þóra Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Áss styrktarfélags, kynnir starfsemi og skipulag og svarar fyrirspurnum fundarmanna.
Farið yfir minnisblað velferðarsviðs sem lagt var fram á fundinum og næstu skref rædd.
Pála Marie Einarsdóttir deildarstjóri stoðþjónustu sat fundinn undir þessum fundarlið.

Velferðarráð Garðabæjar

04

9. fundur

Framhald á umræðum um vinnu og virkniúrræði í Garðabæ.

Umræður um erindi frá Múlalundi um samstarf við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu tengt virkniúrræðum og drög að viljayfirlýsingu sem send var á sveitarfélögin. Velferðarsvið mun vinna áfram að mati á fýsileika þess að opna í Garðabæ vinnu- og virkniúrræði og leggja fram minnisblað þess efnis á fundi velferðarráðs í janúar.

Bæjarráð Garðabæjar

05

42. (2143). fundur

Bæjarráð samþykkir að skoðaður verði fýsileiki þess að stofna virknimiðstöð fyrir fatlað fólk í Garðabæ, þar sem m.a. verði skilgreint nánar húsnæði slíkrar stöðvar miðað við að þar verði boðið upp á sambland úrræða.
Bæjarráð vísar málinu til velferðarsviðs.

Velferðarráð Garðabæjar

06

8. fundur

Kostnaðarmat á rekstri vinnu- og virkniúrræðis í Garðabæ, unnið af HLH ráðgjöf, lagt fram til kynningar.

Kostnaðarmat á rekstri vinnu- og virkniúrræðis í Garðabæ með stofnsetningu virknimiðstöðvar fyrir fatlað fólk. Greinargerðin, sem unnin var af HLH ráðgjöf, var lögð fram til kynningar. Við matið er stuðst við upplýsingar frá Garðabæ varðandi áætlaðan fjölda nýrra þjónustuþega í bænum á árunum 2024-2027. Tvær sviðsmyndir eru kostnaðarmetnar, annars vegar að útbúin sé virknimiðstöð fyrir fatlað fólk með lögheimili í Garðabæ og hins vegar að útbúin sé virknimiðstöð fyrir fatlað fólk með lögheimili í Garðabæ auk tiltekins fjölda þjónustuþega sem nágrannasveitarfélögunum er boðið að nýta sér gegn greiðslu gjalds fyrir þá þjónustu. Umræða. Velferðarráð fer þess á leit við bæjarráð að skoðaður verði nánar fýsileiki þess að stofna virknimiðstöð fyrir fatlað fólk í Garðabæ þar sem m.a. verði skilgreint nánar húsnæði slíkrar stöðvar miðað við að þar verði boðið upp á sambland úrræða.

Fylgiskjöl

Fjölskylduráð Garðabæjar

07

7. fundur

Staða verkefnis.

Vinna og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ og staða verkefnis til umræðu. Pála Marie Einarsdóttir umsjónarþroskaþjálfi, sat fundinn undir þessum lið og svaraði spurningum fundarmanna.

Fjölskylduráð Garðabæjar

08

6. fundur

Umræður um vinnu og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ. Minnispunktar sviðsstjóra lagðir fram til umræðu.

Sviðsstjóri fjölskyldusviðs fór yfir vinnu við gerð minnisblaðs um framtíðarsýn vinnu og virkni fyrir fatlað fólk í Garðabæ þar sem áhersla verði lögð á að auka atvinnuþátttöku fatlaðs fólks og annarra með skerta starfsgetu. Sviðsstjóri kynnti megininntak verkefnisins, sem byggir m.a. á niðurstöðum skýrslu Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá júní 2022 um uppbyggingu verndaðrar vinnu, hæfingu og dagþjónustu fyrir fatlað fólk fram til 2030, sem kynnt var á fundi fjölskylduráðs 16. nóvember sl.
Stefnt er að því að fullunnið minnisblað, þ.m.t. frumkostnaðargreining, verði lagt fram á fundi fjölskylduráðs í haust. Pála Marie Einarsdóttir, umsjónarþroskaþjálfi sat fundinn undir þessum lið.