2. fundur
2. fundur
Velferðarráð Garðabæjar
í ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg
14.02.2025
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2209275
01
Tillaga um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk
Þjónustukönnun á þjónustu til fatlaðs fólks í Garðabæ lögð fram til kynningar.
Þjónustukönnun á þjónustu til fatlaðs fólks í Garðabæ lögð fram til kynningar. Matthías Þorvaldsson viðskiptastjóri Gallup kynnti niðurstöður könnunar og svaraði fyrirspurnum fundarmanna. Velferðarráð leggur áherslu á að farið sé í myndum rýnihópa hið fyrsta svo skoða megi nánar úrbætur í þjónustu til fatlaðs fólks. Stefnt skal að því að niðurstaða rýnihópa liggi fyrir eigi síðar en í lok apríl 2025.
Málsnúmer 2306307
02
Vinna og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ
Vinna og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ.
Kynning á starfsemi og skipulagi vinnu- og virkniúrræða hjá Ás styrktarfélagi. Þóra Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Áss styrktarfélags, kynnir starfsemi og skipulag og svarar fyrirspurnum fundarmanna.
Farið yfir minnisblað velferðarsviðs sem lagt var fram á fundinum og næstu skref rædd.
Pála Marie Einarsdóttir deildarstjóri stoðþjónustu sat fundinn undir þessum fundarlið.
Málsnúmer 2409477
03
Íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2024
Íbúakönnun - Þjónustukönnun Gallup 2024 lögð fram til kynningar.
Þjónustukönnun Gallup 2024, Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar kynnti niðurstöður könnunar og svaraði fyrirspurnum fundarmanna.
Málsnúmer 2101189
04
Samráðsfundir velferðasviða hjá SSH
Fundargerð samráðshóps SSH um velferðarmál frá 8. janúar 2025 lögð fram til kynningar.
Fundargerð samráðshóps Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um velferðarmál frá 8. janúar 2025 lögð fram til kynningar.