Tillaga um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk
Ferill máls
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
01
3. fundur
Niðurstöður rýnihópa um málefni fatlaðs fólks lagðar fram til kynningar.
Sviðsstjóri velferðarsviðs, ásamt deildarstjóra stoðþjónustu kynntu niðurstöður rýnihópavinnu og svöruðu fyrirspurnum nefndarmanna.
Velferðarráð Garðabæjar
02
6. fundur
Niðurstöður rýnihópa um málefni fatlaðs fólks lagðar fram til kynningar.
Lilja María Árnadóttir, viðskiptasjóri hjá Gallup, ásamt sviðsstjóra velferðarsviðs kynntu niðurstöður rýnihópavinnu og svöruðu fyrirspurnum nefndarmanna. Velferðarráð mun á haustdögum hefja vinnu við endurskoðun á stefnu í málefnum fatlaðs fólks í Garðabæ á grundvelli niðurstöðu rýnihópavinnu.
Velferðarráð Garðabæjar
03
5. fundur
Staða verkefnis.
Sviðsstjóri velferðarsviðs upplýsir um að vinna með rýnihópum í málefnum fatlaðs fólks hafi farið fram í viku 21 og að von sé á samantekt frá úrvinnsluaðila (Gallup) í byrjun næsta mánaðar.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
04
2. fundur
Þjónustukönnun á þjónustu til fatlaðs fólks í Garðabæ lögð fram til kynningar. Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þjónustu kynnti niðurstöður.
Þjónustukönnun á þjónustu til fatlaðs fólks í Garðabæ lögð fram til kynningar. Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar fór yfir niðurstöður könnunar. Næstu skref eru að kalla til aðila í rýnihóp og vinna með niðurstöður könnunarinnar með það markmið að efla heildstæða þjónustu til fatlaðs fólks í Garðabæ. Samráðshópur vill lýsa ánægju sinni með framkvæmd könnunarinnar.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
05
2. fundur
Kynning á stöðu verkefnis.
Sviðsstjóri velferðarsviðs og deildarstjóri stoðþjónustu kynna stöðu verkefnis, en stefnt er að því að vinna með rýnihópum fari af stað um miðjan maí 2025.
Bæjarráð Garðabæjar
06
11. (2159). fundur
Á fund bæjarráðs mætti Matthías Þorvaldsson, starfsmaður GI rannsókna og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum þjónustukönnunar meðal fatlaðs fólks í Garðabæ.
Könnunin leiðir í ljós að almennt er ánægja með þá þjónustu sem er í boði hjá Garðabæ fyrir fjölskyldur og fötluð börn og má í því samhengi nefna ráðgjöf, stuðningsfjölskyldur, skammtímadvöl og þjónustu grunnskóla og leikskóla. Aftur á móti er minni ánægja með þá þjónustu sem veitt er til fullorðinna einstaklinga með fötlun. Næstu skref eru að kalla til aðila í rýnihóp og vinna með niðurstöður könnunarinnar með það markmið að efla heildstæða þjónustu til fatlaðs fólks í Garðabæ.
Pála Marie Einarsdóttir, deildarstjóri velferðarsviðs, sat fundinn undir þessum dagskrárlið.
Velferðarráð Garðabæjar
07
2. fundur
Þjónustukönnun á þjónustu til fatlaðs fólks í Garðabæ lögð fram til kynningar.
Þjónustukönnun á þjónustu til fatlaðs fólks í Garðabæ lögð fram til kynningar. Matthías Þorvaldsson viðskiptastjóri Gallup kynnti niðurstöður könnunar og svaraði fyrirspurnum fundarmanna. Velferðarráð leggur áherslu á að farið sé í myndum rýnihópa hið fyrsta svo skoða megi nánar úrbætur í þjónustu til fatlaðs fólks. Stefnt skal að því að niðurstaða rýnihópa liggi fyrir eigi síðar en í lok apríl 2025.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
08
2. fundur
Staða verkefnis og næstu skref kynnt fyrir fundarmönnum.
Farið yfir stöðu verkefnis tengt myndum rýnihópa og næstu skref verkefnis. Hulda Hauksdóttir, deildarstjóri þjónustu og stafrænnar þróunar sat fundinn undir þessum lið.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
09
3. fundur
Farið yfir stöðu málsins.
Staða málsins er rædd og tillögur kynntar fyrir samráðshóp. Lagt er til að Garðabær bjóði þjónustuþegum og aðstandendum í rýnihóp samhliða því að senda spurningalista. Gallup vinnur gögnin og heldur utan um rýnihóp.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
10
2. fundur
Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 15.9.2022 var samþykkt að fela bæjarstjóra í samráði við fjölskyldusvið Garðabæjar og samráðshóp um málefni fatlaðs fólks að leita til ráðgjafa um mótun tillögu að útfærslu og tímasetningu á rýnihópum notenda og aðstandenda um helstu þætti þjónustu Garðabæjar við fatlað fólk með það að markmiði að öðlast dýpri skilning á þörf þjónustuþega og kanna væntingar fólks til þjónustunnar. Með vinnu rýnihópanna verði leitast til að fá fram góðan og áreiðanlegan grunn til að vinna með til að bæta þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ. Lagt skuli upp með að fundir rýnihópanna verði haldnir hið fyrsta og að samantekt úr vinnu hópanna liggi fyrir til kynningar í bæjarráði eigi síðar en tveimur vikum eftir að framkvæmd lýkur.
Tillaga um útfærslu og tímasetningu á rýnihópum notenda og aðstandenda um helstu þætti þjónustu Garðabæjar við fatlað fólk rædd. Samráðshópur lýsir yfir ánægju með framkomna tillögu og óskar þess að fá kynningu á samantekt úr vinnu hópanna í lok verkefnisins. Samráðshópurinn leggur áherslu á að rýnihópurinn endurspegli fjölbreyttan hóp fatlaðs fólks og aðstandenda.
Fjölskylduráð Garðabæjar
11
8. fundur
Á fundi bæjarstjórnar Garðabæjar 15.9.2022 var samþykkt að fela bæjarstjóra í samráði við fjölskyldusvið Garðabæjar og samráðshóp um málefni fatlaðs fólks að leita til ráðgjafa um mótun tillögu að útfærslu og tímasetningu á rýnihópum notenda og aðstandenda um helstu þætti þjónustu Garðabæjar við fatlað fólk með það að markmiði að öðlast dýpri skilning á þörf þjónustuþega og kanna væntingar fólks til þjónustunnar. Með vinnu rýnihópanna verði leitast til að fá fram góðan og áreiðanlegan grunn til að vinna með til að bæta þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ. Lagt skuli upp með að fundir rýnihópanna verði haldnir hið fyrsta og að samantekt úr vinnu hópanna liggi fyrir til kynningar í bæjarráði eigi síðar en tveimur vikum eftir að framkvæmd lýkur. Lagt fyrir fjölskylduráð til umræðu og kynningar.
Tillagan rædd. Fjölskylduráð lýsir yfir ánægju með framkomna tillögu og óskar þess að fá að fylgjast með framgangi málsins.
Fylgiskjöl
Bæjarstjórn Garðabæjar
12
12. (908). fundur
Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra í samráði við fjölskyldusvið Garðabæjar að leita til ráðgjafa um mótun tillögu að útfærslu og tímasetningu á rýnihópum notenda og aðstandenda um helstu þætti þjónustu Garðabæjar við fatlað fólk með það að markmiði að öðlast dýpri skilning á þörf þjónustuþega og kanna væntingar fólks til þjónustunnar. Með vinnu rýnihópanna verði leitast til að fá fram góðan og áreiðanlegan grunn til að vinna með til að bæta þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ.
Lagt skal upp með að fundir rýnihópanna verði haldnir í október 2022 og að samantekt úr vinnu hópanna liggi fyrir til kynningar í bæjarráði eigi síðar en tveimur vikum eftir að framkvæmd lýkur.“
Greinargerð:
Þjónusta við fatlað fólk í Garðabæ hefur vaxið umtalsvert undanfarin ár. Niðurstöður þjónustukönnunar Gallup sem framkvæmd var í lok árs 2021 og í byrjun árs 2022 gefa til kynna að mörg tækifæri séu til úrbóta í málaflokknum.
Með því að leitast við að dýpka skilning á þörf þjónustuþega og kanna væntingar notenda til þjónustunnar verður hægara um vik að efla enn frekar þjónustu við fatlað fólk í bænum. Til þess að það markmið náist er mikilvægt að tryggja rödd notenda og aðstandenda inn í vinnuna með þátttöku þeirra í vinnu rýnihópa.
Niðurstöður úr vinnu rýnihópanna verða síðan notaðar til að þróa áfram þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ með það að markmiði að efla þjónustuna og bæta upplifun notenda.
Gunnar Valur Gíslason, formaður fjölskylduráðs.
Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi.
Guðlaugur Kristmundsson, tók til máls um framkomna tillögu og lagði til eftirfarandi breytingartillögu.
Á eftir „í samráði við fjölskyldusvið Garðabæjar“ komi „ og samráðshóp um málefni fatlaðs fólks“
Þorbjörg Þorvaldsdóttir, tók til máls um framkomna tillögu.
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls og lagði til að tillaga verði samþykkt með framkominni breytingartillögu. Gunnar Valur lagði einnig til að í stað „í október 2022“ komi „hið fyrsta“.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, tók til máls.
Bæjarstjórn samþykkir framkomna tillögu með áorðnum breytingum.