3. fundur
3. fundur
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
28.09.2023
Kl. 08:30 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristín Einarsdóttir - formaður
- Sveinbjörn Halldórsson - aðalmaður
- Hjördís Guðný Guðmundsdóttir - aðalmaður
- Bergþóra Bergsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - forstöðumaður
Ritari
- Pála Marie Einarsdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 2007223
01
Úthlutun félagslegra leiguíbúða 2020-2023
Sjö einstaklingsíbúðum í búsetukjarna að Brekkuási hefur verið úthlutað til einstaklinga með samþykktar umsóknir á biðlista eftir sértæku búsetuúrræði.
Sjö einstaklingsíbúðum í búsetukjarna að Brekkuási hefur verið úthlutað til einstaklinga með samþykktar umsóknir á biðlista eftir sértæku búsetuúrræði. Áætlað er að íbúðirnar verði afhentar á tímabilinu nóvember - desember 2023.
Málsnúmer 2308821
02
Tillögur að fyrirkomulagi þjónustu við börn með fjölþættan vanda.
Skýrsla frá mennta- og barnamálaráðuneytinu um tillögur starfshóps að fyrirkomulagi þjónustu við börn með fjölþættan vanda er lögð fram til kynningar.
Skýrsla frá mennta- og barnamálaráðuneytinu um tillögur starfshóps að fyrirkomulagi þjónustu við börn með fjölþættan vanda er lögð fram til kynningar.
Í skýrslunni eru lagðar fram 14 tillögur ásamt kostnaðarmati. Niðurstöður kostnaðarmatsins sýna að hægt er að ná umtalsverðri hagræðingu í rekstri þjónustu við börn með fjölþættan vanda.
Fjölskyldusvið mun fylgjast með framvindu málsins.
Málsnúmer 2309485
03
Framlög til úrbóta á aðgengismálum fatlaðs fólks 2023-2024
Erindi frá Jöfnunarsjóð sveitarfélaga um framlög til úrbóta á aðgengismálum fatlaðs fólks 2023-2024.
Lagt er fram til kynningar erindi frá Jöfnunarsjóð sveitarfélaga um framlög til úrbóta á aðgengismálum fatlaðs fólks 2023-2024.
Málsnúmer 2209275
04
Tillaga um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk
Farið yfir stöðu málsins.
Staða málsins er rædd og tillögur kynntar fyrir samráðshóp. Lagt er til að Garðabær bjóði þjónustuþegum og aðstandendum í rýnihóp samhliða því að senda spurningalista. Gallup vinnur gögnin og heldur utan um rýnihóp.