Beint í efni

6. fundur

27.06.2025
Velferðarráð Garðabæjar

6. fundur

Velferðarráð Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

27.06.2025

Kl. 08:15 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • María Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Theodóra Fanndal Torfadóttir - varamaður

Starfsmenn

  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur

Ritari

  • Svanhildur Þengilsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2209275

01

Tillaga um myndun rýnihópa varðandi þjónustu við fatlað fólk

Niðurstöður rýnihópa um málefni fatlaðs fólks lagðar fram til kynningar.

Lilja María Árnadóttir, viðskiptasjóri hjá Gallup, ásamt sviðsstjóra velferðarsviðs kynntu niðurstöður rýnihópavinnu og svöruðu fyrirspurnum nefndarmanna. Velferðarráð mun á haustdögum hefja vinnu við endurskoðun á stefnu í málefnum fatlaðs fólks í Garðabæ á grundvelli niðurstöðu rýnihópavinnu.

Málsnúmer 2005438

02

Endurskoðun reglna um félagslegt leiguhúsnæði Garðabæjar.

Drög að breytingum á reglum um félagslegt húsnæði og nýrra matsviðmiða vegna umsóknar um almennt félagslegt leiguhúsnæði, umsóknar um milliflutning og vegna endurnýjunar húsaleigusamninga í félagslegu húsnæði lögð fram.

Velferðarráð gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi drög að endurskoðuðum reglum og matsviðmiðum um félagslegt leiguhúsnæði og vísar reglunum til bæjarráðs til umfjöllunar og afgreiðslu.

Málsnúmer 2410319

03

Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti

Staða verkefnis.

Sviðsstjóri velferðarsviðs fer yfir þá þætti sem hafa verið til skoðunar varðandi búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti.

Málsnúmer 2505121

04

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Áfrýjun á synjun samkvæmt reglum um fjárhagsaðstoð í Garðabæ.

Afgreiðsla velferðarsviðs er staðfest. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2506330

05

Umsókn um fjárhagsaðstoð

Beiðni um undanþágu frá reglum um fjárhagsaðstoð í Garðabæ.

Veitt er undanþága frá skilyrðum reglna um fjárhagsaðstoð í Garðabæ. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2212382

06

Notendastýrð persónuleg aðstoð

Áfrýjun vegna synjunar um fjölgun vinnustunda og aðstoðarverkstjórnartíma í NPA samning.

Veitt er undanþága vegna aðstoðarverkstjórnartíma í NPA samningi. Nánar er bókað um málið í trúnaðarmálahluta fundargerðar.

Málsnúmer 2506594

07

Miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna á höfuðborgarsvæðinu

Mennta- og barnamálaráðuneyti hefur auglýst eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki í þágu farsældar barna sem miða að því að efla farsæld barna. Styrkirnir eru hluti af aðgerðum stjórnvalda í áætlun vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum. Heildarúthlutun er allt að 495 m.kr. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu vinna nú að umsókn um styrk úr sjóðnum til að setja á fót miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna. Umsókn er á lokastigum og umsóknarfrestur er til 30. júní nk.

Anna Eygló Karlsdóttir, deildarstjóri barnaverndar sat fundinn undir þessum lið og kynnti drög að sameiginlegri umsókn sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um fjárstyrk til að setja á fót miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna. Velferðarráð lýsir yfir stuðningi sínum við umsóknina og verkefnið í heild.