Miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna á höfuðborgarsvæðinu
Ferill máls
Velferðarráð Garðabæjar
01
9. fundur
Kynning á fyrirhuguðu miðlægu bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna á höfuðborgarsvæðinu.
Margrét Edda Yngvadóttir, sérfræðingur á farsældarsviði hjá Barna - og fjölskyldustofu kynnti skipulag á fyrirhuguðu miðlægu bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna á höfuðborgarsvæðinu og svaraði fyrirspurnum fundarmanna. Deildarstjóri barnaverndar sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð Garðabæjar
02
6. fundur
Mennta- og barnamálaráðuneyti hefur auglýst eftir umsóknum frá sveitarfélögum um styrki í þágu farsældar barna sem miða að því að efla farsæld barna. Styrkirnir eru hluti af aðgerðum stjórnvalda í áætlun vegna ofbeldis meðal barna og gegn börnum. Heildarúthlutun er allt að 495 m.kr. Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu vinna nú að umsókn um styrk úr sjóðnum til að setja á fót miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna. Umsókn er á lokastigum og umsóknarfrestur er til 30. júní nk.
Anna Eygló Karlsdóttir, deildarstjóri barnaverndar sat fundinn undir þessum lið og kynnti drög að sameiginlegri umsókn sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um fjárstyrk til að setja á fót miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna. Velferðarráð lýsir yfir stuðningi sínum við umsóknina og verkefnið í heild.