9. fundur
9. fundur
Velferðarráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
17.10.2025
Kl. 08:15 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Berglind Víðisdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur
- Pála Marie Einarsdóttir - deildarstjóri
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Miðlægt bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna á höfuðborgarsvæðinu
Kynning á fyrirhuguðu miðlægu bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna á höfuðborgarsvæðinu.
Margrét Edda Yngvadóttir, sérfræðingur á farsældarsviði hjá Barna - og fjölskyldustofu kynnti skipulag á fyrirhuguðu miðlægu bráða- og viðbragðsteymi vegna ofbeldis meðal barna á höfuðborgarsvæðinu og svaraði fyrirspurnum fundarmanna. Deildarstjóri barnaverndar sat fundinn undir þessum lið.
02
Endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks
Framhald á vinnu við endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks.
Farið yfir minnisblað tengt vinnu við endurskoðun stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks og fyrstu drög að kaflaskiptingu stefnunnar lögð fram. Stefnan verður unnin í samstarfi við samráðshóp í málefnum fatlaðs fólks og drög að stefnu lögð fram á fundi velferðarráðs í desember.
03
Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti
Farið yfir stöðu verkefnis.
Sviðsstjóri velferðarsviðs fór yfir stöðu verkefnis og lagði fram tilgátumynd arkitekts að búsetukjarna við Haustbraut. Stefnt er að því að sambærileg tilgátumynd af því félagslega búsetuúrræði sem til umræðu hefur verið í Hnoðraholti verði lögð fram á fundi velferðarráðs í desember ásamt forteikningum arkitekts að búsetukjarnanum við Haustbraut.
04
Samráðsfundir velferðasviða hjá SSH
Fundargerðir samráðshóps SSH um velferðarmál frá september og október lagðar fram til kynningar.
Fundargerðir samráðshóps SSH um velferðarmál frá september og október 2025 lagðar fram til kynningar.
05
Sameiginlegur fundur félagsmálanefnda sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um málefni heimilislausra
Föstudaginn 7. nóvember verður haldinn sameiginlegur fundur velferðarráða á höfuðborgarsvæðinu milli kl. 9 og 12 í Hlégarði í Mosfellsbæ. Á fundinum verður m.a. rætt um málefni heimilislausra. Óskað hefur verið eftir þátttöku ráðsmanna velferðarráðs Garðabæjar.
Fundarboð verður sent til aðalmanna velferðarráðs.
06
Tölulegar upplýsingar um atvinnuleysi.
Tölfræði vegna atvinnuleysis í Garðabæ 2019-2025 lögð fram til kynningar.
Tölfræði vegna atvinnuleysis í Garðabæ 2019-2025 lögð fram til kynningar.
07
50 ára afmæli Garðabæjar 2026
Til umræðu
Umræða um 50 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar árið 2026.