Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti
Ferill máls
Velferðarráð Garðabæjar
01
4. fundur
Staða verkefnis kynnt.
Staða búsetuúrræðis fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti lögð fram til kynningar og umræðu. Teikningar af búsetukjarnanum hafa verið kynntar fyrir samráðshópi um málefni fatlaðs fólks.
Fyrsta skóflustunga að búsetukjarnanum verður tekin í dag, 17. apríl 2026.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
02
2. fundur
Staða verkefnis.
Staða verkefnis tengt búsetukjarna fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti lagt fram til kynningar og umræðu.
Velferðarráð Garðabæjar
03
3. fundur
Staða verkefnis kynnt.
Staða verkefnis og næstu skref í framkvæmd til umræðu og kynningar.
Velferðarráð Garðabæjar
05
1. fundur
Staða verkefnis.
Teikning af búsetukjarna fyrir fatlað fólk, að Haustbraut 2, og deiliskipulag Sólholts lagt fram til umræðu og kynningar. Guðbjörg Brá Gísladóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs, sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð Garðabæjar
06
11. fundur
Staða verkefnis.
Tilgátuteikning af sértæku félagslegu húsnæðisúrræði í Sólholti 1 lögð fram til kynningar.
Velferðarráð Garðabæjar
07
9. fundur
Farið yfir stöðu verkefnis.
Sviðsstjóri velferðarsviðs fór yfir stöðu verkefnis og lagði fram tilgátumynd arkitekts að búsetukjarna við Haustbraut. Stefnt er að því að sambærileg tilgátumynd af því félagslega búsetuúrræði sem til umræðu hefur verið í Hnoðraholti verði lögð fram á fundi velferðarráðs í desember ásamt forteikningum arkitekts að búsetukjarnanum við Haustbraut.
Velferðarráð Garðabæjar
08
8. fundur
Staða verkefnis.
Sviðsstjóri velferðarsviðs fór yfir stöðu verkefnis. Stefnt er að því að frumteikningar liggi fyrir á næsta fundi.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
09
3. fundur
Staða verkefnis.
Pála Marie Einarsdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu fer yfir stöðu verkefnis.
Velferðarráð Garðabæjar
10
7. fundur
Staða verkefnis.
Pála Marie Einarsdóttir, deildarstjóri, sat fundinn undir þessum lið. Áframhaldandi umræða um skipulag búsetuúrræða í Hnoðraholti. Kynntar voru hugmyndir skipulagshöfunda að búsetuúrræðum í háholti Hnoðraholts. Velferðarráð lýsir yfir ánægju með framkomnar hugmyndir.
Velferðarráð Garðabæjar
11
6. fundur
Staða verkefnis.
Sviðsstjóri velferðarsviðs fer yfir þá þætti sem hafa verið til skoðunar varðandi búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti.
Velferðarráð Garðabæjar
12
5. fundur
Staða verkefnis.
Sviðsstjóri velferðarsviðs upplýsir um þá þætti sem hafa verið til skoðunar og kynnir frumdrög arkitekts að búsetuúrræðum fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti.
Velferðarráð Garðabæjar
13
4. fundur
Staða verkefnis.
Farið yfir tímalínu minnisblaðs sem lagt var fram á síðasta fundi velferðarráðs. Sviðsstjóri upplýsir um þá þætti sem hafa verið til skoðunar.
Velferðarráð Garðabæjar
14
10. fundur
Umræður um skipulag búsetuúrræða fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti.
Minnisblað sviðsstjóra velferðarsviðs um skipulag búsetuúrræða fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti lagt fram til kynningar og umræðu. Pála Marie Einarsdóttir, deildarstjóri stoðþjónustu, sat fundinn undir þessum lið.
Velferðarráð Garðabæjar
15
9. fundur
Framhald á umræðum um búsetuúrræði í Garðabæ.
Velferðarsvið mun hafa málið áfram til vinnslu og leggja fram minnisblað um stöðu þess á næsta fundi velferðarráðs í desember.
Velferðarráð Garðabæjar
16
8. fundur
Umræður um búsetuúrræði fyrir fatlað fólk sem áætlað er að taka í notkun í Hnoðraholti á næstu árum.
Umræður um búsetuúrræði fyrir fatlað fólk sem áætlað er að taka í notkun í Hnoðraholti á næstu árum. Samþykkt að fela starfsfólki velferðarsviðs að leggja fram á næsta fundi velferðarráðs minnisblað þar sem fram komi hugmyndir að mögulegri útfærslu á búsetuúrræðum fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti.