8. fundur
8. fundur
Velferðarráð Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
19.09.2025
Kl. 08:15 - 09:45
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - formaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur
Ritari
- Svanhildur Þengilsdóttir
Dagskrá
01
Aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026
Staða verkefna í aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026 lögð fram til kynningar og umræðu.
Staða verkefna í aðgerðaáætlun Garðabæjar í jafnréttismálum 2024-2026 lögð fram til kynningar og umræðu.
02
Endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks
Farið yfir núgildandi stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks og nýjar áherslur ræddar.
Farið yfir núgildandi stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks og nýjar áherslur ræddar.
Rætt um næstu skref í endurskoðun á stefnu Garðabæjar í málefnum fatlaðs fólks. Tímalína verkefnis lögð fram.
03
Búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti
Staða verkefnis.
Sviðsstjóri velferðarsviðs fór yfir stöðu verkefnis. Stefnt er að því að frumteikningar liggi fyrir á næsta fundi.
04
Frístundaþjónusta fatlaðra barna og ungmenna
Staða verkefnis lögð fram til kynningar.
Staða verkefnis lögð fram til kynningar.
05
Sameiginlegt vistheimili í barnavernd
Í 84. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 er kveðið á um að barnaverndarþjónustur skuli hafa tiltæk úrræði til að veita börnum móttöku, þar með talið í bráðatilvikum, til að tryggja öryggi barna, greina vanda eða til könnunar á aðstæðum þeirra sem og vegna vanrækslu, vanhæfni eða framferðis foreldra. Einnig vegna ófullnægjandi heimilisaðstæðna eða sérstakra þarfa, svo sem í kjölfar meðferðar.
1. september sl. tók gildi nýr samningur við vistheimili í Mosfellsbæ um að taka við börnum á vegum barnaverndarþjónustu Garðabæjar til tímabundinnar neyðarvistunar. Samningurinn gildir til 5. janúar 2026 en þá verður gerður annar samningur með barnaverndarþjónustu Mosfellsbæjar. Kostnaður Garðabæjar mun haldast óbreyttur.
Í 84. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 er kveðið á um að barnaverndarþjónustur skuli hafa tiltæk úrræði til að veita börnum móttöku, þar með talið í bráðatilvikum.
Þann 1. september sl. tók gildi nýr samningur velferðarsviðs Garðabæjar við vistheimili í Mosfellsbæ um að taka við börnum á vegum barnaverndarþjónustu Garðabæjar til tímabundinnar neyðarvistunar. Samningurinn gildir til 5. janúar 2026 en þá verður gerður annar samningur við vistheimilið ásamt barnaverndarþjónustu Mosfellsbæjar.
06
Sameiginlegur fundur félagsmálanefnda sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um málefni heimilislausra
Erindi frá Rannveigu Einarsdóttir, sviðsstjóra velferðarsvið Reykajvíkurborgar, dagsett 28.05.2025, um sameiginlegan fund félagsmálanefnda sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um málefni heimilislausra.
Erindi frá Rannveigu Einarsdóttir, sviðsstjóra velferðarsvið Reykjavíkurborgar, dagsett 28.05.2025, um sameiginlegan fund félagsmálanefnda sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um málefni heimilislausra lagt fram. Velferðarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir að senda tvo fulltrúa frá velferðarráði Garðabæjar á fyrirhugaðan fund.
07
Samráðsfundir velferðasviða hjá SSH
Fundargerðir samráðshóps SSH um velferðarmál frá júní og ágúst 2025 lagðar fram til kynningar.
Fundargerðir samráðshóps SSH um velferðarmál frá júní og ágúst 2025 lagðar fram til kynningar.
08
Tölulegar upplýsingar í barnavernd og fjárhagsaðstoð
Tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð janúar til ágúst 2025 lögð fram til umræðu og kynningar.
Tölfræði í barnavernd og fjárhagsaðstoð janúar til ágúst 2025 lögð fram til umræðu og kynningar.