Sameiginlegt vistheimili í barnavernd
Ferill máls
Velferðarráð Garðabæjar
01
8. fundur
Í 84. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 er kveðið á um að barnaverndarþjónustur skuli hafa tiltæk úrræði til að veita börnum móttöku, þar með talið í bráðatilvikum, til að tryggja öryggi barna, greina vanda eða til könnunar á aðstæðum þeirra sem og vegna vanrækslu, vanhæfni eða framferðis foreldra. Einnig vegna ófullnægjandi heimilisaðstæðna eða sérstakra þarfa, svo sem í kjölfar meðferðar.
1. september sl. tók gildi nýr samningur við vistheimili í Mosfellsbæ um að taka við börnum á vegum barnaverndarþjónustu Garðabæjar til tímabundinnar neyðarvistunar. Samningurinn gildir til 5. janúar 2026 en þá verður gerður annar samningur með barnaverndarþjónustu Mosfellsbæjar. Kostnaður Garðabæjar mun haldast óbreyttur.
Í 84. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 er kveðið á um að barnaverndarþjónustur skuli hafa tiltæk úrræði til að veita börnum móttöku, þar með talið í bráðatilvikum.
Þann 1. september sl. tók gildi nýr samningur velferðarsviðs Garðabæjar við vistheimili í Mosfellsbæ um að taka við börnum á vegum barnaverndarþjónustu Garðabæjar til tímabundinnar neyðarvistunar. Samningurinn gildir til 5. janúar 2026 en þá verður gerður annar samningur við vistheimilið ásamt barnaverndarþjónustu Mosfellsbæjar.