Beint í efni

Sameiginlegur fundur félagsmálanefnda sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um málefni heimilislausra

Málsnúmer 2509074

Ferill máls

Velferðarráð Garðabæjar

01

10. fundur

Fundargerð og ályktun sameiginlegs fundar félagsmálanefnda sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá 7. nóvember 2025 um málefni heimilislausra lögð fram til kynningar og umræðu.

Sameiginlegur fundur félagsmálanefnda Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar, Reykjavíkur og Seltjarnarness um málefni heimilislausra. Fyrir hönd velferðarráðs Garðabæjar mættu Sturla Þorsteinsson, aðalmaður, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, aðalmaður, Tamar Lipka Klara Þormarsdóttir, varamaður og Berglind Víðisdóttir, varamaður. Fundinn sátu fyrir hönd Garðabæjar einnig Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs og Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur, sem ritaði fundargerð. Fundurinn var haldinn að frumkvæði velferðarráðs Reykjavíkurborgar.

Samþykkt var sameiginleg ályktun fundarins, svohljóðandi:
"Miklar framfarir hafa átt sér stað í þjónustu við heimilislausa einstaklinga með miklar og flóknar þjónustuþarfir á undanförnum árum. Aukin áhersla hefur verið lögð á kortlagningu og greiningu á notendahópi, aukið notendasamráð og nýsköpun í þróun á þjónustuleiðum fyrir einstaklinga með mismunandi þjónustuþarfir. Reykjavíkurborg hefur leitt þá vinnu og verið styðjandi við önnur sveitarfélög. Ekki er hægt að horfa fram hjá því að Reykjavíkurborg ber meginþungann af kostnaði vegna málaflokksins og hefur leitast eftir aukinni samvinnu annarra sveitarfélaga.
Sveitarfélögin í Kraganum eru hvert og eitt með samstarfssamning við Reykjavíkurborg um nýtingu á neyðarþjónustu. Þá hafa þau unnið að uppbyggingu þjónustunnar í málaflokknum í sínum sveitarfélögum. Brýnt er að sveitarfélög fari í formlegt samstarf um aðra þjónustu sem byggir á sérhæfingu og þekkingu sem myndast hefur á undanförnum árum hjá borginni, svo sem hjá Vettvangs- og ráðgjafateymi.
Sameiginlegur fundur félagsmálanefnda á höfuðborgarsvæðinu skorar á ríkið að móta stefnu í málaflokknum til framtíðar og leggur áherslu á að ríkið komi meira að fjármögnun hans. Þá leggur fundurinn einnig áherslu á að unnið verði áfram að framþróun málaflokksins hjá hverju og einu sveitarfélagi og þar verði m.a. stuðst við skýrslu um málefni heimilislausra sem gefin var út í mars 2023 á vettvangi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu."

Velferðarráð Garðabæjar

02

9. fundur

Föstudaginn 7. nóvember verður haldinn sameiginlegur fundur velferðarráða á höfuðborgarsvæðinu milli kl. 9 og 12 í Hlégarði í Mosfellsbæ. Á fundinum verður m.a. rætt um málefni heimilislausra. Óskað hefur verið eftir þátttöku ráðsmanna velferðarráðs Garðabæjar.

Fundarboð verður sent til aðalmanna velferðarráðs.

Velferðarráð Garðabæjar

03

8. fundur

Erindi frá Rannveigu Einarsdóttir, sviðsstjóra velferðarsvið Reykajvíkurborgar, dagsett 28.05.2025, um sameiginlegan fund félagsmálanefnda sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um málefni heimilislausra.

Erindi frá Rannveigu Einarsdóttir, sviðsstjóra velferðarsvið Reykjavíkurborgar, dagsett 28.05.2025, um sameiginlegan fund félagsmálanefnda sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um málefni heimilislausra lagt fram. Velferðarráð tekur jákvætt í erindið og samþykkir að senda tvo fulltrúa frá velferðarráði Garðabæjar á fyrirhugaðan fund.