Beint í efni

10. fundur

21.11.2025
Velferðarráð Garðabæjar

10. fundur

Velferðarráð Garðabæjar

í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi

21.11.2025

Kl. 08:15 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - formaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • María Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Rakel Steinberg Sölvadóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Snædís Björnsdóttir - lögfræðingur

Ritari

  • Snædís Björnsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2509074

01

Sameiginlegur fundur félagsmálanefnda sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um málefni heimilislausra

Fundargerð og ályktun sameiginlegs fundar félagsmálanefnda sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá 7. nóvember 2025 um málefni heimilislausra lögð fram til kynningar og umræðu.

Sameiginlegur fundur félagsmálanefnda Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar, Reykjavíkur og Seltjarnarness um málefni heimilislausra. Fyrir hönd velferðarráðs Garðabæjar mættu Sturla Þorsteinsson, aðalmaður, Þorbjörg Þorvaldsdóttir, aðalmaður, Tamar Lipka Klara Þormarsdóttir, varamaður og Berglind Víðisdóttir, varamaður. Fundinn sátu fyrir hönd Garðabæjar einnig Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs og Snædís Björnsdóttir, lögfræðingur, sem ritaði fundargerð. Fundurinn var haldinn að frumkvæði velferðarráðs Reykjavíkurborgar.

Samþykkt var sameiginleg ályktun fundarins, svohljóðandi:

"Miklar framfarir hafa átt sér stað í þjónustu við heimilislausa einstaklinga með miklar og flóknar þjónustuþarfir á undanförnum árum. Aukin áhersla hefur verið lögð á kortlagningu og greiningu á notendahópi, aukið notendasamráð og nýsköpun í þróun á þjónustuleiðum fyrir einstaklinga með mismunandi þjónustuþarfir. Reykjavíkurborg hefur leitt þá vinnu og verið styðjandi við önnur sveitarfélög. Ekki er hægt að horfa fram hjá því að Reykjavíkurborg ber meginþungann af kostnaði vegna málaflokksins og hefur leitast eftir aukinni samvinnu annarra sveitarfélaga.

Sveitarfélögin í Kraganum eru hvert og eitt með samstarfssamning við Reykjavíkurborg um nýtingu á neyðarþjónustu. Þá hafa þau unnið að uppbyggingu þjónustunnar í málaflokknum í sínum sveitarfélögum. Brýnt er að sveitarfélög fari í formlegt samstarf um aðra þjónustu sem byggir á sérhæfingu og þekkingu sem myndast hefur á undanförnum árum hjá borginni, svo sem hjá Vettvangs- og ráðgjafateymi.

Sameiginlegur fundur félagsmálanefnda á höfuðborgarsvæðinu skorar á ríkið að móta stefnu í málaflokknum til framtíðar og leggur áherslu á að ríkið komi meira að fjármögnun hans. Þá leggur fundurinn einnig áherslu á að unnið verði áfram að framþróun málaflokksins hjá hverju og einu sveitarfélagi og þar verði m.a. stuðst við skýrslu um málefni heimilislausra sem gefin var út í mars 2023 á vettvangi Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu."

Málsnúmer 2101189

02

Samráðsfundir velferðasviða hjá SSH

Fundargerð frá nóvember 2025.

Fundargerð samráðshóps SSH um velferðarmál frá nóvember 2025 lögð fram til kynningar.

Málsnúmer 2511168

03

Endurnýjun samnings um samræmda móttöku flóttafólks 2026 - Drög að viðauka

Lögð eru fram drög að viðauka við samning um samræmda móttöku flóttafólks í Garðabæ fyrir árið 2026. Fjallað var um málið á fundi bæjarráðs 18. nóvember 2025 og var því í framhaldi vísað til skoðunar á velferðarsviði og til umfjöllunar hjá velferðarráði.

Farið yfir minnisblað sviðsstjóra tengt drögum að viðauka við þjónustusamning vegna samræmdrar móttöku flóttafólks. Velferðarráð fjallar um málið og leggur til að skrifað verði undir viðaukann þar sem samþykkt verði að þjónusta 100-110 einstaklinga í samræmdri móttöku á árinu 2026.

Málsnúmer 2510357

04

Gæðaviðmið fyrir félagsþjónustu

Drög að gæðaviðmiðum í félagsþjónustu lögð fram til kynningar. Bæjarráð vísaði málinu til úrvinnslu á velferðarsviði á fundi sínum 28. október 2025. Sveitarfélögin hafa unnið sameiginlega umsögn sem send hefur verið Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála.

Farið yfir drög að gæðaviðmiðum í félagsþjónustu og sameiginlega umsögn sveitarfélaga til Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála.

Málsnúmer 2511361

05

Drög að frumvarpi til nýrra barnaverndarlaga

Umsagnarfrestur í Samráðsgátt vegna draga að nýjum lögum um barnavernd rennur út 27. nóvember 2025.

Drög að frumvarpi til nýrra laga um barnavernd lögð fram til kynningar og umræðu.

Málsnúmer 2511186

06

Frumvarp til laga um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn

Drög að frumvarpi til laga um öryggisráðstafanir skv. dómsúrlausn lögð fram til kynningar ásamt umsögn sem Samband íslenskra sveitarfélaga sendi í samráðgátt. Þá er einnig lagt fram til kynningar og umræðu minnisblað frá Félags- og húsnæðismálaráðuneyti varðandi mat á þjónustuþörf einstaklinga sem lokið hafa öryggisgæslu eða gert er að sæta vægari öryggisráðstöfunum dags. 7.10.2025.

Lagt fram til umræðu og kynningar.