Beint í efni

Endurnýjun samnings um samræmda móttöku flóttafólks 2026 - Drög að viðauka

Málsnúmer 2511168

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

17. (969). fundur

Bæjarstjórn samþykkir viðauka III við þjónustusamning milli Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og Garðabæjar um samræmda móttöku flóttafólks, þannig að einstaklingar í samræmdri móttöku verði 100 á árinu 2026.

Bæjarráð Garðabæjar

02

43. (2191). fundur

Sviðsstjóri velferðarsviðs gerði grein fyrir drögum að viðauka III við samning um samræmda móttöku flóttafólks.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka III við þjónustusamning milli Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og Garðabæjar um samræmda móttöku flóttafólks, þannig að einstaklingar í samræmdri móttöku verði 100 á árinu 2026.

Velferðarráð Garðabæjar

03

10. fundur

Lögð eru fram drög að viðauka við samning um samræmda móttöku flóttafólks í Garðabæ fyrir árið 2026. Fjallað var um málið á fundi bæjarráðs 18. nóvember 2025 og var því í framhaldi vísað til skoðunar á velferðarsviði og til umfjöllunar hjá velferðarráði.

Farið yfir minnisblað sviðsstjóra tengt drögum að viðauka við þjónustusamning vegna samræmdrar móttöku flóttafólks. Velferðarráð fjallar um málið og leggur til að skrifað verði undir viðaukann þar sem samþykkt verði að þjónusta 100-110 einstaklinga í samræmdri móttöku á árinu 2026.

Bæjarráð Garðabæjar

04

42. (2190). fundur

Lögð fram drög að viðauka III við þjónustusamning milli félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, Vinnumálastofnunar og Garðabæjar um samræmda móttöku flóttafólks.
Bæjarráð vísar málinu til skoðunar hjá velferðarsviði og til umfjöllunar hjá velferðarráði.