42. (2190). fundur
42. (2190). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
18.11.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Margrét Bjarnadóttir - varamaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2507256
01
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026 - 2029)
Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu útsvars:
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 14,71% á tekjur manna á árinu 2026 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24.gr. laganna.
Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2025, samkvæmt 2.mgr. 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995."
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Lagt fram yfirlit yfir ábendingar sem borist hafa frá íbúum varðandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2026.
Lagt fram yfirlit yfir mál sem hefur verið vísað til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Farið var yfir helstu atriði og dagsetningar varðandi vinnu við fjárhagsáætlun fram að seinni umræðu í bæjarstjórn, sem fyrirhuguð er 4. desember nk.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fundinn undir þessum lið.
Málsnúmer 2511168
02
Endurnýjun samnings um samræmda móttöku flóttafólks 2026 - Drög að viðauka.
Lögð fram drög að viðauka III við þjónustusamning milli félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, Vinnumálastofnunar og Garðabæjar um samræmda móttöku flóttafólks.
Bæjarráð vísar málinu til skoðunar hjá velferðarsviði og til umfjöllunar hjá velferðarráði.
Málsnúmer 2505510
03
Bílastæðasjóður Garðabæjar
Lagðar fram samþykktir fyrir bílastæðasjóð Garðabæjar.
Þörf hefur verið talin á að stofna slíkan sjóð þar sem á mörgum stöðum í bænum er bifreiðum lagt ólöglega. Slíkt getur skapað hættu fyrir gangandi og akandi vegfarendur, tafið snjómokstur, viðhald og för sjúka- og slökkvibifreiða. Þá ber einnig á því að skammtímastæði á bílastæðum í Garðabæ eru notuð sem langtíma geymslur fyrir bifreiðar og aftanívagna.
Gert er ráð fyrir að sjóðurinn verði settur upp sem B-hluta fyrirtæki og að daglegur rekstur og mannaforráð fyrir sjóðinn verði í verkahring umhverfissviðs en að fjármála- og stjórnsýslusvið sjá um innheimtu gjalda/sekta og afgreiði andmæli vegna þeirra.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að staðfesta samþykktir um bílastæðasjóð Garðabæjar.
Málsnúmer 2511220
04
Erindi UMFÍ um áskoranir og hvatningar til ríkis og sveitarfélaga, dags. 13.11.25.
Lögð fram áskorun og hvatning frá 54. Sambandsþingi Ungmennafélags Íslands, þar sem skorað er á ríki og sveitarfélög að efla lýðheilsu þjóðarinnar með því að hrinda af stað þjóðarátaki í lýðheilsu og forvörnum, þar sem kraftar íþrótta- og ungmennahreyfingarinnar verða nýttir til fulls.
Málsnúmer 2511230
05
Erindi Alþingis varðandi frumvarp til laga um verndar- og orkunýtingaráætlun og raforkulög, 229. mál., dags. 13.11.25.
Lagt fram.
Málsnúmer 2511237
06
Erindi Alþingis varðandi breytingu á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, 237. mál, dags. 13.11.25.
Lagt fram.