Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 - úthlutun styrkja.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
15. (2210). fundur
Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um úthlutun styrkja:
Garðakórinn, kór eldri borgara kr. 500.000.
Kvennaathvarf, kr. 900.000.
Stígamót kr. 900.000.
Kór Vídalínskirkju kr. 300.000.
Örninn - minningar og styrktarsjóður kr. 1.000.000.
UMFÁ herinn - vegna forsetabikarsins kr. 1.000.000.
Bjarkarhlíð kr. 900.000.
Fylgiskjöl
Velferðarráð Garðabæjar
02
2. fundur
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, kynnti fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
4. (974). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að reglum um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum.
Öldungaráð
04
1. fundur
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026.
Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri kynnti fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026.
Bæjarráð Garðabæjar
05
5. (2200). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að breytingum á reglum um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
06
3. (973). fundur
Bæjarstjórn staðfestir hagræðingartillögur við fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026-2029).
Hagræðingarkrafa nemur alls kr. 200.000.000 og skiptist eftirfarandi á milli sviða: 1. Velferðarsvið kr. 50.000.000. Hlutfall hagræðingar 1,0%
2. Fræðslu- og frístundasvið kr. 80.000.000. Hlutfall hagræðingar 0,4%.
3. Umhverfissvið kr. 50.000.000. Hlutfall hagræðingar 1,4% (án eignasjóðs).
4. Þjónustu- og þróunarsvið kr. 15.000.000. Hlutfall hagræðingar 2,0%.
5. Fjármála- og stjórnsýslusvið kr. 5.000.000. Hlutfall hagræðingar 0,5%.
Bæjarráð Garðabæjar
07
2. (2197). fundur
Bæjarstjóri kynnti útfærslu hagræðingar vegna fjárhagsáætlunar Garðabæjar fyrir 2026.
Hagræðingarkrafa nemur alls kr. 200.000.000 og skiptist eftirfarandi á milli sviða:
1. Velferðarsvið kr. 50.000.000. Hlutfall hagræðingar 1,0%
2. Fræðslu- og frístundasvið kr. 80.000.000. Hlutfall hagræðingar 0,4%.
3. Umhverfissvið kr. 50.000.000. Hlutfall hagræðingar 1,4% (án eignasjóðs).
4. Þjónustu- og þróunarsvið kr. 15.000.000. Hlutfall hagræðingar 2,0%.
5. Fjármála- og stjórnsýslusvið kr. 5.000.000. Hlutfall hagræðingar 0,5%.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi hagræðingartillögur við fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026-2029).
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
2. (972). fundur
Lögð fram gjaldskrá stuðningsþjónustu í Garðabæ 2026. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.
Gjaldskráin er samþykkt samhljóða.
Leikskólanefnd Garðabæjar
09
37. fundur
Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri kynnti fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026.
Bæjarráð Garðabæjar
10
1. (2196). fundur
Snædís Björnsdóttir lögfræðingur á velferðarsviði kynnti drög að nýrri gjaldskrá stuðningsþjónustu Garðabæjar 2026.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi gjaldskrá stuðningsþjónustu 2026.
Bæjarráð Garðabæjar
11
1. (2196). fundur
Lögð fram eftirfarandi tillaga um viðmiðunarfjárhæðir samkvæmt reglum um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.
„Einstaklingar með tekjur árið 2024 allt að kr. 7.332.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 6.400 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 7.972.000. (Ath. að fjármagnstekjur falla undir tekjur).
Hjón og samskattaðir aðilar (elli- og örorkulífeyrisþegar):
Hjón með tekjur árið 2024 allt að kr. 9.331.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 15.400 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 10.871.000. (Ath. að fjármagnstekjur falla undir tekjur).
Ekki þarf að sækja um lækkunina.“
Tillagan byggir á hækkun á ellilífeyris í janúar 2026 (5,2% hækkun).
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu.
Bæjarstjórn Garðabæjar
12
17. (969). fundur
Eftirfarandi tillaga lögð fram. Fasteignaskattur skal vera 0,149% af fasteignamati íbúða og íbúðarhúsa ásamt lóðarréttindum, erfðafestulanda og jarðeigna, sbr. a-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Fasteignaskattur skal vera 1,49% af öðrum fasteignum, sem metnar eru í fasteignamati, sbr. c-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Leigugjald á íbúðarhúsalóðum Garðabæjar skal vera 0,4% af fasteignamati lóðar og er þá ekki nýtt að fullu heimild bæjarins sem er 1,0% samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna. Leigugjald á atvinnuhúsalóðum Garðabæjar skal vera 1,0% af fasteignamati lóðar, samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna. Vatnsgjald skal vera 0,071% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. heimild í reglugerð um vatnsveitur. [Sjá gjaldskrá] Aukavatnsgjald skal á árinu 2026 vera 36,9 kr/tonn m.v. BVT í uppreiknaða í desember 2025. Á Álftanesi skal vatnsgjald vera samkvæmt gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur sem innheimtir vatnsgjald samkvæmt samningi. Fráveitugjöld skulu vera 0,074% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. samþykkt um fráveitu í Garðabæ nr. 282/2005. [Sjá gjaldskrá] Á Álftanesi skal rotþróargjald vera kr. 39.400. Sorphirðugjald skal vera samkvæmt sérstakri gjaldskrá. Taðþróargjöld í hesthúsahverfi Andvara skulu vera kr. 456.900 á hvert hús fyrir tímabilið 1. janúar 2026 til 30. júní 2026. [Sjá gjaldskrá]. Fasteignaskattur og fráveitugjald sem tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða skal lækka að teknu tilliti til viðmiðunartekna. Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að ákvarða viðmiðunartekjur samkvæmt reglum um lækkun fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega. Gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2026 verða 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. september og 15. október.
Tillaga um álagningu fasteignagjalda samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn Garðabæjar
13
17. (969). fundur
Lögð fram gjaldskrá leikskóla með gildistíma frá 1. janúar 2026.
Gjaldskráin samþykkt með 9 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, HRG, BDG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA).
Bæjarstjórn Garðabæjar
14
17. (969). fundur
Lögð fram gjaldskrá um hreinsun taðþróa í hesthúsahverfinu á Kjóavöllum þar sem fram kemur að taðþróargjald verði kr. 456.000 fyrir tímabilið 1. janúar 2026 til 30. júní 2026.
Gjaldskráin samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn Garðabæjar
15
17. (969). fundur
Skólamálsverðir í Garðabæ eru gjaldfrjálsar árið 2026.
Bæjarstjórn Garðabæjar
16
17. (969). fundur
Lögð fram gjaldskrá fráveitu þar sem fram kemur að fráveitugjald verði 0,074% af álagningarstofni.
Gjaldskráin samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn Garðabæjar
17
17. (969). fundur
Lögð fram gjaldskrá fyrir Garðahraun þar sem gert er ráð fyrir 4,0% hækkun.
Gjaldskráin samþykkt með 9 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, HRG, BDG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA).
Bæjarstjórn Garðabæjar
18
17. (969). fundur
Lögð fram gjaldskrá fyrir akstursþjónustu eldri borgara Garðabæjar þar sem gert er ráð fyrir að gjald fyrir hverja ferð nemi einu og hálfu strætisvagnafargjaldi.
Gjaldskráin samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn Garðabæjar
19
17. (969). fundur
Lögð fram samþykkt um breytingu á gjaldskrá vatnsgjalds þar sem fram kemur að vatnsgjald verði 0,071% af fasteignamati húsa og lóða.
Samþykkt um breytingu á gjaldskrá vatnsgjalds samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn Garðabæjar
20
17. (969). fundur
Lögð fram gjaldskrá bókasafns Garðabæjar þar sem gert er ráð fyrir 4,0% hækkun.
Gjaldskráin samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn Garðabæjar
21
17. (969). fundur
Lögð fram gjaldskrá Tónistarskóla Garðabæjar, þar sem gert er ráð fyrir 6% hækkun, sem taki gildi í september 2025. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.
Gjaldskráin samþykkt með 9 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, HRG, BDG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA).
Bæjarstjórn Garðabæjar
22
17. (969). fundur
Lögð fram gjaldskrá sundlauga Garðabæjar þar sem gert er ráð fyrir 4,0% hækkun.
Gjaldskráin samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn Garðabæjar
23
17. (969). fundur
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri, fjallaði um frumvarp að fjárhagsáætlun og fór yfir vinnu við gerð fjárhagsáætlunar. Bæjarstjóri þakkaði starfsmönnum bæjarins fyrir þeirra aðkomu að gerð fjárhagsáætlunar og íbúum fyrir ábendingar sem fram komu á vef Garðabæjar. Bæjarstjóri lýsti ánægju með gott samstarf allra bæjarfulltrúa við umfjöllum um fjárhagsáætlun. Bæjarstjóri fjallaði um helstu niðurstöður sem koma fram í frumvarpinu og greinargerð sem hefur verið uppfærð og er lögð fram nú við síðari umræðu.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir eftirfarandi tillögum að breytingum við frumvarpið eins og það var lagt fram við fyrri umræðu.
Tekjur:
Fasteignaskattur íbúðarhúsnæðis lækki í 0,149% og atvinnuhúsnæðis í 1,49%, samtals lækkun að fjárhæð 110mkr.
Lækkun framlags Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 260mkr., skv. uppfærðri áætlun sjóðsins.
Aðrar tekjur hækka um 423mkr, sem er innlausn gatnagerðartekna og leiðrétting.
Breytingar á tekjum kr. 53mkr. til hækkunar.
Gjöld:
Leiðréttingar, gjaldskrár o.fl., 16mkr. til lækkunar.
Hækkun hvatapeninga 30mkr.
Samningar við félög 90mkr.
Sumarnámskeið , frekari breytingar 15mkr.
Farsæld barna, stuðningsúrræði 12mkr.
Íslenska, lestur, bókasafn/skólar 3mkr.
Forvarnir og heilsuefling eldri borgara 10mkr.
Stafræn málefni og þjónusta, stöðugildi 12mkr.
Áhersluverkefni í þjónustu 6mkr.
Stafræn verkefni/gervigreind 12mkr.
Vinna gegn skólaforðun unglinga 8mkr.
Sjálfstætt starfandi skólar 10mkr.
Þróun á námsmati/mælaborð/samræming 5mkr.
Vinna og virkni fatlaðs fólks 2mkr.
Fegrun bæjarlands 5mkr.
Hagræðing almenn á málaflokka 200mkr.
Breytingar á útgjöldum 4mkr. til hækkunar.
Hækkun á rekstrarafgangi A-sjóðs 70mkr. Rekstrarafgangur A-sjóðs fyrri umræða 76mkr. Rekstrarafgangur A-sjóðs með breytingum 359mkr.
Rekstrarafgangur A og B sjóðs með breytingum 595mkr.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Viðreisn samþykkir framlagða fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 og þær álögur sem byggja undir tekjuhlið hennar.
Við vinnu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026 hafa öll stjórnmálaöfl í bæjarstjórn Garðabæjar fylgt tímalínu við vinnslu fjárhagsáætlunar. Þó er brýnt að benda á að þann eðlismun sem er á aðkomu minnihluta og meirihluta við framkvæmd á þessari áætlanagerð. Meirihlutinn ber ábyrgð á vinnu þessarar áætlunar og býður upp á samtal um hana hvort sem um er að ræða forsendur hennar, gjaldskrár, fjárfestingar eða rekstur.
Fjárhagsáætlun fyrir árið 2026 myndi því líta öðruvísi út ef Viðreisn kæmi að rekstri bæjarins í meirihluta, með þessum áherslum:
Fyrst ber að nefna að Viðreisn vill sjá sveitarfélagið taka af markvissari hætti á starfsmannamálum. Hvert sem litið er í rekstri bæjarins þá veltur það á góðum mannauði bæjarins sem starfar daglega við að veita bæjarbúum fyrirmyndar þjónustu. Starfsvettvangur í framlínu sveitarfélagsins er sérlega mikilvægur og getur hins vegar á köflum verið einkar krefjandi. Við viljum veita starfsfólki okkar aukna og verðskuldaða athygli með því að fjármagna aðgerðir til að hlúa betur að mannauði sveitarfélagsins. Viðreisn lítur á slíka aðgerð sem fjárfestingu í okkar dýrmætustu auðlind. Starfsmannakostnaður er einn stærsti einstaki útgjaldaliður sveitarfélagsins og því mikilvægt að rýna hann vel. Viðreisn vill með þessu einnig stíga markviss skref í því að vera fyrirmyndarvinnustaður þar sem hlúð er að heilsu og velferð starfsfólks, stjórnendur fá þjálfun við hæfi, starfsfólk fær hvatningu og að það sé eftirsóknarvert að vinna fyrir Garðabæ. Það skilar sér til baka í auknum ávinningi til bæjarfélagsins, bæði fjárhagslegum sem ófjárhagslegum.
Markmið með þessum auknu áherslum Viðreisnar er að hlúa að vellíðan starfsfólks Garðabæjar, draga úr fjarveru t.d. vegna veikinda, halda í dýrmætan mannauð, byggja upp og viðhalda þekkingu og reynslu til þess að þróast áfram í starfi, mæta þeim breytingum kunna að skapast og koma auga tækifæri til að veita aukna þjónustu eða til hagræðingar.
Viðreisn vill sjá sjálfbæran rekstur sveitarsjóðs þannig að einskiptistekjur, t.a.m. gatnagerðagjöld, fari beint til fjárfestinga eða niðurgreiðsla skulda en blandist ekki öðrum skatttekjum og þjónustugjöldum til að fjármagna grunnrekstur sveitarfélagsins. Það er sérstaklega hættulegt til framtíðar fyrir Garðabæ að blanda þessu tvennu saman, fyrir bæjarfélag sem á mikil tækifæri til uppbyggingar á næstu árum. Þetta er grunnforsenda þess að hér sé sterkur bæjarsjóður í Garðabæ sem er vel í stakk búinn að halda áfram að veita góða þjónustu.
Viðreisn leggur að endingu til að tekið verði upp upp áhættumat við fjárhagsáætlanagerð, en áhætta við rekstur Garðabæjar getur birst okkur í ólíkustu og ólíklegustu myndum. Öllum fjárhag fylgir undirliggjandi áhætta. Það er því mikilvægt fyrir bæjarfulltrúa og sviðsstjóra okkar að hafa glöggva mynd á þeim áhættum sem fylgir rekstri eins og okkar. Hér má t.d. nefna rekstraráhættur við mögulegri náttúruvá, starfsmannaveltu, veikindi starfsmanna, lausafjárstöðu, verðbólgu, ástand fasteigna, óvissu við rekstur byggðasamlaga, skemmdir eða árásir. Þær ákvarðanir sem teknar eru með áhættumiðaðar forsendur til hliðsjónar eru alla jafnan betur upplýstar en ella."
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026-2029 sýnir sveitarfélag í áframhaldandi uppbyggingu og fjárfestingum.
Marga jákvæða hluti má taka til, svo sem lækkandi fjármagnsgjöld - sem áætluð eru 1.5 milljarður 2026 fyrir A-hluta - en voru, til samanburðar, 2.2 milljarðar árið 2023, 2.1 milljarður 2024 og tæpir 1.9 milljarður samkvæmt útkomuspá fyrir 2025. Þetta er mjög jákvæð þróun, enda þýðir þetta einfaldlega að minna af tekjum bæjarins fer í vaxtakostnað. Unnið er að því að greiða niður skammtímaskuldir samhliða því að vextir og verðbólga bíta ekki eins fast - sem birtist með þessum jákvæða hætti í bókhaldinu og í áætluninni.
Þrátt fyrir að skuldir aukist jafnt og þétt vegna uppbyggingar og fjárfestinga í innviðum hefur skuldahlutfall Garðabæjar fyrir A-hluta, skuldir sem hlutfall af tekjum, farið lækkandi úr 131% 2023, í 118% 2024, 105% skv. útkomuspá fyrir árið í ár og verður 106% samkvæmt áætluninni fyrir árið 2026.
Á milli umræðna lagði Garðabæjarlistinn áherslu á hækkun hvatapeninga upp í 75 þúsund krónur, aukna fjárfestingu í félagslegu húsnæði og aukið stofnframlag til uppbyggingar á fjölbreyttu húsnæði, m.a. fyrir tekjulægra fólk.
Hluti þeirra breytinga sem meirihlutinn lagði til á milli umræðna er hækkun hvatapeninga í 67 þúsund krónur úr 60 þúsundum. Við fögnum því, en hefðum viljað sjá bæjarstjórn ganga lengra fyrir barnafjölskyldur í bænum - sem við tjáðum meðal annars með því hvernig við kusum um gjaldskrár. Ekki var brugðist við áherslum okkar um aukna fjárfestingu í félagslegu húsnæði og auknar fjárhæðir í stofnframlög.
Í janúar fengum við yfirlit yfir umsóknir um félagslegt leiguhúsnæði fyrir árið 2024 í velferðarráði. Það ár voru 24 umsóknir samþykktar, en aðeins ein úthlutun fór fram. Fólk þarf að uppfylla mörg matsskilyrði til þess að teljast í nægilega mikilli neyð til þess að fá umsóknir um félagslegt leiguhúsnæði samþykktar. Árið 2024 var 21 barn í þessari stöðu. Uppbygging á húsakosti Garðahúsa, svo betur megi takast á við aðkallandi neyð íbúa - sem gerir ekki endilega boð á undan sér - verður að okkar mati að gerast hraðar en meirihlutinn leggur til.
Stofnframlög frá Garðabæ hafa á undanförnum árum meðal annars verið nýtt til þess að styðja kaup leigufélagsins Brynju, sem er í eigu ÖBÍ, á almennu húsnæði í bænum. Þetta hefur létt á biðlista vegna félagslegs húsnæðis. Garðabæjarlistinn vill sjá meira fjármagn sett í stofnframlög, en þau hafa staðið í um 40 milljónum undanfarin ár. Stofnframlög má nota til þess að byggja upp í almenna íbúðakerfinu í samvinnu við óhagnaðardrifin leigufélög, sem eru t.a.m. einnig rekin af stéttarfélögum. Meirihlutanum er tíðrætt um séreignastefnu sína, sem litar áherslur í húsnæðisuppbyggingu í Garðabæ, en við bendum á að örugg leiga og viðráðanleg er forsenda þess að fólk sem ekki er fjársterkt eða nýtur stuðnings ættingja geti komist á fasteignamarkaðinn.
Við þökkum fyrir samráð og samtal í aðdragandanum og á meðan vinnunni hefur staðið. Margt af því sem meirihlutinn leggur fram er jákvætt og til þess fallið að bæta samfélagið okkar. Eftir stendur þó að Garðabæjarlistinn hefði forgangsraðað með öðrum hætti og mun því ekki samþykkja þessa áætlun."
Gunnar Valur Gíslason tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Meginmarkmið bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ snýst um gott mannlíf og að lífsgæði og vellíðan bæjarbúa verði tryggð til framtíðar. Okkar leiðarljós að þessu markmiði er ábyrgur rekstur bæjarfélagsins, lágar skattálögur og framúrskarandi þjónusta við bæjarbúa.
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2026 og þrjú næstu ár endurspeglar þessar megináherslur okkar, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Álagningarhlutfall útsvars í Garðabæ verður áfram 14,71% sem er hið lægsta meðal stærstu sveitarfélaga landsins. Álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði lækkar í 0,149% og er áfram hið lægsta á höfuðborgarsvæðinu. Vatnsgjald og holræsagjald lækka einnig, ásamt fasteignaskatti á atvinnuhúsnæði til að mæta hækkun fasteignamats á eignir í Garðabæ.
Fjárhagsáætlun ársins 2026 var unnin í opnu og gagnsæju ferli þar sem fjölmargir Garðbæingar sendu greinargóðar ábendingar í samráðsgátt bæjarins. Í fjárhagsáætluninni er lögð áhersla á að styrkja enn frekar skólaþjónustuna í bænum, efla forvarnarstarf barna og ungmenna og vinna gegn félagslegri einangrun eldri borgara ásamt því að áhersla á farsæld, forvarnir og umhverfismál rýma vel við þær ábendingar sem íbúar sendu inn.
Samkvæmt framkvæmdaáætlun verður mikið fjárfest í innviðum bæjarins á árinu 2026. Garðabær er í örum vexti og markmiðið er að byggja undir vöxt sveitarfélagsins og velferð íbúa á komandi árum. Að stærstum hluta snýst uppbyggingin um skólahúsnæði, leikskóla, nýjan búsetukjarna fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti, stígakerfi og lóðir undir íbúðir þar sem fjölbreyttir húsnæðiskostir verða í boði með aukinni áherslu á sérbýli í Hnoðraholti. Mikill kraftur er settur í miðbæ Garðabæjar á Garðatorgi og sjálfbærni veitukerfa þar sem vatns- og fráveituframkvæmdir eru fyrirferðarmestar.
Lántökur bæjarsjóðs Garðabæjar verða áfram hóflegar og í útkomuspá 2025 og í áætlun tímabilsins 2026-2029 er gert ráð fyrir umtalsverðri lækkun skuldahlutfalla bæjarsjóðs frá árinu 2024.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins stefna ótrauðir að því áfram að álagningarhlutföll útsvars og fasteignaskatts í Garðabæ séu hin lægstu meðal stærstu sveitarfélaga landsins, að þjónustukannanir staðfesti áfram mikla ánægju íbúa með þá þjónustu sem bærinn veitir og að íbúar séu ávallt mjög ánægðir með Garðabæ sem sveitarfélag til að búa í."
Brynja Dan Gunnarsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Við í Framsókn leggjum áherslu á ábyrga fjármálastjórn og sjálfbæran rekstur bæjarfélagsins.
Okkar áherslur hafa ekki breyst, við höfum áhyggjur af þróun skuldastöðu bæjarins, sem hefur vaxið hratt á undanförnum árum og er nú komin yfir 40 milljarða króna. Þessi skuldasöfnun, ásamt veikri lausafjárstöðu, dregur úr svigrúmi bæjarins til að fjárfesta í grunnþjónustu og bregðast við ófyrirséðum áföllum.
Við höfum talað fyrir hækkun hvatapeninga og því er ánægjulegt að sjá að þeir hækka, en hefðum viljað sjá þá hækka enn meira og í takt við hækkandi kostnað heimilanna til að létta undir með fjölskyldufólki sem velur Garðabæ frekar en önnur sveitafélög á höfuðborgarsvæðinu.
Í fyrirliggjandi fjárhagsáætlun er áfram gert ráð fyrir verulegum lántökum á sama tíma og engin skýr sýn er á raunverulega lækkun skulda. Greiðslubyrði vegna skulda, bæði afborganir og vextir, nemur nú 7?8% af heildartekjum bæjarins, sem er hátt hlutfall miðað við sveitarfélag af þessari stærð. Þrátt fyrir hátt bókfært eigið fé er ljóst að megnið af því er bundið í fasteignum og innviðum, og því ekki til ráðstöfunar til að mæta skuldbindingum.
Fjárfestingar þurfa að vera í samræmi við greiðslugetu, og rekstur byggjast á reglulegum og sjálfbærum tekjum fremur en einskiptistekjum eða nýjum lánum. Framsókn leggur áherslu á að fjármál bæjarins verði rekin með langtímahagsmuni íbúa að leiðarljósi, með festu, varfærni og gagnsæi. Við hefðum viljað sjá meirihlutann taka skynsamlegar skerðingar, þvert á svið, mælanlegri 1% skerðingu svo koma megi til móts við aukinn kostnað og lántökur.
Með íbúana í forgrunni viljum við sjá ákveðin skref tekin í forvarnarstarfi td með lengri opnun sundlauga en líka með betri gæslu og öryggis í bænum okkar. Því miður hafa of margar árásir á ungmenni átt sér stað undanfarið. Börn og aðrir íbúar upplifa sig ekki örugg, og þarf gæsla, vöktun og öryggið að vera sýnilegra. Upplifun af öryggi kemur með sýnileika.
Hluti af þessu er líka að liðka fyrir leið viðbragðsaðila að stöðum sem ekki eru eins öruggir, td. Eins og undirgöngin við Lækjarás."
Björg Fenger tók til máls.
Almar Guðmundsson tók til máls að nýju.
Tillaga um breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun er samþykkt með 8 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, HRG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA). BDG sat hjá.
Bæjarstjórn samþykkir framkvæmdayfirlit fjárhagsáætlunar með framkomnum breytingum með 8 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, HRG, GK). Þrír sitja hjá (ÞÞ, IA, BDG).
Bæjarstjórn samþykkir frumvarp að fjárhagsáætlun með framkomnum breytingartillögum sem fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2026-2029 með 8 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, HRG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA). BDG sat hjá.
Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025- 2028 eru (í þús.kr.):
2026 2027 2028 2029
Tekjur 36.660.387 38.438.482 40.378.263 42.568.185
Gjöld 32.304.222 33.894.631 35.453.459 37.206.796
Rnst. f. afskr. 4.356.165 4.545.852 4.924.804 5.631.796
Afskriftir -2.032.564 -2.136.793 -2.310.627 -2.460.573
Rnst. án fjáml. 2.323.601 2.407.058 2.614.177 2.900.816
Fjám.tekjur/gjöld -1.729.708 -1.561.979 -1.626.139 -1.699.515
Rekstarniðurst. 593.893 845.079 988.038 1.201.300
Framkvæmdir 4.959.000 4.963.000 5.000.000 4.799.000
Bæjarstjórn Garðabæjar
24
17. (969). fundur
Lögð fram gjaldskrá frístundabíls þar sem gert er ráð fyrir 6,0% hækkun.
Gjaldskráin er samþykkt með 9 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, HRG, BDG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA).
Bæjarstjórn Garðabæjar
25
17. (969). fundur
Lögð fram gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs í Garðabæ.
Gjaldskráin samþykkt samhljóða.
Bæjarstjórn Garðabæjar
26
17. (969). fundur
Lagðar fram reglur um tekjutengingu afslátta af leikskólagjöldum, gjöldum frístundaheimila og gjöldum til dagforeldra. Reglurnar fylgdu fundarboði og eru vistaðar í fundargátt.
Reglurnar samþykktar samhljóða.
Bæjarstjórn Garðabæjar
27
17. (969). fundur
Lögð fram gjaldskrá fyrir frístundaheimili þar sem gert er ráð fyrir 4,0% hækkun.
Gjaldskráin samþykkt með 9 atkvæðum (AG, BF, SHJ, MB, HBE, GVG, HRG, BDG, GK) gegn 2 (ÞÞ, IA).
Bæjarráð Garðabæjar
28
44. (2192). fundur
Farið yfir tillögur um álagningu fasteignaskatts og þjónustugjalda ásamt tillögum um breytingar við frumvarp að fjárhagsáætlun sem verða til afgreiðslu við síðari umræðu um fjárhagsáætlun á fundi bæjarstjórnar 4. desember nk.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum dagskrárlið.
Bæjarráð Garðabæjar
29
43. (2191). fundur
Sviðsstjóri umhverfissviðs gerði grein fyrir tillögu að gjaldskrá sorpgjalds sem byggir á því að íbúar greiði samkvæmt gjaldskrá raunkostnað fyrir þjónustu við losun heimilisúrgangs, sbr. lög 103/2021 um breytingu á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, lögum um meðhöndlun úrgangs og lögum um úrvinnslugjald.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu breytingum á gjaldskrám.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir drögum að framkvæmdaáætlun fyrir árin 2026-2029.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir helstu breytingum sem orðið hafa á fjárhagsáætlun frá fyrri umræðu um fjárhagsáætlunina sem fram fór í bæjarstjórn þann 6. nóvember 2025.
Gert er ráð fyrir að á fundi bæjarráðs 2. desember nk. verði lagðar fram tillögur að breytingum ásamt frumvarpi að fjárhagsáætlun með breytingum. Síðari umræða um fjárhagsáætlun er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 4. desember nk.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri sat fund bæjarráðs undir þessum lið.
Bæjarstjórn Garðabæjar
30
16. (968). fundur
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um álagningarhlutfall útsvars á árinu 2026.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 14,71% á tekjur manna á árinu 2026 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24.gr. laganna.
Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2025, samkvæmt 2.mgr. 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995."
Tillagan samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Garðabæjar
31
42. (2190). fundur
Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu útsvars:
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 14,71% á tekjur manna á árinu 2026 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24.gr. laganna.
Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2025, samkvæmt 2.mgr. 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995."
Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Lagt fram yfirlit yfir ábendingar sem borist hafa frá íbúum varðandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2026.
Lagt fram yfirlit yfir mál sem hefur verið vísað til skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar.
Farið var yfir helstu atriði og dagsetningar varðandi vinnu við fjárhagsáætlun fram að seinni umræðu í bæjarstjórn, sem fyrirhuguð er 4. desember nk.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarstjórn Garðabæjar
32
15. (967). fundur
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri, fylgdi úr hlaði frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2026-2029. Bæjarstjóri lagði fram drög að greinargerð þar sem helstu markmið og niðurstöður eru raktar nánar. Bæjarstjóri lagði til að frumvarpinu verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar 2026 (2026-2029) vill Garðabæjarlistinn leggja áherslu á eftirfarandi atriði:
Öll börn eiga að geta stundað skipulagt íþrótta-, æskulýðs- eða tómstundastarf, óháð efnahag heimilis. Garðabæjarlistinn mun leggja til á milli umræðna að hvatapeningar verði hækkaðir myndarlega. Við leggjum til að þeir verði 75 þúsund krónur á barn og að haldið verði í 15 þúsund króna viðbótarhvatapeninga fyrir þau heimili sem eru undir tekjuviðmiðum.
Við eigum öll að geta komið okkur upp öruggu heimili og aukinnar fjölbreytni er þörf á búsetukostum í Garðabæ. Garðabæjarlistinn mun beita sér fyrir því að meira fjármagn verði lagt í kaup á félagslegum leiguíbúðum og í stofnframlög til bygginga á almennum íbúðum, t.a.m. leiguíbúðum fyrir tekjulægri fjölskyldur á vegum stéttarfélaga.
Garðabæjarlistinn mun auk þess leggjast gegn gjaldskrárhækkunum á leikskólagjöld og fæðisgjald í leikskóla, þar sem við teljum að leikskólagjöld hafi verið of há í Garðabæ til lengri tíma og erum fylgjandi lögfestu og gjaldfrjálsu leikskólastigi.
Allt eru þetta aðgerðir sem skipta máli fyrir íbúa í Garðabæ, en eru ekki af stærðargráðu sem krefst mikilla fórna á öðrum sviðum rekstrar. Forgangsröðun er hér lykilatriði. Við hlökkum til samtalsins milli umræðna."
Gunnar Valur Gíslason tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2026 og þrjú næstu ár endurspeglar trausta stjórn fjármála bæjarins. Þrátt fyrir ákveðna óvissu í íslensku efnahagslífi um þessar mundir er gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs fyrir árið 2026 verði jákvæð um tæpar 600 milljónir króna og veltufé frá rekstri verði um 2.500 milljónir króna.
Þá er í útkomuspá 2025 og í áætlun tímabilsins 2026-2029 gert ráð fyrir umtalsverðri lækkun skuldahlutfalla bæjarsjóðs frá árinu 2024.
Á milli umræðna um fjárhagsáætlun munum við, bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, áfram leggja áherslu á lágar skattaálögur, fjárhagslegt aðhald og rekstrarhagræðingu, en einnig markvissa sókn í mikilvægum málaflokkum sem snerta unga sem eldri íbúa Garðabæjar. Mikilvægt er að viðhalda hagkvæmni í rekstri með stöðugri hagræðingu og laga rekstur bæjarsjóðs Garðabæjar þannig að krefjandi efnahagsaðstæðum í þjóðfélaginu."
Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Framsókn mun leggja áherslu á hækkun hvatapeninga svo að öll börn geti stundað íþróttir óháð efnahag."
Samkvæmt frumvarpinu eru niðurstöður A og B hluta þessar (í þúsundum króna):
2026 2027 2028 2029
Tekjur: 36.677.235 38.454.757 40.393.977 42.583.334
Gjöld: 32.299.443 33.894.967 35.459.737 37.219.484
Rnst. f. afskr. 4.377.791 4.559.790 4.934.240 5.263.850
Rnst. án fmst/gj 2.339.376 2.422.687 2.643.876 2.929.964
Afskriftir 2.038.416 2.137.103 2.290.364 2.433.885
Fmt/gj 1.747.800 1.591.865 1.641.904 1.690.177
Rekstrarniðurstaða 594.811 834.058 1.005.208 1.243.024
Framkvæmdir 4.904.000 4.343.000 4.500.000 4.929.000
Bæjarstjórn samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2026-2029 til síðari umræðu í bæjarstjórn og frekari vinnslu í bæjarráði.
Bæjarráð Garðabæjar
33
40. (2188). fundur
Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir drögum að áætlun fræðslumála, vegna vinnu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2026.
Bæjarstjóri fór almennt yfir meginatriði varðandi vinnu við gerð frumvarps að fjárhagsáætlun 2026 og fór yfir forsendur, framkvæmdayfirlit og gjaldskrár.
Bæjarráð samþykkir að vísa tillögu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar 2026 (2026-2029) til fyrri umræðu í bæjarstjórn samkvæmt 3.mgr. 62.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, sbr. einnig 2.mgr. 40.gr. Samþykkta um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022. Fyrri umræða fer fram í bæjarstjórn fimmtudaginn 6. nóvember 2025.
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri, sat fundinn undir þessum lið.
Bæjarráð Garðabæjar
34
39. (2187). fundur
Á fund bæjarráðs kom Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir drögum að áætlunum málasviða, að undanskildum fræðslumálum, vegna vinnslu að frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2026. Frumvarp að fjárhagsáætlun verður lagt fram á fundi bæjarráðs 4. nóvember 2025 og til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar 6. nóvember 2025.
Bæjarráð Garðabæjar
35
31. (2179). fundur
Forsendur og vinnuferlar vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2026 (2026-2029) lagðar fram til kynningar.
Fjárhagsáætlun verður lögð fram í bæjarráði fyrir lok október 2025 og tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn 6. nóvember 2025. Síðari umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð 4. desember 2025.
Bæjarráð samþykkir forsendur og vinnuferla fjárhagsáætlunar 2026.
Fylgiskjöl
Bæjarráð Garðabæjar
36
27. (2175). fundur
Lagt fram minnisblað greiningarteymis þróunarsviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga um uppfærðar forsendur fjárhagsáætlana sveitarfélaga 2025 og 2026-2028.