1. (2196). fundur
1. (2196). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
13.01.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - varamaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
01
Gjaldskrá stuðningsþjónustu Garðabæjar 2026.
Snædís Björnsdóttir lögfræðingur á velferðarsviði kynnti drög að nýrri gjaldskrá stuðningsþjónustu Garðabæjar 2026.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi gjaldskrá stuðningsþjónustu 2026.
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Krókamýri 14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. janúar 2026 varðandi fyrirspurn húseiganda að Krókamýri 14 um viðbyggingu við húsið til austurs. Húsið er parhús og liggur fyrir yfirlýsing meðeigenda að þau geri ekki athugasemd við útfærsluna.
Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Mýrum.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni sem fylgdi fyrirspurninni til grenndarkynningar sem umsókn um byggingarleyfi í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Krókamýri 8, 10 og 12, Fífumýri 1, 2 og 14 sem og Löngumýri 9, 11, 13 og 15.
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Gilsbúð 9 (Sómi) stækkun byggingareits.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. janúar 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Búða sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð að Gilsbúð 9 og niðurfellingu kvaðar um holræsi að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemd sem borist hefur.
Gerð er athugasemd við að byggingarreitur sé stækkaður í átt að lóðum við Smiðsbúð og að fjarlægð á milli byggingarreita sé minni en 8 metrar.
Skipulagsnefnd benti á að í deiliskipulagi Búða eru dæmi þess að fjarlægð á milli byggingarreita er álíka mikil og tillagan gerir ráð fyrir. Við veitingu byggingarleyfis fyrir viðbyggingu verður að tryggja að fullt tillit sé tekið til nálægðar og kröfur um brunavarnir uppfylltar. Einnig var gerð athugasemd við neikvæð áhrif á ásýnd en skipulagsnefnd telur vel hægt að útfæra byggingu þannig að ásýnd sé sambærileg við aðrar atvinnubyggingar á sama skipulagssvæði.
Með vísan í ofangreint samþykkir skipulagsnefnd tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Búða í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Votakur 3 - Deiliskipulagsbreyting
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. janúar 2026 varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akra sem nær til lóðarinnar Votakur 3. Gert er ráð fyrir stækkun ytri byggingarreits til vesturs þar sem heimilt yrði að stækka kjallara og útbúa svalir ofan á viðbyggingu.
Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísaði henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Votakri 1 og 5 og Stórakri 2, 4, og 6.
05
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi stjórnsýslukæru nr. 129/2025 Borgarás, dags. 22.12.25
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 129/2025, ásamt bréfi lögmanns kæranda.
Bæjarráð vísar málinu til úrvinnslu á umhverfissviði.
06
Tillaga um viðmiðunarfjárhæðir samkvæmt reglum um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.
Lögð fram eftirfarandi tillaga um viðmiðunarfjárhæðir samkvæmt reglum um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.
„Einstaklingar með tekjur árið 2024 allt að kr. 7.332.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 6.400 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 7.972.000. (Ath. að fjármagnstekjur falla undir tekjur).
Hjón og samskattaðir aðilar (elli- og örorkulífeyrisþegar):
Hjón með tekjur árið 2024 allt að kr. 9.331.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 15.400 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 10.871.000. (Ath. að fjármagnstekjur falla undir tekjur).
Ekki þarf að sækja um lækkunina.“
Tillagan byggir á hækkun á ellilífeyris í janúar 2026 (5,2% hækkun).
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu.
07
Bréf innviðaráðuneytisins varðandi breytingu á reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga, dags. 22.12.25.
Lagt fram.
09
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi árshelmingsskýrslu Betri samgangna ohf., dags. 06.01.26.
Lagt fram.
10
Bréf Samgöngustofu varðandi umsögn um geymslustað ökutækja vegna starfsleyfis til reksturs ökutækjaleigu að Kauptúni 6, dags. 22.12.25.
Afgreiðslu málsins frestað.
11
Umsagnarbeiðni vegna umsóknar UMF Stjörnunnar um tímabundið áfengisleyfi á Þorrablóti Stjörnunnar í Íþróttamiðstöðinni Mýrinni.
Lögð fram umsókn Ungmennafélags Stjörnunnar um tækifærisleyfi vegna áfengisveitinga á þorrablóti í íþróttahúsinu Mýrinni 23. janúar 2026.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.
12
Styrkbeiðni ME félags Íslands, dags. 07.01.26.
Bæjarráð vísar bréfinu til úthlutunar styrkja samkvæmt fjárhagsáætlun 2026.