Krókamýri 14 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
5. (975). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. febrúar 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi að Krókamýri 14 sem gerir ráð fyrir viðbyggingu við húsið til austurs að lokinni grenndarkynningu. Húsið er parhús og liggur fyrir yfirlýsing meðeigenda að þau geri ekki athugasemd við útfærsluna. Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Mýrum. Skipulagsnefnd vísaði umsókn um byggingarleyfi til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Bæjarráð Garðabæjar
02
8. (2203). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 26. febrúar 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi að Krókamýri 14 sem gerir ráð fyrir viðbyggingu við húsið til austurs að lokinni grenndarkynningu. Húsið er parhús og liggur fyrir yfirlýsing meðeigenda að þau geri ekki athugasemd við útfærsluna. Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Mýrum. Skipulagsnefnd vísaði umsókn um byggingarleyfi til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
4. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi að Krókamýri 14 sem gerir ráð fyrir viðbyggingu við húsið til austurs að lokinni grenndarkynningu. Húsið er parhús og liggur fyrir yfirlýsing meðeigenda að þau geri ekki athugasemd við útfærsluna. Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Mýrum. Skipulagsnefnd vísaði umsókn um byggingarleyfi til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Engar athugasemdir bárust.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
2. (972). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. janúar 2026 varðandi fyrirspurn húseiganda að Krókamýri 14 um viðbyggingu við húsið til austurs. Húsið er parhús og liggur fyrir yfirlýsing meðeigenda að þau geri ekki athugasemd við útfærsluna. Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Mýrum. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni sem fylgdi fyrirspurninni til grenndarkynningar sem umsókn um byggingarleyfi í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Krókamýri 8, 10 og 12, Fífumýri 1, 2 og 14 sem og Löngumýri 9, 11, 13 og 15.
Bæjarráð Garðabæjar
05
1. (2196). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. janúar 2026 varðandi fyrirspurn húseiganda að Krókamýri 14 um viðbyggingu við húsið til austurs. Húsið er parhús og liggur fyrir yfirlýsing meðeigenda að þau geri ekki athugasemd við útfærsluna.
Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Mýrum.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni sem fylgdi fyrirspurninni til grenndarkynningar sem umsókn um byggingarleyfi í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Krókamýri 8, 10 og 12, Fífumýri 1, 2 og 14 sem og Löngumýri 9, 11, 13 og 15.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
1. fundur
Lögð fram fyrirspurn húseiganda að Krókamýri 14 um viðbyggingu við húsið til austurs. Húsið er parhús og liggur fyrir yfirlýsing meðeigenda að þau geri ekki athugasemd við útfærsluna.
Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Mýrum.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni sem fylgir fyrirspurn til grenndarkynningar sem umsókn um byggingarleyfi í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Krókamýri 8, 10 og 12, Fífumýri 1, 2 og 14 sem og Löngumýri 9, 11, 13 og 15.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
09
11. fundur
Lögð fram fyrirspurn húseiganda að Krókamýri 14 sem er austurhluti parhússins Krókamýri 12-14.
Skipulagsstjóri telur að til greina komi að byggja við húsið en það er mjög háð útfærslu. Þá þarf samþykki eigenda hins hluta parhússins að liggja fyrir áður en sótt verður um byggingarleyfi. Gæta þarf að nálægð við lóðarmörk og að viðbygging falli vel að húsinu. Þar sem að deiliskipulag hverfisins telst ekki í gildi þarf að vísa umsókn um byggingarleyfi til grenndarkynningar.