2. (972). fundur
2. (972). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
15.01.2026
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
- Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
- Guðlaugur Kristmundsson - bæjarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 6. janúar 2026 er lögð fram.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 23/12 ´25.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 4.tl. skýrslu Jafnréttisstofu - umönnunarbilið og þjónustu sveitarfélaga og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Garðabæjarlistinn fagnar skýrslu Jafnréttisstofu og kallar eftir því að í Garðabæ verði áhrif breytinga á leikskólaumhverfinu á jafnrétti kynjanna og á stöðu jaðarhópa metin með formlegum hætti."
Björg Fenger ræddi 4.tl. skýrslu Jafnréttisstofu - umönnunarbilið og þjónustu sveitarfélaga.
Almar Guðmundsson ræddi 4.tl. skýrslu Jafnréttisstofu - umönnunarbilið og þjónustu sveitarfélaga, 2.tl. lóð fyrir hjúkrunarheimili í Vetrarmýri og 6.tl. erindi Skáksambands Íslands varðandi stuðning við Íslandsmótið í skák 2026.
Fundargerðin sem er 8.tl. er samþykkt samhljóða.
02
Fundargerð bæjarráðs frá 13/1 ´26.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 9.tl. bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi árshelmingsskýrslu Betri samgangna ohf.
Almar Guðmundsson ræddi 9.tl. bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi árshelmingsskýrslu Betri samgangna ohf.
Fundargerðin sem er 12.tl. er samþykkt samhljóða.
2.2 - 2507363 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Krókamýri 14.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. janúar 2026 varðandi fyrirspurn húseiganda að Krókamýri 14 um viðbyggingu við húsið til austurs. Húsið er parhús og liggur fyrir yfirlýsing meðeigenda að þau geri ekki athugasemd við útfærsluna. Ekkert deiliskipulag telst í gildi í Mýrum. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni sem fylgdi fyrirspurninni til grenndarkynningar sem umsókn um byggingarleyfi í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Krókamýri 8, 10 og 12, Fífumýri 1, 2 og 14 sem og Löngumýri 9, 11, 13 og 15.
Fylgiskjöl
2.3 - 2502084 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Gilsbúð 9 (Sómi) stækkun byggingareits.
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. janúar 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Búða sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á baklóð að Gilsbúð 9 og niðurfellingu kvaðar um holræsi að lokinni grenndarkynningu ásamt athugasemd sem borist hefur. Gerð er athugasemd við að byggingarreitur sé stækkaður í átt að lóðum við Smiðsbúð og að fjarlægð á milli byggingarreita sé minni en 8 metrar. Skipulagsnefnd benti á að í deiliskipulagi Búða eru dæmi þess að fjarlægð á milli byggingarreita er álíka mikil og tillagan gerir ráð fyrir. Við veitingu byggingarleyfis fyrir viðbyggingu verður að tryggja að fullt tillit sé tekið til nálægðar og kröfur um brunavarnir uppfylltar. Einnig var gerð athugasemd við neikvæð áhrif á ásýnd en skipulagsnefnd telur vel hægt að útfæra byggingu þannig að ásýnd sé sambærileg við aðrar atvinnubyggingar á sama skipulagssvæði. Með vísan í ofangreint samþykkir skipulagsnefnd tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Búða í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Fylgiskjöl
2.4 - 2512238 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Votakur 3 - Deiliskipulagsbreyting
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. janúar 2026 varðandi umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akra sem nær til lóðarinnar Votakur 3. Gert er ráð fyrir stækkun ytri byggingarreits til vesturs þar sem heimilt yrði að stækka kjallara og útbúa svalir ofan á viðbyggingu. Skipulagsnefnd mat tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísaði henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Votakri 1 og 5 og Stórakri 2, 4, og 6.
Fylgiskjöl
03
Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 7/1 ´26.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. Íþróttafólk ársins 2025 - Íþróttahátíð Garðabæjar janúar 2026.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi 1.tl. Íþróttafólk ársins 2025 - Íþróttahátíð Garðabæjar janúar 2026 og fundargerðina.
Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 1.tl. Íþróttafólk ársins 2025 - Íþróttahátíð Garðabæjar janúar 2026 og fundargerðina.
Björg Fenger ræddi 1.tl. Íþróttafólk ársins 2025 - Íþróttahátíð Garðabæjar janúar 2026 og fundargerðina.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. Íþróttafólk ársins 2025 - Íþróttahátíð Garðabæjar janúar 2026 og fundargerðina.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 1.tl. Íþróttafólk ársins 2025 - Íþróttahátíð Garðabæjar janúar 2026 og fundargerðina.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. Íþróttafólk ársins 2025 - Íþróttahátíð Garðabæjar janúar 2026 og fundargerðina.
Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. Íþróttafólk ársins 2025 - Íþróttahátíð Garðabæjar janúar 2026 og fundargerðina.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju og ræddi fundargerðina.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls að nýju og ræddi 1.tl. Íþróttafólk ársins 2025 - Íþróttahátíð Garðabæjar janúar 2026.
Gunnar Valur Gíslason tók til máls að nýju og ræddi 1.tl. Íþróttafólk ársins 2025 - Íþróttahátíð Garðabæjar janúar 2026.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi 1.tl. Íþróttafólk ársins 2025 - Íþróttahátíð Garðabæjar janúar 2026 og fundargerðina, 3-28.gtl. umsóknir um ferðastyrki íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar og 2.tl. afreksstyrki 2026 - fyrri úthlutun.
Bæjarstjórn óskar íþróttafólki Garðabæjar og sjálfboðaliðum til hamingju með frábæran árangur í íþróttum á árinu 2025.
Fundargerðin er lögð fram.
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 17/12 ´25.
Margrét Bjarnadóttir ræddi 1.tl. verklagsreglur starfsmanna í leikskólum Garðabæjar, 2.tl. leikskólar starfsáætlun 2024-2025, umbótaáætlun 2025-2026 og 3.tl. úthlutunarreglur vegna stoðþjónustu.
Fundargerðin er lögð fram.
05
Fundargerð skipulagsnefndar frá 8/1 ´26.
Björg Fenger ræddi 10.tl. deiliskipulag skóla- og íþróttasvæðis á Álftanesi - endurskoðun og fundargerðina.
Fundargerðin er lögð fram.
06
Gjaldskrá stuðningsþjónustu Garðabæjar 2026.
Lögð fram gjaldskrá stuðningsþjónustu í Garðabæ 2026. Gjaldskráin fylgdi fundarboði og er vistuð í fundargátt.
Gjaldskráin er samþykkt samhljóða.
07
Úthlutunarreglur vegna stoðþjónustu í leikskólum Garðabæjar.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða úthlutunarreglur vegna stoðþjónustu leikskóla.
10
Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 20/10 - 22/12 ´25.
Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi hleðsluútboð í fundargerðum 20. október 2025, 22. október 2025, 5. nóvember 2025, 14. nóvember 2025 og 12. desember 2025. Þá ræddi hann nýtt félag í fundargerðum 12. desember 2025, 17. desember 2025 og 22. desember 2025.
Guðlaugur Kristmundsson ræddi nýtt félag í fundargerðum 12. desember 2025, 17. desember 2025 og 22. desember 2025.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi nýtt félag í fundargerðum 12. desember 2025, 17. desember 2025 og 22. desember 2025.
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls að nýju og ræddi nýtt félag í fundargerðum 12. desember 2025, 17. desember 2025 og 22. desember 2025.
Almar Guðmundsson ræddi nýtt félag í fundargerðum 12. desember 2025, 17. desember 2025 og 22. desember 2025.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
11
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæðanna frá 17/12 ´25.
Fundargerðin er lögð fram.