11. fundur
11. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
14.08.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Kjartan Vilhjálmsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Egill Daði Gíslason - deildarstjóri umhverfis og framkvæmda
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Formaður nefndarinnar fór þess á leit við nefndina að eitt mál sem ekki var hluti af fundarboði yrði tekin inn á dagskrá. Nefndin samþykkti það og er það málsliður nr. 14 í fundargerð.
Dagskrá
01
Deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarskógur.
SKipulagsstjóri og Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerðu grein fyrir úrvinnslu þeirra athugasemda og umsagna sem borist hafa. Fundað hefur verið með Skógræktarfélagi Garðabæjar og gengið með fulltrúum félagsins um Smalaholt til þess að átta sig betur á áhrifum tillögunnar á skóginn. Vísað til áframhaldandi úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
02
Vetrarmýri, tillaga að breytingu á deiliskipulagi, leikvangur ofl.
Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags.24.júlí sl þar sem gerðar eru athugasemdir við eftirfarandi atriði í samþykktri tillögu að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar.
- ekki er unnt að fella út hluta deiliskipulagssvæðisins fyrr en að önnur áætlun tekur yfir á viðkomandi hluta.
- gera þarf betur grein fyrir breytingum á sérskilmálum einstakra lóða
- gera þarf grein fyrir umhverfisáhrifum deiliskipulagsbreytingarinnar.
- gera þarf grein fyrir mögulegum áhrifum deiliskipulagsbreytingarinnar á hljóðvist.
Skipulagsnefnd beinir því til umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa að koma til móts við athugasemdir stofnunarinnar og leggja fram lagfærða tillögu í skipulagsnefnd.
03
Miðbær, svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreyting.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Miðbæjar, svæði I og II að lokinni forkynningu, ásamt þeim umsögnum og ábendingum sem bárust á kynningartíma. Skipulagsstjóri gerði nánar grein fyrir fundum með rekstraraðilum og fulltrúum húsfélaga á svæðinu.
Ræddir þeir valkostir sem staðið er frammi fyrir um áframhald verkefnisins.
Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og umhverfissviði.
04
Víðiholt - Veggir, girðingar og smáhýsi
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Víðiholts sem nær til veggja, girðinga og smáhýsa að lokinni grenndarkynningu.
Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt í samræmi við 3.mgr.41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
05
Gerðakot 4 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu á viðbyggingu við einbýlishúsið að Gerðakoti nr.4. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu.
Skipulagsnefnd telur að til greina komi að vísa byggingarleyfisumsókn fyrir viðbyggingunni til grenndarkynningar en þá þarf að liggja fyrir rétt afmörkun lóðar og stærð þannig að unnt sé að átta sig á nýtingarhlutfalli lóðar og húss með viðbyggingu. Gera þarf mæliblað lóðarinnar og lagfæra skráningu hennar en hún er í ósamræmi við raunstærð. Lóðin er 1000 m2 samkvæmt fasteignaskráningu en mælist a.m.k. 1.400 m2 á kortavef.
06
Nýhöfn 1-5, breyting á bílastæðum
Lögð fram breytt tillaga að breytingu deiliskipulags Sjálands sem gerir ráð fyrir breytingu á fyrirkomulagi bílastæða framan við Nýhöfn 1-5.Tillagan gerir ennfremur ráð fyrir stækkun lóðarinnar Nýhöfn 1-5. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr.og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vekja skal athygli á auglýsingunni í nánasta nágrenni með því að bera dreifibréf í húsin Nýhöfn 1, 2,3, 4,5,6 og 7 sem og Löngulínu 13, 15,17, 19,20, 21,22, 23, 24 og 26.
07
Ljósakur 17 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um tillögu að útfærslu á austurhluta lóðar endaraðhússins Ljósakur 17. Tillagan gerir ráð fyrir gróðurhúsi, pergólu yfir heitum potti og girðingum (skjólveggjum) á lóðarmörkum að götu en utan lóðarmarka að austanverðu.
Með vísan í samþykkt Garðabæjar um veggi og girðingar mælir skipulagsnefnd með því að skjólveggur sem snýr að götu sé 1,5 m að hæð eða fjær lóðarmörkum en 30 cm ef hann er 1,8 m að hæð. Runnagróður komi þá milli gangstéttar og skjólveggjar ef hann liggur ekki við lóðarmörk.
Þar sem girðingar (skjólveggir) yrðu samkvæmt tillögunni utan lóðarmarka að girðingu (fallvörn) Garðabæjar meðfram göngustíg bendir nefndin á að samkomulag Garðabæjar og lóðarhafa þarf að liggja fyrir um girðinguna og það svæði sem lendir innan hennar. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að samkomulag verði gert sem er í samræmi við framlagða tillögu. Nefndin bendir einnig á að samþykki annarra eigenda raðhúslengjunnar fyrir tillögunni þarf að liggja fyrir.
08
Arnarland - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um útfærslu skrifstofubyggingar (Heilsuklasa) við Ósakur í Arnarlandi.
Fyrirspurn vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.
09
Stekkholt 6 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um hugmynd að gróðurhúsi á þaki einbýlishússins að Stekkholti 6 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd telur að áhrif gróðurhúsa ofan á þaki tveggja hæða einbýlishúsa við Stekkholt eða Útholt á útsýni frá fjölbýlishúsum við Vorbraut og upplifun íbúa séu umtalsverð. Fordæmisgildi þess að veita byggingarleyfi fyrir þessháttar útfærslu á einni lóð er mikið og hefur það því áhrif á fjölda eigna.
Svar skipulagsnefndar er því neikvætt.
10
Þorraholt 2-4, br dsk Hnoðrah Norður.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til lóðarinnar Þorraholt 2-4 að lokinni grenndarkynningu.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.
11
Þorraholt 9 og 15 - auka íbúðir -
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um tillögu að útfærslu á íbúðum á jarðhæðum fjölbýlishúsanna að Þorraholti 9 og 15. Útfærslan kallar í fjölgun íbúða á hvorri lóð eða um tvær íbúðir alls. Stærð bílageymsla er næg til að þjóna þessari fjölgun íbúða.
Skipulagsnefnd telur að útfærsla með íbúð á jarðhæð geri aðkomu að húsinu meira aðlaðandi og fellst því á að tillagan nái fram að ganga.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga
Í samræmi 2.ml.3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en sveitarfélagsins og umsækjanda.
12
Kinnargata 70 - Deiliskipulag
Lögð fram fyrirspurn um tillögu að staðsetningu þriggja smáhýsa á endaraðhúslóðinni að Kinnargötu 70 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Með vísan í umsögn og deiliskipulagsákvæða fellst skipulagsnefnd ekki á staðsetningu þriggja smáhýsa en gerir ekki athugasemd við staðsetningu smáhýsis við sorpgeymslu sem er ekki stærri en 10 m2 að grunnfleti.
13
Langalína 8 leikskóli - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir leikskóla til skemmri tíma á lóð Sjálandsskóla innan byggingarreits. Flatarmál byggingar yrði 616 m2 á einni hæð.
Skipulagsstjóri leggur fram tillögu að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem nær til lóðar Sjálandsskóla, sem gerir ráð fyrir að eftirfarandi ákvæði bætist við greinargerð deiliskipulagsins: "Heimilt er að nýta skólalóðina innan byggingarreits sem stæði fyrir færanlegar kennslustofur og önnur nauðsynleg rými fyrir grunnskólastarfsemi eða leikskólastarfsemi til bráðabirgða enda uppfylli þær kröfur byggingarreglugerðar um brunavarnir. Að öðru leyti gilda áður útgefnir skilmálar."
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ása og Grunda í samræmi við 2.mgr.43.greinar skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml.3.mgr.44.greinar sömu laga er fallið frá grenndarkynningu.
Skipulagsnefnd mælir með því að skoðað verði að nýta hluta lóðarinnar Ránargrund 3 sem er víkjandi í deiliskipulagi undir starfsemi skólalóðar.
14
Kjóavellir deiliskipulagsbreyting. Garðlönd
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Kjóavalla sem nær til svæðis innan lögsögu Kópavogsbæjar. Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 11. mars 2025 með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir Kjóavelli. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:2000 dags. 28. júní 2024, uppfærður 14. ágúst 2024 og 28. febrúar 2025. Tillagan var auglýst í Lögbirtingablaðinu og Morgunblaðinu þann 10. apríl 2025 og Kópavogspóstinum þann 17. apríl 2025 og er hún jafnframt aðgengileg á vefsíðu Kópavogsbæjar og í Skipulagsgátt málsnr. 453/2025.
Kynningartími var frá 10. apríl 2025 til 30. maí 2025. Athugasemdir og ábendingar bárust á kynningartíma.
Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Kópavogs þann 7. júlí 2025 var tillagan lögð fram að nýju að lokinni auglýsingu ásamt innsendum athugasemdum og umsögn skipulagsdeildar dags. 13. Júní 2025. Skipulagsráð samþykkti tillöguna og vísaði til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð Kópavogs, í umboði bæjarstjórnar, samþykkti á fundi sínum þann 17. júlí 2025 breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla.
Tillagan var lögð fyrir skipulagsnefnd þann 29.ágúst 2024 en fyrir mistök var bókað að tillagan væri samþykkt um leið og önnur breytingartillaga á deiliskipulagi Kjóavalla innan lögsögu Kópavogs og snerist um miðlunartanka.
Þar sem að tillagan hafði verið lögð fyrir skipulagsnefnd áður en hún var auglýst lýtur skipulagsnefnd Garðabæjar svo á að heimild til auglýsingar hafi verið til staðar. Athugasemdir og ábendingar sem borist hafa lögð fram ásamt umsögn skipulagsdeildar Kópavogs og lagfærður uppdráttur lögð fram.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir tillöguna sem breytingu á deiliskipulagi Kjóavalla með þeim smávægilegu breytingum sem gerðar voru af skipulagsdeild Kópavogsbæjar við samþykkt breytingarinnar.
15
Breyting á deiliskipulagi Suðurhafnar vegna Óseyrarbrautar 1-3, nr. 1007/2025
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.
16
Ásbraut, Kópavogsbær - Nýtt deiliskipulag - ósk um umsögn
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.
17
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 8
Lögð fram
17.1 - 2505074 - Breiðamýri - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Breiðumýrar að lokinni grenndarkynningu. Tillagan gerir ráð fyrir aðkomu og bílastæðum norðan við Lambamýri 1 til þess að bæta aðgengi að fyrirhuguðum fjölnota sal á jarðhæð. Engar athugasemdir bárust og tillagan skoðast því samþykkt. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
17.2 - 2412006 - Hátún 3, fyrirspurn um stöðuleyfi fyrir gám.
Lögð fram fyrirspurn um stöðuleyfi vegna gáms við Hátún 3. Í bókun skipulagsnefndar þann 12. desember kemur fram að skipulagnefnd gerir ekki athugasemd við að stöðuleyfi verði veitt til lok maímánaðar.
Skipulagsstjóri mælist til þess að gámur verði nú fjarlægður í samræmi við bókun.
17.3 - 2505495 - Víðiholt 11 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Fyrirspurn vísað til úrvinnslu við mótun tillögu að breytingu deiliskipulags Víðiholts sem fjallar um veggi, girðingar og smáhýsi.
17.4 - 2504098 - Víðiholt 18 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Fyrirspurn vísað til úrvinnslu við mótun tillögu að breytingu deiliskipulags Víðiholts sem fjallar um veggi, girðingar og smáhýsi.
17.5 - 2506127 - Víðiholt 19 - Deiliskipulag
Fyrirspurn vísað til úrvinnslu við mótun tillögu að breytingu deiliskipulags Víðiholts sem fjallar um veggi, girðingar og smáhýsi.
17.6 - 2505453 - Lindarflöt 26 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi við Lindarflöt 26. Umsóknin felur í sér breytingu á þaki, sem hefur áhrif á m³. Einnig er verið að breyta klæðningu á útveggjum húss.
Samþykktir uppdrættir frá 2015 gera ráð fyrir því á þakhæð sé 4,75 m. Umsókn þessi felur ekki í sér breytingar á hæð húss.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
17.7 - 2504279 - Markarflöt 41 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti og deiliskipulag.
17.8 - 2505017 - Þorraholt 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.
Uppbyggingaraðili hefur gert grein fyrir því að miðað við hönnun húsanna Þorraholt 3, 5,7,9,11,13,15,17 og 19 þá mun heildarbyggingarmagn vera tæpa 280 m2 umfram heimild deiliskipulags og ræðst það af þáttum sem varða hönnun einstakra bygginga. (sjá tölvupóst frá Þorvaldi Gissurarsyni dags.25.maí 2025)
Stærsti hluti þess umfram byggingarmagns eru á lóðinni Þorraholt 9.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað ofangreint atriði varðar.
Að öðru leyti gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við framlögð gögn.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
18
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 9
Lögð fram
18.1 - 2506291 - N-Eyvindarstaðir-Aust - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrispurn eiganda Norður-Eyvindarstaða um lóð við Akurgerði sem er skilgreind sem einbýlishúslóð í deiliskipulagi Túnahverfis með heitinu Hátún 8. Á lóðinni stendur fjós sem er byggt árið 1932 og er skráð sem sameign Akurgerðis og Norður-Eyvindastaða. Fjósið hefur verið nýtt sem vélaskemma.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að lóðin sé stofnuð og færð inn í fasteignaskráningu að undangenginni meðferð merkjalýsingar. Mæliblað lóðarinnar og aðliggjandi lóða sem byggja á deiliskipulagi þarf að liggja fyrir.
18.10 - 2506417 - Aðalskipulag Reykjavíkur 2040 - Landnotkunarheimildir við Hringbraut - ósk um umsögn
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 sem nær til landnotkunarheimilda við Hringbraut.
Skipulagsstjóri Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.
18.11 - 2506615 - Aðalskipulag Hafnarfjarðar, Krýsuvík - rannsóknarborholur - Umsögn
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Hafnarfjarðar sem nær til vegna rannsóknaborhola í Krýsuvík ásamt skipulagslýsingu og matslýsingu sem og vinnslutillaga deiliskipulags.
Skipulagsstjóri Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillögurnar.
18.12 - 2506617 - Krýsuvík, rannsóknarborholur lýsing deiliskipulag - ósk um umsögn
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Hafnarfjarðar sem nær til vegna rannsóknaborhola í Krýsuvík ásamt skipulagslýsingu og matslýsingu sem og vinnslutillaga deiliskipulags.
Skipulagsstjóri Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillögurnar.
18.2 - 2505511 - Asparholt 9 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt samþykki eigenda Asparholts 7, 11 og 13 sem eru í sömu raðhúslengju.
Gert er ráð fyrir sólskála á jarðhæð undir svölum annarar hæðar. Viðbyggingin nær lítillega út fyrir ytri byggingarreit og breidd hennar er rétt rúmlega helmingur húshliðar. Sjá grein 3.2. í skilmálum deiliskipulagsins "Breiðamýri og norðanvert Sviðholt".
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað byggingarreit og breidd viðbyggingar varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
18.3 - 2503139 - Hegranes 29 - breyting á svölum - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulag Arnarness að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust og tillagan skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
18.4 - 2507052 - Hagaflöt 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Skipulagsstjóri vísar uppdrætti til kynningar hjá þeim sem athugasemd gerðu við tillögu að breytingu deiliskipulags árið 2023.
18.5 - 2506512 - Þorraholt 3 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir fjölbýlishússins Þorraholt 3 sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt lóðaruppdrætti og umsögn deiliskipulagshöfundar.
Uppdrættir eru í samræmi við ákvæði deiliskipulags en gólfkóti kjallara er 7 cm lægri en uppgefin hæð á hæðarblaði.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað gólfkóta kjallara varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
18.6 - 2505346 - Þorraholt 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir fjölbýlishússins Þorraholt 5 sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt lóðaruppdrætti og umsögn deiliskipulagshöfundar.
Uppdrættir eru í samræmi við ákvæði deiliskipulags en gólfkóti kjallara er 10 cm hærri en uppgefin hæð á hæðarblaði og nýtingarhlutfall er 0.96 en er heimilað 0.9.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað gólfkóta kjallara og nýtingarhlutfall varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
18.7 - 2506441 - Vorbraut 16 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram aðaluppdrættir fjölbýlishússins Vorbraut 16 sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt lóðaruppdrætti og umsögn deiliskipulagshöfundar.
Uppdrættir eru í samræmi við ákvæði deiliskipulags en flatarmál kjallara er 57,9 m2 meira en heimilað er en flatarmál ofanjarðar er 6 m2 undir heimild. Kjallari fer 2 metra út fyrir byggingareit á baklóð. Nýtingarhlutfall lóðar er 1.52 en deiliskipulag heimilar 1.5.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað nýtingarhlutfall, flatarmál kjallara og byggingareit kjallara varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
18.8 - 2507083 - Víkurgata 15 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum einbýlishússins Víkurgötu 15, ásamt umsögn skipulagshöfundar. Óskað er eftir heimild til að koma fyrir tæknirými/útigeymslu ásamt óuppfylltu rými neðanjarðar undir
bílastæðum. Um er að ræða rými utan byggingarreits. Tæknirýmið/ geymslan er ekki sýnilegt frá götu og hún er ekki nær lóðarmörkum að Víkurgötu 13 en 1 metri.
Fordæmi eru fyrir sambærilegri útfærslu innan deiliskipulagssvæðis Urriðaholts vesturhluta.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað tæknirými og geymslu varðar.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
18.9 - 2505226 - Víkurgata 21 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi vegna framkvæmda á lóð við Víkurgötu 21. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti enda hefur þeim verið breytt eftir samráð við lóðarhafa og hönnuð.
19
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 10
Lögð fram
19.1 - 2507428 - Ágarður, dsk breyting, lýsing æfingavallar.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ásgarðs sem gerir ráð fyrir fjórum ljósamöstrum við æfingavöll norðan aðalvallar. Hámarkshæð ljósamastranna er 21,5 metrar og heimilað birtumagn verður 180-300 lux. (til samanburðar eru ljós á aðalvelli 800 lux). Til að tryggja að lýsing trufli ekki íbúðarbyggð í nágrenni við völlinn skulu lampar vera með stefnuvirkri lýsingu með skermingu samskonar og núverandi lýsing aðalvallar.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Ásgarðs í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum við Stekkjarflöt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
19.2 - 2411317 - Betri Garðabær - Bættur stígur og pallar - Vífilsstaðahraun
Lögð fram umsókn Umhverfissviðs Garðabæjar um framkvæmdaleyfi fyrir gerð fjögurra votlendispalla sem brúa skulu dældir í Vífilsstaðahrauni á útivistarstíg (Selstíg). Einnig er sótt um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Gunnhildarvörðustígs frá bílastæði við Vífilsstaðalæk að Gunnhildarvörðu á Vífilsstaðahlíð.
Votlendispallar eru samkvæmt framlögðum gögnum í samræmi við deiliskiplags Vífilsstaðahrauns. Stígurinn er í samræmi við deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar.
Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis með fyrirvara um jákvæða umsögn Náttúruverndarstofnunar en Selstígur er innan fólkvangs í Garðahrauni efra, Garðahrauni neðra, Vífilsstaðahrauni og Maríuhellum og Gunnhildarvörðustígur er að mestu innan friðlands Vífilsstaðavatns.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar, 2.gr.h, nr.1182/2022.
20
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 11
Lögð fram
20.1 - 2506388 - Túngata 22 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu við íbúðarhúsið að Túngötu 22. Viðbygging nær út fyrir byggingarreit og kallar því á deiliskipulagsbreytingu sem sækja skal um.
Skipulagsstjóri metur tillögu að deiliskipulagsbreytingu sem óverulega breytingu deiliskipulags Túnahverfis í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Túngötu 18, 20 og 24 sem og Vesturtúns 15.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
20.2 - 2506548 - Tjarnarbrekka 13 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn ásamt skýringateikningum sem sýna sólskála við austurvegg einbýlishússins Tjarnarbrekka 13 og baðhús við lóðarmörk að norðanverðu.
Skipulagsstjóri bendir á að sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu ef áformað er að breyta húsinu eins og hugmyndin gerir ráð fyrir. Skilgreina þarf m.a. byggingarreit fyrir viðbyggingu og samþykki eigenda aðliggjandi lóða vegna girðinga og smáhýsis (baðhúss).
20.3 - 2507444 - Garðprýði 4 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir tveggja hæða einbýlishúsi að lóðinni Garðprýði 4.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
20.4 - 2506414 - Stórakur 6 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um hugmynd að rými (kjallara) undir núverandi húsi. Aðgengi yrði utan frá.
Skipulagsstjóri telur að hugmyndin ætti að geta gengið án deiliskipulagsbreytinga en það er þó háð útfærslu.
20.5 - 2507363 - Krókamýri 14 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn húseiganda að Krókamýri 14 sem er austurhluti parhússins Krókamýri 12-14.
Skipulagsstjóri telur að til greina komi að byggja við húsið en það er mjög háð útfærslu. Þá þarf samþykki eigenda hins hluta parhússins að liggja fyrir áður en sótt verður um byggingarleyfi. Gæta þarf að nálægð við lóðarmörk og að viðbygging falli vel að húsinu. Þar sem að deiliskipulag hverfisins telst ekki í gildi þarf að vísa umsókn um byggingarleyfi til grenndarkynningar.
20.6 - 2506229 - Kjarrmóar 27 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um gerð girðingar á lóðamörkum á raðhúslóðinni Kjarrmóar 27. Spurt er hvort heimilað verði að reisa 1,8 m háa girðingu á lóðarmörkum að götu. Vísað er til sambærilegra girðinga í nágrenninu.
Skipulagsstjóri heimilar fyrir hönd Garðabæjar útfærslu girðingar á lóðarmörkum að götu sem er í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar um veggi og girðingar, þ.e. ekki hærri en 1,5 m og brotin upp með gróðurhólfum eða á annan sambærilegan hátt. Ekki verður séð að leitað hafi verið samþykkis fyrir þær girðingar í nágrenninu sem vísað er til en þær eru hærri en samþykkt bæjarstjórna kveður á um.
20.7 - 2503388 - Hæðarbyggð 22 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu. Umsókn gerir ráð fyrir nýjum svölum sem fara út fyrir byggingarreit til vesturs. Svalir í suðurhorni verði lokaðar af og þeim breytt í íverurými.
Engar athugasemdir bárust og gerir skipulagsstjóri ekki athugsemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
20.8 - 2507477 - Víðilundur 8 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram umsókn um útfærslu á lóðarmörkum lóðarinnar Víðilundur 8 að göngustíg og götu.
Skipulagsstjóri heimilar fyrir hönd Garðabæjar úrfærslu á girðingum og stoðveggjum sem er í samræmi við lýsingu sem fylgir fyrirspurn. Gæta þarf að fallvörnum stoðveggja sem eru hærri en 80 cm en það má m.a. gera með runnagróðri á hærri fleti við stoðvegg.
20.9 - 2506691 - Miðhraun 15 - Gámur - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um tímabundið leyfi til að staðsetja 40 feta gám á baklóð austan byggingar. Í grein 2.1.6 í skilmálum deiliskipulags Molduhrauns segir að athafnasvæði skulu að jafnaði vera á bakhluta lóða. Deiliskipulag gerir ekki ráð fyrir bílastæðum á bakhluta lóðar og hefur staðsetningin því ekki áhrif á bílastæði
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu stöðuleyfis til eins árs.