Beint í efni

Þorraholt 2-4, br dsk Hnoðrah Norður.

Málsnúmer 2505078

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. (963). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 28. ágúst 2025 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður að lokinni grenndarkynningu og skoðun hjá umhverfissviði, ásamt þeim athugasemdum sem bárust á kynningartíma og þeim viðbótargögnum sem bætt var við á meðan á kynningu stóð. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarkshæð byggingarreits verslunar- og þjónustulóðarinnar Þorraholt 2-4 hækki um 38 cm úr 78 mys í 78,38 mys. Hámarkshæðin nær til byggingarreits húss 2 á lóðinni. Þann 8. maí 2025 vísaði skipulagsnefnd tillögunni til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti ákvörðun skipulagsnefndar á fundi sínum þann 15. maí. Grenndarkynning stóð frá 15. maí til 12. júní. Eigandi Útholts 1 og 3 óskaði eftir viðbótargögnum sem sýndu betur áhrif breytingarinnar á útsýni frá báðum hæðum verðandi húss. Við því var orðið og bárust viðkomandi þau gögn þann 12. júní. Skipulagsstjóri framlengdi frest til að skila inn athugasemdum til 18. júní. Alls bárust athugasemdir frá þremur aðilum sem grenndarkynningin náði til eða frá eigendum Útholts 1 og 3, Útholts 2 og 4 og Útholts 8 og 10. Athugasemdir snerust aðallega um skerðingu útsýnis sem hlytist af breytingartillögunni. Skipulagsnefnd telur að áhrif breytingartillögunnar, þ.e. hækkun hámarkshæðar um 38 cm, á útsýni frá lóðum við Útholt sé óveruleg og ekki sé hægt að sýna fram á að tillagan muni hafa áhrif á virði eignanna enda verði útsýni frá verðandi byggingum til vesturs og norðurs eftir sem áður mjög gott. Eigandi Þorraholts 2-4 hefur gert grein fyrir því að þessi hækkun sé mikilvæg fyrir útfærslu hússins sem hefur verið í hönnunar- og uppbyggingarferli samhliða ferli deiliskipulagsbreytingarinnar. Verkefnið er umfangsmikið og flókið og hefur kallað á breytingar á deiliskipulagi. Skipulagsnefnd hefur skilning á því að lóðarhafar við Útholt geri athugasemdir við þær tilfærslur sem hafa orðið á deiliskipulaginu undanfarna mánuði. Um leið hefur skipulagsnefnd skilning á því að hönnun og uppbygging svo viðamikils verkefnis kalli á breytingar. Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna óbreytta sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts Norður í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarráð Garðabæjar

02

31. (2179). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 28. ágúst 2025 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður að lokinni grenndarkynningu og skoðun hjá Umhverfissviði, ásamt þeim athugasemdum sem bárust á kynningartíma og þeim viðbótargögnum sem bætt var við á meðan á kynningu stóð.
Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarkshæð byggingarreits verslunar og þjónustulóðarinnar Þorraholt 2-4 hækki um 38 cm úr 78 mys í 78,38 mys. Hámarkshæðin nær til byggingarreits húss 2 á lóðinni.
Þann 8. maí 2025 vísaði skipulagsnefnd tillögunni til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti ákvörðun skipulagsnefndar á fundi sínum þann 15. maí.
Grenndarkynning stóð frá 15. maí til 12. júní. Eigandi Útholts 1 og 3 óskaði eftir viðbótargögnum sem sýndu betur áhrif breytingarinnar á útsýni frá báðum hæðum verðandi húss. Við því var orðið og bárust viðkomandi þau gögn þann 12. júní. Skipulagsstjóri framlengdi frest til að skila inn athugasemdum til 18. júní.
Alls bárust athugasemdir frá þremur aðilum sem grenndarkynningin náði til eða frá eigendum Útholts 1 og 3, Útholts 2 og 4 og Útholts 8 og 10. Athugasemdir snerust aðallega um skerðingu útsýnis sem hlytist af breytingartillögunni.
Skipulagsnefnd telur að áhrif breytingartillögunnar, þ.e. hækkun hámarkshæðar um 38 cm, á útsýni frá lóðum við Útholt sé óveruleg og ekki sé hægt að sýna fram á að tillagan muni hafa áhrif á virði eignanna enda verði útsýni frá verðandi byggingum til vesturs og norðurs eftir sem áður mjög gott. Eigandi Þorraholts 2-4 hefur gert grein fyrir því að þessi hækkun sé mikilvæg fyrir útfærslu hússins sem hefur verið í hönnunar- og uppbyggingarferli samhliða ferli deiliskipulagsbreytingarinnar. Verkefnið er umfangsmikið og flókið og hefur kallað á breytingar á deiliskipulagi. Skipulagsnefnd hefur skilning á því að lóðarhafar við Útholt geri athugasemdir við þær tilfærslur sem hafa orðið á deiliskipulaginu undanfarna mánuði. Um leið hefur skipulagsnefnd skilning á því að hönnun og uppbygging svo viðamikils verkefnis kalli á breytingar.
Skipulagsnefnd samþykkti tillöguna óbreytta sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts Norður í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

12. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður að lokinni grenndarkynningu og skoðun hjá Umhverfissviði, ásamt þeim athugasemdum sem bárust á kynningartíma og þeim viðbótargögnum sem bætt var við á meðan á kynningu stóð.
Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarkshæð byggingarreits verslunar og þjónustulóðarinnar Þorraholt 2-4 hækki um 38 cm úr 78 mys í 78,38 mys. Hámarkshæðin nær til byggingarreits húss 2 á lóðinni.
Þann 8. maí 2025 vísaði skipulagsnefnd tillögunni til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu. Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti ákvörðun skipulagsnefndar á fundi sínum þann 15. maí.
Grenndarkynning stóð frá 15. maí til 12. júní. Eigandi Útholts 1 og 3 óskaði eftir viðbótargögnum sem sýndu betur áhrif breytingarinnar á útsýni frá báðum hæðum verðandi húss. Við því var orðið og bárust viðkomandi þau gögn þann 12. júní. Skipulagsstjóri framlengdi frest til að skila inn athugasemdum til 18. júní.
Alls bárust athugasemdir frá þremur aðilum sem grenndarkynningin náði til eða frá eigendum Útholts 1 og 3, Útholts 2 og 4 og Útholts 8 og 10. Athugasemdir snerust aðallega um skerðingu útsýnis sem hlytist af breytingartillögunni.
Skipulagsnefnd telur að áhrif breytingartillögunnar, þ.e. hækkun hámarkshæðar um 38 cm, á útsýni frá lóðum við Útholt sé óveruleg og ekki sé hægt að sýna fram á að tillagan muni hafa áhrif á virði eignanna enda verði útsýni frá verðandi byggingum til vesturs og norðurs eftir sem áður mjög gott. Eigandi Þorraholts 2-4 hefur gert grein fyrir því að þessi hækkun sé mikilvæg fyrir útfærslu hússins sem hefur verið í hönnunar- og uppbyggingarferli samhliða ferli deiliskipulagsbreytingarinnar. Verkefnið er umfangsmikið og flókið og hefur kallað á breytingar á deiliskipulagi. Skipulagsnefnd hefur skilning á því að lóðarhafar við Útholt geri athugasemdir við þær tilfærslur sem hafa orðið á deiliskipulaginu undanfarna mánuði. Um leið hefur skipulagsnefnd skilning á því að hönnun og uppbygging svo viðamikils verkefnis kalli á breytingar.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna óbreytta sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts Norður í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

11. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til lóðarinnar Þorraholt 2-4 að lokinni grenndarkynningu.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

10. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu Hnoðraholts norður, sem nær til lóðarinnar Þorraholts 2-4 að lokinni auglýsingu, ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa á auglýsingartíma.
Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

7. (959). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. maí 2025 varðandi breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir hækkun hámarkshæðar verslunar og þjónustulóðarinnar Þorraholt 2-4 um 38 cm, úr 78 mys. í 78,38 mys. Gerð var grein fyrir ástæðum þess að sótt er um hækkun. Skipulagsnefnd mat tillöguna sem fylgdi umsókn sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Þorraholts 1, Þorraholts 5-9, Þorraholt 6, Útholts 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11, 13, 15, 17, 19, 21 og 23.

Bæjarráð Garðabæjar

07

18. (2166). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. maí 2025 varðandi breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir hækkun hámarkshæðar verslunar og þjónustulóðarinnar Þorraholt 2-4 um 38 cm, úr 78 mys. í 78,38 mys. Gerð var grein fyrir ástæðum þess að sótt er um hækkun.
Skipulagsnefnd mat tillöguna sem fylgdi umsókn sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Þorraholts 1, Þorraholts 5-9, Þorraholt 6, Útholts 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11, 13, 15, 17, 19, 21 og 23.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

8. fundur

Lögð fram umsókn Heklu hf um breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem gerir ráð fyrir hækkun hámarkshæðar verslunar og þjónustulóðarinnar Þorraholt 2-4 um 38 cm, úr 78 mys. í 78,38 mys. Gerð er grein fyrir ástæðum þess að sótt er um hækkun.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem fylgir umsókn sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal eigendum Þorraholts 1, Þorraholts 5-9, Þorraholt 6, Útholts 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7, 8, 9, 10, 11, 13, 15, 17, 19, 21 og 23.