Beint í efni

11. (963). fundur

04.09.2025
Bæjarstjórn Garðabæjar

11. (963). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

04.09.2025

Kl. 17:00 - 18:15

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
  • Guðfinnur Sigurvinsson - 1. varaforseti
  • Ingvar Arnarson - bæjarfulltrúi
  • Harpa Þorsteinsdóttir - varabæjarfulltrúi
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Guðlaugur Kristmundsson - bæjarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2508021F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 26/8'25.

Fundargerðin sem er 5.tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2508026F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 2/9'25.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 2.tl. árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2025 og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Árshlutauppgjör Garðabæjar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2025 endurspeglar sterka fjárhagslega stöðu bæjarsjóðs og rekstur í góðu jafnvægi. Rekstrarniðurstaða er jákvæð um 287 milljónir króna, grunnreksturinn eflist og sjóðstreymi bæjarsjóðs styrkist enn.

Þrátt fyrir miklar fjárfestingar í innviðum bæjarins á fyrri hluta ársins 2025 voru langtímalántökur hóflegar og skammtímaskuldir lækkuðu verulega á þessu sama tímabili.

Við bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggjum ríka áherslu á að tryggja öryggi, festu og skilvirkni í rekstri bæjarins. Traust og sterk fjárhagsstaða bæjarsjóðs er grundvöllur þess að Garðabær sé vel undir það búinn að byggja upp ný hverfi og mæta aukinni þjónustu vegna fjölgunar íbúa."

Fundargerðin sem er 7.tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2508015F

03

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 20/8'25.

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. starfsáætlun ÍTG 2025 til 2026, 2.tl. afreksstyrki 2025, 3.tl. reglur um ferðastyrki ÍTG, 4.tl. íþróttaþing Garðabæjar, 5.tl. fótbolta fyrir alla - styrkbeiðni, 6.tl. Sinfó í sundi - samfélagsgleði um allt land í lok ágúst, 7.tl. Ungmennahús undirbúningsvinnu, 8.tl. kvöldakstur Strætó, 9-29.tl. umsóknir um ferðastyrki íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar og önnur mál fundargerðarinnar.

Guðfinnur Sigurvinsson ræddi fundargerðina.

Ingvar Arnarson ræddi fundargerðina.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 7.tl. Ungmennahús undirbúningsvinnu, 9-29.tl. umsóknir um ferðastyrki íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar og fundargerðina.

Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 5.tl. fótbolta fyrir alla - styrkbeiðni, 6.tl. Sinfó í sundi - samfélagsgleði um allt land í lok ágúst og fundargerðina.

Harpa Þorsteinsdóttir ræddi önnur mál fundargerðarinnar, 5.tl. fótbolta fyrir alla - styrkbeiðni og fundargerðina.

Guðfinnur Sigurvinsson tók til máls að nýju og ræddi fundargerðina.

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi fundargerðina.

Björg Fenger ræddi önnur mál fundargerðarinnar, 5.tl. fótbolta fyrir alla - styrkbeiðni og fundargerðina.

Almar Guðmundsson ræddi 9.-29.tl. umsóknir um ferðastyrki íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar, 7.tl. Ungmennahús undirbúningsvinnu og fundargerðina.

Harpa Þorsteinsdóttir tók til máls að nýju og ræddi fundargerðina.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2508022F

04

Fundargerð skipulagsnefndar frá 28/8'25.

Ingvar Arnarson ræddi fundargerðina.

Almar Guðmundsson ræddi fundargerðina.

Ingvar Arnarson tók til máls að nýju og ræddi fundargerðina.

Almar Guðmundsson tók til máls að nýju og ræddi fundargerðina.

Björg Fenger ræddi fundargerðina.

Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi fundargerðina.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2508014F

05

Fundargerð velferðarráðs frá 22/8'25.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. Exit - leið úr afbrotum og 6.tl. búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2501538

06

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 25/8'25.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2502221

07

Fundargerð stjórnar Strætó bs frá 15/8'25.

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. leigu á rafvögnum, 2.tl. skipan fulltrúa Strætó í eignamat vegna Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf., 3.tl. skipan starfskjaranefndar, 4.tl. árshlutauppgjör janúar til júní 2025, 5.tl. forsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025, 6.tl. sölutölur og 7.tl. markaðsmál.

Guðfinnur Sigurvinsson ræddi fundargerðina.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2506043

08

Kosning fulltrúa í fastanefnd

Gerð tillaga um að Rakel Norðfjörð Vilhjálmsdóttir (B) verði kjörin aðalmaður í menningar- og safnanefnd í stað Urðar Bjargar Gísladóttur (B).

Tillagan er samþykkt samhljóða.