Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 2/9'25.

Málsnúmer 2508026F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

11. (963). fundur

Gunnar Valur Gíslason ræddi 2.tl. árshlutauppgjör Garðabæjar 30.06.2025 og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Árshlutauppgjör Garðabæjar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2025 endurspeglar sterka fjárhagslega stöðu bæjarsjóðs og rekstur í góðu jafnvægi. Rekstrarniðurstaða er jákvæð um 287 milljónir króna, grunnreksturinn eflist og sjóðstreymi bæjarsjóðs styrkist enn.
Þrátt fyrir miklar fjárfestingar í innviðum bæjarins á fyrri hluta ársins 2025 voru langtímalántökur hóflegar og skammtímaskuldir lækkuðu verulega á þessu sama tímabili.
Við bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggjum ríka áherslu á að tryggja öryggi, festu og skilvirkni í rekstri bæjarins. Traust og sterk fjárhagsstaða bæjarsjóðs er grundvöllur þess að Garðabær sé vel undir það búinn að byggja upp ný hverfi og mæta aukinni þjónustu vegna fjölgunar íbúa."

Fundargerðin sem er 7.tl. er samþykkt samhljóða.