Vetrarmýri, tillaga að breytingu á deiliskipulagi, leikvangur ofl.
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
12. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem hefur verið lagfærð í kjölfar athugasemda Skipulagsstofnunar. Skipulagsnefnd felur umhverfissviði að senda stofnuninni lagfærð gögn og undirbúa birtingu auglýsingar í B-deild stjórnartíðinda um gildistöku breytingarinnar.
Bæjarráð Garðabæjar
02
29. (2177). fundur
Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 14. ágúst 2025 varðandi erindi Skipulagsstofnunar dags. 24.júlí 2025 þar sem gerðar voru athugasemdir við eftirfarandi atriði í samþykktri tillögu að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar:
- ekki er unnt að fella út hluta deiliskipulagssvæðisins fyrr en að önnur áætlun tekur yfir á viðkomandi hluta.
- gera þarf betur grein fyrir breytingum á sérskilmálum einstakra lóða.
- gera þarf grein fyrir umhverfisáhrifum deiliskipulagsbreytingarinnar.
- gera þarf grein fyrir mögulegum áhrifum deiliskipulagsbreytingarinnar á hljóðvist.
Skipulagsnefnd beindi því til umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa að koma til móts við athugasemdir stofnunarinnar og leggja fram lagfærða tillögu í skipulagsnefnd.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
11. fundur
Lagt fram erindi Skipulagsstofnunar dags.24.júlí sl þar sem gerðar eru athugasemdir við eftirfarandi atriði í samþykktri tillögu að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar.
- ekki er unnt að fella út hluta deiliskipulagssvæðisins fyrr en að önnur áætlun tekur yfir á viðkomandi hluta.
- gera þarf betur grein fyrir breytingum á sérskilmálum einstakra lóða
- gera þarf grein fyrir umhverfisáhrifum deiliskipulagsbreytingarinnar.
- gera þarf grein fyrir mögulegum áhrifum deiliskipulagsbreytingarinnar á hljóðvist.
Skipulagsnefnd beinir því til umhverfissviðs og skipulagsráðgjafa að koma til móts við athugasemdir stofnunarinnar og leggja fram lagfærða tillögu í skipulagsnefnd.
Bæjarráð Garðabæjar
04
23. (2171). fundur
Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 19. júní 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar, ásamt tillögum að svörum og viðbrögðum við þeim athugasemdum og umsögnum sem bárust á auglýsingartíma.
Sem viðbrögð við þeim umsögnum sem bárust leggur skipulagnefnd til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni:
- Knattspyrnuleikvangur er færður til vesturs svo svæði fyrir áhorfendur verður bæði að austanverðu og vestanverðu. Að austanverðu verði lægri og minni stúka þ.e.ein hæð. Að vestanverðu lækkar stúku- og verslunarbygging frá auglýstri tillögu úr 4 hæðum í 3 hæðir. Við það minnkar heildarstærð stúkubygginga. Nýtingahlutfall minnkar til samræmis.
- Spennistöð er bætt við innan lóðar í suðausturhorni fjölnotahúss Miðgarðs.
- Heimild fyrir tveggja hæða kjallara er tekin út á lóðunum 15, 17, 19, 24-28, 32, 34 og 36 við Vetrarbraut. Við það lækkar heildarbyggingarmagn á lóðunum og nýtingarhlutfall í samræmi við það.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkti deiliskipulagsbreytinguna með ofangreindum breytingum í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar, ásamt tillögum að svörum og viðbrögðum við þeim athugasemdum og umsögnum sem bárust á auglýsingartíma.
Sem viðbrögð við þeim umsögnum sem bárust leggur skipulagnefnd til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni:
- Knattspyrnuleikvangur er færður til vesturs svo svæði fyrir áhorfendur verður bæði að austanverðu og vestanverðu. Að austanverðu verði lægri og minni stúka þ.e.ein hæð. Að vestanverðu lækkar stúku- og verslunarbygging frá auglýstri tillögu úr 4 hæðum í 3 hæðir. Við það minnkar heildarstærð stúkubygginga. Nýtingahlutfall minnkar til samræmis.
- Spennistöð er bætt við innan lóðar í suðausturhorni fjölnotahúss Miðgarðs.
- Heimild fyrir tveggja hæða kjallara er tekin út á lóðunum 15, 17, 19, 24-28, 32, 34 og 36 við Vetrarbraut. Við það lækkar heildarbyggingarmagn á lóðunum og nýtingarhlutfall í samræmi við það.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir deiliskipulagsbreytinguna með ofangreindum breytingum í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar að lokinni auglýsingu, ásamt þeim umsögnum, athugasemdum og ábendingum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
6. (958). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. mars 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum: A. Vetrarbraut 11 og 13 er gert að einni lóð Vetrarbraut 11-13. Byggingarreitum er breytt og starfsemin verður þannig að á 1. hæð verður verslun og þjónusta, 2.-5. hæð verður verslun og þjónusta í þeim hluta sem liggur meðfram Reykjanesbraut, vesturbyggingu, þó með möguleika á íbúðum á 5. hæð. Í þremur álmum austan vesturbyggingar verða íbúðir á 2.-5. hæð. B. Lóð Vetrarbrautar 15 er stækkuð að lóðarmörkum Vetrarbrautar 17 og byggingarreitir kjallara beggja lóða eru stækkaðir þannig að þeir mætast og gefa möguleika á samtengingu í kjallara. C. Byggingarreitum er breytt og lóðin stækkuð á Vetrarbraut 19. Starfseminni er breytt í atvinnu þ.e. að horft er til að byggja á lóðinni þjónustumiðstöð fyrir aldraða auk hjúkrunarheimilis. D. Knattspyrnuleikvangur er færður austar og stúkubyggingar sameinaðar í eina byggingu að vestanverðu. Byggingin verður fyrst og fremst fyrir verslun og þjónustu. Gerð er heimild fyrir bílakjallara undir stúkubyggingu. E. Byggingarreitir eru víkkaðir að garði en á móti er sett bundin byggingarlína að götu á lóðunum Vetrarbraut 6-12, 16-28 og 32-34. Hámarksstærðir breytast ekki. Ennfremur lagt fram minnisblað skipulagsráðgjafa um bílastæðakröfur deiliskipulags Vetrarmýrar. Skipulagsnefnd fól skipulagsráðgjafa og umhverfissviði að skoða hvort fjölga mætti bílastæðum ofanjarðar í eða í kringum syðsta hluta deiliskipulagssvæðisins. Skipulagsnefnd lagði til að tillagan yrði kynnt fyrir Ungmennafélaginu Stjörnunni. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar til auglýsingar í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
08
13. (2161). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. mars 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
A. Vetrarbraut 11 og 13 er gert að einni lóð Vetrarbraut 11-13. Byggingarreitum er breytt og starfsemin verður þannig að á 1. hæð verður verslun og þjónusta, 2.-5. hæð verður verslun og þjónusta í þeim hluta sem liggur meðfram Reykjanesbraut, vesturbyggingu, þó með möguleika á íbúðum á 5. hæð. Í þremur álmum austan vesturbyggingar verða íbúðir á 2.-5. hæð.
B. Lóð Vetrarbrautar 15 er stækkuð að lóðarmörkum Vetrarbrautar 17 og byggingarreitir kjallara beggja lóða eru stækkaðir þannig að þeir mætast og gefa möguleika á samtengingu í kjallara.
C. Byggingarreitum er breytt og lóðin stækkuð á Vetrarbraut 19. Starfseminni er breytt í atvinnu þ.e. að horft er til að byggja á lóðinni þjónustumiðstöð fyrir aldraða auk hjúkrunarheimilis.
D. Knattspyrnuleikvangur er færður austar og stúkubyggingar sameinaðar í eina byggingu að vestanverðu. Byggingin verður fyrst og fremst fyrir verslun og þjónustu. Gerð er heimild fyrir bílakjallara undir stúkubyggingu.
E. Byggingarreitir eru víkkaðir að garði en á móti er sett bundin byggingarlína að götu á lóðunum Vetrarbraut 6-12, 16-28 og 32-34. Hámarksstærðir breytast ekki.
Ennfremur lagt fram minnisblað skipulagsráðgjafa um bílastæðakröfur deiliskipulags Vetrarmýrar.
Skipulagsnefnd fól skipulagsráðgjafa og umhverfissviði að skoða hvort fjölga mætti bílastæðum ofanjarðar í eða í kringum syðsta hluta deiliskipulagssvæðisins.
Skipulagsnefnd lagði til að tillagan yrði kynnt fyrir Ungmennafélaginu Stjörnunni.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar til auglýsingar í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
6. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar. Sigurður Einarsson arkitekt og skipulagsráðgjafi hjá Batteríinu gerði grein fyrir tillögunni sem gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
A. Vetrarbraut 11 og 13 er gert að einni lóð Vetrarbraut 11-13. Byggingarreitum er breytt og starfsemin verður þannig að á 1. hæð verður verslun og þjónusta, 2.-5. hæð verður verslun og þjónusta í þeim hluta sem liggur meðfram Reykjanesbraut, vesturbyggingu, þó með möguleika á íbúðum á 5. hæð. Í þremur álmum austan vesturbyggingar verða íbúðir á 2.-5. hæð.
B. Lóð Vetrarbrautar 15 er stækkuð að lóðarmörkum Vetrarbrautar 17 og byggingarreitir kjallara beggja lóða eru stækkaðir þannig að þeir mætast og gefa möguleika á samtengingu í kjallara.
C. Byggingarreitum er breytt og lóðin stækkuð á Vetrarbraut 19. Starfseminni er breytt í atvinnu þ.e. að horft er til að byggja á lóðinni þjónustumiðstöð fyrir aldraða auk hjúkrunarheimilis.
D. Knattspyrnuleikvangur er færður austar og stúkubyggingar sameinaðar í eina byggingu að vestanverðu. Byggingin verður fyrst og fremst fyrir verslun og þjónustu. Gerð er heimild fyrir bílakjallara undir stúkubyggingu.
E. Byggingarreitir eru víkkaðir að garði en á móti er sett bundin byggingarlína að götu á lóðunum Vetrarbraut 6-12, 16-28 og 32-34. Hámarksstærðir breytast ekki.
Ennfremur lagt fram minnisblað skipulagsráðgjafa um bílastæðakröfur deiliskipulags Vetrarmýrar.
Skipulagsnefnd felur skipulagsráðgjafa og umhverfissviði að skoða hvort fjölga mætti bílastæðum ofanjarðar í eða í kringum syðsta hluta deiliskipulagssvæðisins.
Skipulagsnefnd leggur til að tillagan verði kynnt fyrir Ungmennafélaginu Stjörnunni.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar til auglýsingar í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
4. fundur
Sveinn Bjarki Þórarinsson arkitekt hjá Batteríinu kynnti tillögu að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar sem gerir ráð fyrir auknu rými fyrir verslun og þjónustu undir áhorfendastúkum leikvangs sem eflir kjarna Vetrarmýrar fyrir fjölbreytta starfsemi. Tillagan gerir einnig ráð fyrir starfsemi hjúkrunarheimilis í tengslum við íbúðir fyrir aldraða.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til áframhaldandi mótunar hjá skipulagsráðgjöfum og umhverfissviði.