9. fundur
9. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
26.05.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Kjartan Vilhjálmsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2406836
01
Miðbær, svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreyting.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðbæjar Garðabæjar sem vísað hefur verið til forkynningar. Útfærsla á vöruaðkomu að Garðatorgi 1 frá Hrísmóum, sem skipulagsnefnd óskaði eftir að yrði mótuð nánar, er nú hluti af tillögunni. Klara Sól Ágústsdóttir arkitekt hjá THG arkitektum gerði grein fyrir útfærslunni.
Skipulagsnefnd samþykkir útfærsluna og skal hún kynnt á almennum kynningarfundi sem verður haldinn á morgun, þriðjudaginn 27. maí.
Málsnúmer 1405080
02
Móar, endurskoðað deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Móa sem vísað hefur verið til forkynningar. Tillagan tekur nú mið af útfærslu á vöruaðkomu að Garðatorgi 1 frá Hrísmóum, sem skipulagsnefnd óskaði eftir að yrði mótuð nánar. Jóhanna Helgadóttir arkitekt hjá Nordic arkitektum gerði grein fyrir tillögunni.
Skipulagsnefnd samþykkir útfærsluna og skal hún kynnt á almennum kynningarfundi sem verður haldinn á morgun, þriðjudaginn 27. maí.
Málsnúmer 2410080
03
Hnoðraholt - Háholt - Aðalskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar, rammahluta Vífilsstaðalands, sem nær til háholts Hnoðraholts í annað sinn að lokinni forkynningu.
Ábendingar og umsagnir sem borist hafa við tillögu að deiliskipulagi sama svæðis lagðar fram. Þau gögn gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni óbreyttri til auglýsingar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún send Skipulagsstofnun til athugunar.
Málsnúmer 2505199
04
Gerðarkot 4 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu breytingar á lóðinni Gerðakot 4 á Álftanesi. Fyrirspurn vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
Málsnúmer 2505200
05
Víðiholt - Girðingar - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn raðhúseigenda í Víðiholti um útfærslu girðinga og skjólveggja á lóðum. Fyrirspurn vísað til skoðunar hjá umhverfisviði.
Málsnúmer 2410298
06
Lækjarfit, Langafit - breyting lóða
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem nær til lóðarinnar Lækjarfitjar 6 og Löngufitjar 5. Athugasemd barst frá eiganda Löngufitjar 5.
Lögð fram tillaga að breyttum lóðarmörkum sem hefur verið mótuð í samráði við eiganda Löngufitjar 5.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með breyttri útfærslu sem er viðbragð við innsendri athugasemd í samræmi við 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2501426
07
Skeiðarás 6 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagt fram minnisblað Ívars Pálssonar lögmanns.
Vísað til umhverfissviðs.
Málsnúmer 2505075
08
Aratún 20 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn til skipulagsnefndar þar sem óskað er eftir svari skipulagsnefndar um meðfylgjandi hugmynd að útfærslu stækkunar.
Flatarmál byggingar með viðbyggingu yrði undir þeirri heimild sem deiliskipulag veitir. Viðbygging á baklóð fer lítillega út fyrir byggingarreit.
Skipulagsnefnd telur að útfærsluhugmynd komi til greina en bendir á að samþykki meðeiganda raðhúslengjunnar þarf að liggja fyrir.
Málsnúmer 2409044
09
Mávanes 13 - Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsstjóri fór yfir stöðu máls vegna nausts, sem nær að hluta til út fyrir lóðarmörk.
Samtal við lóðareiganda hefur átt sér stað.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði
Málsnúmer 2505354
10
Teistunes 1 - byggingareitur - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um hugmyndir að stækkun íbúðarhússins að Teistunesi 1.
Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Málsnúmer 2502449
11
Vetrarmýri, tillaga að breytingu á deiliskipulagi, leikvangur ofl.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Vetrarmýrar að lokinni auglýsingu, ásamt þeim umsögnum, athugasemdum og ábendingum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
Málsnúmer 2502444
12
Urriðaholtsstræti 1-7 - Urriðaholt Norð.- 4.áf.
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts Norður 4.áfanga að lokinni auglýsingu, ásamt þeim athugasemdum og ábendingum sem borist hafa. Tillaga nær til lóðanna Urriðaholtsstræti 1, 3-5 og 7.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
Málsnúmer 2502185
13
Urriðaholt Norðurhluti 4.áfangi, deiliskipulagsbreyting, Flóttamannavegur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluti 4 að lokinni auglýsingu, ásamt þeim athugasemdum og ábendingum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
Málsnúmer 2502186
14
Urriðaholt Austurhluti, deiliskipulagsbreyting, Flóttamannavegur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts austurhluta að lokinni auglýsingu, ásamt þeim athugasemdum og ábendingum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
Málsnúmer 2502187
15
Deiliskipulag útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum, deiliskipulagsbreyting Flóttamannavegur
Lögð fram tillaga að breytingu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum að lokinni auglýsingu, ásamt þeim athugasemdum og ábendingum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.