Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar - Deiliskipulag útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum, deiliskipulagsbreyting Flóttamannavegur

Málsnúmer 2502187

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

23. (2171). fundur

Bæjarráð staðfestir, skv. heimild í 5.mgr. 35.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 19. júní 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum, ásamt tillögum að svörum og viðbrögðum við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma.
Í deiliskipulaginu mun koma fram það sjónarmið Garðabæjar að æskilegt sé að hámarkshraði á Flóttamannavegi á þessum kafla sé ekki hærri en 50 km/klst í ljósi þess að hann liggur um þéttbýli með byggð á aðra hönd og útivistarsvæði/golfvöll á hina. Miðað við þær aðstæður er ekki ráðlagt að vera með hærri umferðarhraða en 50 km/klst.
Mörk fólkvanga verða einnig sett inn á deiliskipulagsuppdrátt.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkti deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

10. fundur


Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum, ásamt tillögum að svörum og viðbrögðum við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingartíma.
Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur hjá Eflu gerði grein fyrir tillögunni og athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Í deiliskipulaginu mun koma fram það sjónarmið Garðabæjar að æskilegt sé að hámarkshraði á Flóttamannavegi á þessum kafla sé ekki hærri en 50 km/klst í ljósi þess að hann liggur um þéttbýli með byggð á aðra hönd og útivistarsvæði/golfvöll á hina. Miðað við þær aðstæður er ekki ráðlagt að vera með hærri umferðarhraða en 50 km/klst.
Mörk fólkvanga verða einnig sett inn á deiliskipulagsuppdrátt.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

9. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu að deiliskipulagi útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum að lokinni auglýsingu, ásamt þeim athugasemdum og ábendingum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

3. (955). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. febrúar 2025 varðandi breytingu deiliskipulags útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum, sem gerir ráð fyrir breyttri legu og gatnamótum Flóttamannavegar og aðkomuvegar að golfvallarsvæði. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Forkynningar- og lýsingarstig fellt niður þar sem að allar meginforsendur eru til staðar í aðalskipulagi sbr. 2. og 3. mgr. 40. gr. sömu laga.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

3. (955). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

06

7. (2155). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. febrúar 2025 varðandi breytingu deiliskipulags útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum, sem gerir ráð fyrir breyttri legu og gatnamótum Flóttamannavegar og aðkomuvegar að golfvallarsvæði.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forkynningar- og lýsingarstig fellt niður þar sem að allar meginforsendur eru til staðar í aðalskipulagi sbr. 2. og 3. mgr. 40. gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

2. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags útivistarsvæðis í Urriðavatnsdölum, sem gerir ráð fyrir breyttri legu og gatnamótum Flóttamannavegar og aðkomuvegar að golfvallarsvæði.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Forkynningar- og lýsingarstig fellt niður þar sem að allar meginforsendur eru til staðar í aðalskipulagi sbr. 2. og 3. mgr. 40. gr. sömu laga.