Beint í efni

Mávanes 13 - Umsókn um byggingarleyfi.

Málsnúmer 2409044

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

24. (2219). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Boga Jónssyni, kt. 040458-6389 leyfi fyrir framkvæmdum á lóðinni Mávanesi 13. Um er að ræða byggingu bátaskýlis, tæknirýmis og sólstofu ásamt framkvæmdum á lóð.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

9. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

03

8. fundur

Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum að íbúðarhúsinu að Mávanesi 13.
Útfærslu hefur verið breytt frá auglýstri tillögu að breytingu deiliskipulags og er bátaskýli nú staðsett innan byggingarreits með tengingu við íbúðarhúsið.
Þar sem að tillagan gerir nú ráð fyrir viðbyggingu sem er innan byggingarreits og tengd íbúðarhúsinu með beinum hætti telst tillagan í samræmi við deiliskipulag Arnarness.
Tæknirými nær lítillega út fyrir byggingarreit að norðanverðu samkvæmt uppdrættinum. Tillaga að deiliskipulagsbreytingu gerði ráð fyrir breytingu byggingarreits hvað þá viðbyggingu varðar og voru ekki gerðar athugasemdir við þann þátt málsins.
Nú hefur tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem gerði ráð fyrir breytingu á lögu lóðar og staðsetningu bátaskýlis að hluta til utan lóðarmarka verið dregin til baka.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt sem er í samræmi við framlagða aðaluppdrætti.
Skipulagsstjóri ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað varðar tæknirými sem nær lítillega út fyrir byggingarreit.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

17. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem nær til lóðarinnar Mávaness 13 að lokinni auglýsingu. Athugasemdir sem borist hafa lagðar fram.
Tillögu og athugasemdum vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

13. (965). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 18. september 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Arnarness sem nær til lóðarinnar Mávanes 13. Tillagan hefur það markmið að skapa grundvöll fyrir byggingarleyfi fyrir bátaskýli sem hefur verið reist og nær út fyrir lóðarmörk. Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðarmörk að vestanverðu breytast þannig að byggingarreitur bátaskýlis verði innan lóðar. Stærð lóðar er óbreytt. Byggingareitur íbúðarhúss skerðist sem nemur byggingarreit bátaskýlis. Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vekja skal athygli á auglýsingunni með því að senda dreifibréf í öll hús við Mávanes.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

13. (965). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

13. (965). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

08

34. (2182). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 18. september 2025 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Arnarness sem nær til lóðarinnar Mávanes 13. Tillagan hefur það markmið að skapa grundvöll fyrir byggingarleyfi fyrir bátaskýli sem hefur verið reist og nær út fyrir lóðarmörk.
Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðarmörk að vestanverðu breytast þannig að byggingarreitur bátaskýlis verði innan lóðar. Stærð lóðar er óbreytt. Byggingareitur íbúðarhúss skerðist sem nemur byggingarreit bátaskýlis.
Skipulagsnefnd vísaði tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vekja skal athygli á auglýsingunni með því að senda dreifibréf í öll hús við Mávanes.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

13. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem nær til lóðarinnar Mávanes 13. Tillagan hefur það markmið að skapa grundvöll fyrir byggingarleyfi fyrir bátaskýli sem hefur verið reist og nær út fyrir lóðarmörk.
Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðarmörk að vestanverðu breytast þannig að byggingarreitur bátaskýlis verði innan lóðar. Stærð lóðar er óbreytt. Byggingareitur íbúðarhúss skerðist sem nemur byggingarreit bátaskýlis.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vekja skal athygli á auglýsingunni með því að senda dreifibréf í öll hús við Mávanes.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

9. fundur

Skipulagsstjóri fór yfir stöðu máls vegna nausts, sem nær að hluta til út fyrir lóðarmörk.
Samtal við lóðareiganda hefur átt sér stað.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

14. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á einbýlishúsi og lóð að Mávanesi 13.
Málið hefur verið til skoðunar hjá umhverfissviði.
Skipulagsnefnd telur að bygging bátaskýlis sem nær út fyrir lóðarmörk sé óásættanleg. Skipulagsnefnd óskar eftir minnisblaði byggingarfulltrúa um möguleg úrræði og viðurlög vegna óleyfisframkvæmdarinnar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

11. fundur

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Hluti þess sem sótt er leyfi fyrir hefur verið framkvæmt í óleyfi m.a. 19,2 m2 bátaskýli sem nær út fyrir lóðarmörk að fjöru. Á afstöðumynd er sýndur grjótgarður utan lóðarmarka sem ætlaður er til landslagsmótunar.
Umsókn vísað til skoðunar hjá Umhverfissviði.