13. fundur
13. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í Búrfelli í Sveinatungu, Garðatorgi
18.09.2025
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigþrúður Ármann - varamaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - varamaður
- Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 2406836
01
Miðbær, svæði I og II, Garðatorg 1, deiliskipulagsbreyting.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu á mótun tillagna að breytingu deiliskipulags Miðbæjar Garðabæjar.
Málsnúmer 1405080
02
Móar, endurskoðað deiliskipulag
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu á mótun tillögu að deiliskipulagi Móa og tengslum þess við tillögu að breytingu deiliskipulags Miðbæjar Garðabæjar.
Málsnúmer 2504060
03
Smalaholt, óveruleg breyting Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar, rammahluta Vífilsstaðalands sem gerir ráð fyrir breytingu á afmörkun landnotkunarreitsins 4.10 Íþ til samræmis við tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts sem liggur fyrir þessum skipulagsnefndarfundi til afgreiðslu. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Senda skal breytinguna til afgreiðslu hjá Skipulagsstofnun.
Málsnúmer 2202488
04
Deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarskógur.
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts ásamt umsögnum og athugasemdum.
Lögð fram greinargerð deiliskipulagsráðgjafa með tillögu að svörum við athugasemdum. Jafnframt er lögð fram skýrsla Eflu um áhrif tillögunnar á umferð aðliggjandi svæða. Skipulagsnefnd ítrekar að í svörum við athugasemdum er tekið fram að tenging Vorbrautar við Öldusali muni aðeins koma þegar þörf er á.
Eftirfarandi atriðum er breytt í greinargerð eftir auglýsingu tillögunnar m.t.t. umsagna og ábendinga:
Kafli 3.2. Bætt við að leita skuli samráðs við Náttúruverndarstofnun vegna náttúrugarðs.
Kafli 3.4. Bætt við skilmála að samráð skal haft við viðeigandi veituaðila vegna veitumála.
Kafli 3.4.1 Bætt við skilmálum um framkvæmdir innan helgunarsvæðis háspennulínu.
Eftirfarandi atriðum er breytt á uppdráttum deiliskipulagsins eftir auglýsingu tillögunnar m.t.t. umsagna og ábendinga:
Hnoðraholtslína: helgunarsvæði loftlínu og jarðstrengs sett inn á deiliskipulagsuppdrátt og skýringaruppdrætti. Golfbrautir á skýringaruppdrætti sýndar með tilliti til Hnoðraholtslínu en frekari hönnun í samráði við Landsnet, sjá greinargerð.
Flóttamannavegur: 60 m helgunarsvæði stofnvegar skv. flokkun Vegagerðarinnar sett inn á uppdrætti.
Friðlýsingarmörk látin ná að græna stígnum við Vífilsstaðavatn.
Útivistarskógur í Smalaholti: Bílastæðum norðan Elliðavatnsvegar fjölgað um 10 stæði
Lega útvistarstíga lagfærð á stuttum köflum til að fækka þverunum þeirra yfir reiðstíg í Smalaholti.
Deiliskipulagið kallar á breytingar á aðliggjandi deiliskipulagsáætlunum; Hnoðraholt norður, Vetrarmýri-Miðsvæði og Heiðmörk og Sandahlíð, sem liggja fyrir afgreiðslu á fundi þessum og hafa verið samþykktar í skipulagsnefnd sem óverulegar breytingar og munu hljóta staðfestingu um leið og deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts.
Ennfremur hefur óveruleg breyting rammahluta aðalskipulags Garðarbæjar 2016-2030 verið samþykkt þar sem mörk milli landnotkunarflekanna 4.10 Íþ og opins svæðis í Smalaholti breytast til aðlögunar að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts.
Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts með framangreindum breytingum í samræmi við 41.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Málsnúmer 2509304
05
Heiðmörk og Sandahlíð, óveruleg dsk breyting vegna skipulagsmarka.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar sem gerir ráð fyrir því að afmörkun deiliskipulagssvæðis breytist til aðlögunar að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Heiðmerkur og Sandahlíðar í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynning er felld niður þar sem að tillagan er í samræmi við tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts. Tillagan skal hljóta staðfestingu um leið og tillaga að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts.
Málsnúmer 2509260
06
Langafit 26 - Breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Hraunsholts eystra sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir bílageymslu norðan við íbúðarhúsið sem stendur á lóðinni. Byggingarreitur er í samræmi við samþykkt byggingarleyfi fyrir bílageymslu árið 1981. Bílgeymslan hefur ekki verið byggð samkvæmt samþykktum teikningum. Í gildandi deiliskipulagi Hraunsholts eystra er ekki gert ráð fyrir byggingarreit á lóðinni fyrir bílageymslu.
Skipulagsnefnd vísar umsókninni til umsagnar hjá deiliskipulagshöfundi.
Málsnúmer 2507428
07
Ásgarður, dsk breyting, lýsing æfingavallar.
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Ásgarðs að lokinni grenndarkynningu ásamt þeim athugasemdum sem borist hafa.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
Málsnúmer 2506190
08
Kjarrprýði 1 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa og hönnuðar um tvær mismunandi útfærslur á einbýlishúsi.
Skipulagsnefnd telur að útfærsla með stölluðu þaki falli betur að ákvæðum deiliskipulagsins.
Málsnúmer 2409044
09
Mávanes 13 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Arnarness sem nær til lóðarinnar Mávanes 13. Tillagan hefur það markmið að skapa grundvöll fyrir byggingarleyfi fyrir bátaskýli sem hefur verið reist og nær út fyrir lóðarmörk.
Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðarmörk að vestanverðu breytast þannig að byggingarreitur bátaskýlis verði innan lóðar. Stærð lóðar er óbreytt. Byggingareitur íbúðarhúss skerðist sem nemur byggingarreit bátaskýlis.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vekja skal athygli á auglýsingunni með því að senda dreifibréf í öll hús við Mávanes.
Málsnúmer 2505354
10
Teistunes 1 - byggingareitur - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu stækkunar einbýlishússins að Teistunesi 1.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
Málsnúmer 2410080
11
Hnoðraholt - Háholt - Aðalskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til háholts Hnoðraholts ásamt erindi Skipulagsstofnunar vegna tillögunnar þar sem að fram kemur að stofnunin geri ekki athugasemd við auglýsingu breytingartillögunnar.
Auglýsa skal tillöguna samhliða tillögu að deiliskipulagi að háholti Hnoðraholts.
Málsnúmer 2409103
12
Hnoðraholt-háholt, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts.
Tillagan gerir alls ráð fyrir 77 íbúðareiningum, þar af 26 einbýlishúsum, 41 raðhúsaeiningu, 2 parhúsaeiningum og 8 fjölbýliseiningum, ýmist á einni eða tveimur hæðum.
Auk þess er gert ráð fyrir lóð fyrir leikskóla og búsetukjarna.
Megináhersla deiliskipulagsins er að skapa lágreista og uppbrotna íbúðabyggð sem fellur að landinu á háholti og niður hlíðarnar í suðurhluta Hnoðraholts. Gert er ráð fyrir blöndu
einbýlishúsa og raðhúsa, einnar og tveggja hæða, sem raðast í sveigðar byggðalínur í takt við hæðarlínur og landslag.
Græn svæði og stígar tengja byggðina innbyrðis og við nærliggjandi hverfi. Áhersla er lögð á að byggðin styðji við fjölbreytni í búsetu og aðgengi að náttúru og útivist. Mikilvægt er að tryggja góða tengingu við Vetrarbraut, stíga yfir háholtið og framtíðaruppbyggingu aðliggjandi svæða í Vífilsstaðalandi.
Deiliskipulagið tekur mið af sjálfbærum lausnum í innviðum, þar með talið blágæna meðferð ofanvatns, vistvænt efnisval og aðgengi fyrir gangandi og hjólandi.
Skipulagsnefnd samþykkir að vísa tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Boða skal til kynningarfundar á meðan á auglýsingu tillögunnar stendur.
Málsnúmer 2509095
13
Hnoðraholt N - Dsk.br. leikskóla- og þjónustulóð
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts Norður sem gerir ráð fyrir því að lóðir fyrir leikskóla og búsetukjarna eru felldar út enda er gert ráð fyrir sambærilegum lóðum í tillögu að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts og tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar sem nær til háholtsins.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal auglýsa hana samhliða tillögu að deiliskipulagi háholts Hnoðraholts og tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til háholts Hnoðraholts.
Málsnúmer 2509269
14
Tónlistarskóli - Kirkjulundur - dsk br.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Miðbæjar sem nær til lóðar tónlistarskóla við Kirkjulund.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vekja skal athygli lóðarhafa við Kirkjulund og Hofslund á auglýsingunni með dreifibréfi.
Málsnúmer 2507143
15
Kópavogsbær - ask.br. og dsk.br Vatnsendahlíð, Vatnsvík og Kjóavellir - Umsögn
Lagðar fram tillögur Kópavogsbæjar að samráðsáætlun og skipulagslýsingu vegna skipulagsbreytinga og nýrra áætlana í Vatnsendahlíð, Vatnsvík og Kjóavöllum.
Formaður skipulagsnefndar og skipulagsstjóri gerðu grein fyrir fundi með bæjarskipulagi Kópavogs þar sem fyrirhuguð vinna við skipulagsbreytingarnar voru til umræðu.
Í verkefnislýsingu kemur fram að skoða eigi möguleika á því að staðsetja þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar innan deiliskipulagssvæðis hesthúsabyggðar á Kjóavöllum en svæðið er auk þess skilgreint sem íþróttasvæði (Íþ 7) í Aðalskipulagi Kópavogs. Einnig kemur þar fram að fram skuli fara þarfagreining varðandi þær forsendur sem þurfa að vera til staðar fyrir nýja þjónustumiðstöð og lagt verður mat á hvort að Kjóavellir séu ákjósanleg staðsetning fyrir þjónustumiðstöð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar minnir á bókun nefndarinnar frá 19. mars árið 2015 er varðar hugmyndir um staðsetningu áhaldahúss (þjónustumiðstöðvar) innan deiliskipulagssvæðis hesthúsabyggðar á Kjóavöllum þar sem hugmyndinni var hafnað. Sú bókun var staðfest í bæjarstjórn þann 16.apríl 2015. Til grundvallar þeirri bókun var lagt fram minnisblað deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd telur nauðsynlegt á þessu stigi að skoða gaumgæfilega þær forsendur sem lagðar voru til grundvallar þegar metnaðarfullt deiliskipulag hesthúsa og keppnisleikvangs á Kjóavöllum var í mótun. Hverfi hesthúsalóða innan Garðabæjar er enn í uppbyggingu og meta þarf áhrif breytingatillagnanna á það sem og á miðsvæði sameiginlegs hesthúsasvæðis t.d. hvað varðar framtíðarmöguleika uppbyggingu byggðarinnar sem og aðkomu svæðisins.
Nefndin leggur áherslu á að gott samráð sé haft við Hestamannafélagið Sprett og eigendur hesthúsa á svæðinu.
Skipulagsnefnd minnir á að í skipulagslýsingu og samráðsáætlun skal gera ráð fyrir Garðabæ sem samráðsaðila en ekki eingöngu umsagnaraðila enda um sameiginlegt deiliskipulag að ræða.
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir á þessu stigi ekki frekari athugasemdir við framlagða verkefnislýsingu og samráðsáætlun en áskilur sér allan rétt til þess að gera athugasemdir á síðari stigum ferlisins.
Málsnúmer 2504075
16
Breyting á Aðalskipulagi Hafnarfjarðar 2013 - 2025 vegna breyttrar landnotkunar Hrauns vestur, nr. 0723/2024
Lilja Grétarsdóttir skipulagsfulltrúi Hafnarfjarðar gerði grein fyrir tillögum að fyrirhuguðum skipulagsbreytingum á Hraunum vestur.
Skipulagsnefnd Garðabæjar hefur óskað eftir umsagnarfresti til og með 10. október. Vísað til frekari skoðunar hjá umhverfissviði.