Afgreiðsla skipulagsnefndar - Kópavogsbær - ask.br. og dsk.br Vatnsendahlíð, Vatnsvík og Kjóavellir - Umsögn
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
35. (2183). fundur
Lögð fram afgreiðsla skipulagsnefndar vegna tillagna Kópavogsbæjar að samráðsáætlun og skipulagslýsingu vegna skipulagsbreytinga og nýrra áætlana í Vatnsendahlíð, Vatnsvík og Kjóavöllum.
Á fundi skipulagsnefndar 18. september 2025 var gerð grein fyrir fundi formanns skipulagsnefndar og skipulagsstjóra með bæjarskipulagi Kópavogs þar sem fyrirhuguð vinna við skipulagsbreytingarnar var til umræðu.
Í verkefnislýsingu kemur fram að skoða eigi möguleika á því að staðsetja þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar innan deiliskipulagssvæðis hesthúsabyggðar á Kjóavöllum en svæðið er auk þess skilgreint sem íþróttasvæði (Íþ 7) í Aðalskipulagi Kópavogs. Einnig kemur þar fram að fram skuli fara þarfagreining varðandi þær forsendur sem þurfa að vera til staðar fyrir nýja þjónustumiðstöð og lagt verður mat á hvort að Kjóavellir séu ákjósanleg staðsetning fyrir þjónustumiðstöð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar minnti á bókun nefndarinnar frá 19. mars árið 2015 varðandi hugmyndir um staðsetningu áhaldahúss (þjónustumiðstöðvar) innan deiliskipulagssvæðis hesthúsabyggðar á Kjóavöllum þar sem hugmyndinni var hafnað. Sú bókun var staðfest í bæjarstjórn þann 16.apríl 2015. Til grundvallar þeirri bókun var lagt fram minnisblað deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd telur nauðsynlegt á þessu stigi að skoða gaumgæfilega þær forsendur sem lagðar voru til grundvallar þegar metnaðarfullt deiliskipulag hesthúsa og keppnisleikvangs á Kjóavöllum var í mótun. Hverfi hesthúsalóða innan Garðabæjar er enn í uppbyggingu og meta þarf áhrif breytingatillagnanna á það sem og á miðsvæði sameiginlegs hesthúsasvæðis t.d. hvað varðar framtíðarmöguleika uppbyggingu byggðarinnar sem og aðkomu svæðisins.
Nefndin leggur áherslu á að gott samráð sé haft við Hestamannafélagið Sprett og eigendur hesthúsa á svæðinu.
Skipulagsnefnd minnti á að í skipulagslýsingu og samráðsáætlun skuli gera ráð fyrir Garðabæ sem samráðsaðila en ekki eingöngu umsagnaraðila enda um sameiginlegt deiliskipulag að ræða.
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir á þessu stigi ekki frekari athugasemdir við framlagða verkefnislýsingu og samráðsáætlun en áskilur sér allan rétt til þess að gera athugasemdir á síðari stigum ferlisins.
Bæjarráð áréttar framangreind sjónarmið sem fram komu í afgreiðslu skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
13. fundur
Lagðar fram tillögur Kópavogsbæjar að samráðsáætlun og skipulagslýsingu vegna skipulagsbreytinga og nýrra áætlana í Vatnsendahlíð, Vatnsvík og Kjóavöllum.
Formaður skipulagsnefndar og skipulagsstjóri gerðu grein fyrir fundi með bæjarskipulagi Kópavogs þar sem fyrirhuguð vinna við skipulagsbreytingarnar voru til umræðu.
Í verkefnislýsingu kemur fram að skoða eigi möguleika á því að staðsetja þjónustumiðstöð Kópavogsbæjar innan deiliskipulagssvæðis hesthúsabyggðar á Kjóavöllum en svæðið er auk þess skilgreint sem íþróttasvæði (Íþ 7) í Aðalskipulagi Kópavogs. Einnig kemur þar fram að fram skuli fara þarfagreining varðandi þær forsendur sem þurfa að vera til staðar fyrir nýja þjónustumiðstöð og lagt verður mat á hvort að Kjóavellir séu ákjósanleg staðsetning fyrir þjónustumiðstöð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar minnir á bókun nefndarinnar frá 19. mars árið 2015 er varðar hugmyndir um staðsetningu áhaldahúss (þjónustumiðstöðvar) innan deiliskipulagssvæðis hesthúsabyggðar á Kjóavöllum þar sem hugmyndinni var hafnað. Sú bókun var staðfest í bæjarstjórn þann 16.apríl 2015. Til grundvallar þeirri bókun var lagt fram minnisblað deiliskipulagshöfundar.
Skipulagsnefnd telur nauðsynlegt á þessu stigi að skoða gaumgæfilega þær forsendur sem lagðar voru til grundvallar þegar metnaðarfullt deiliskipulag hesthúsa og keppnisleikvangs á Kjóavöllum var í mótun. Hverfi hesthúsalóða innan Garðabæjar er enn í uppbyggingu og meta þarf áhrif breytingatillagnanna á það sem og á miðsvæði sameiginlegs hesthúsasvæðis t.d. hvað varðar framtíðarmöguleika uppbyggingu byggðarinnar sem og aðkomu svæðisins.
Nefndin leggur áherslu á að gott samráð sé haft við Hestamannafélagið Sprett og eigendur hesthúsa á svæðinu.
Skipulagsnefnd minnir á að í skipulagslýsingu og samráðsáætlun skal gera ráð fyrir Garðabæ sem samráðsaðila en ekki eingöngu umsagnaraðila enda um sameiginlegt deiliskipulag að ræða.
Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir á þessu stigi ekki frekari athugasemdir við framlagða verkefnislýsingu og samráðsáætlun en áskilur sér allan rétt til þess að gera athugasemdir á síðari stigum ferlisins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
12. fundur
Lögð fram skipulagslýsing og samráðsáætlun Kópavogsbæjar vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga í Vatnsendahlíð og Vatnsvík við Elliðavatn. Unnið verður að aðalskipulagsbreytingum, deiliskipulagsbreytingum og nýjum deiliskipulagsáætlunum.
Vísað til frekari skoðunar hjá umhverfissviði. Skipulagsnefnd óskar eftir lengri frest til að skila inn umsögn um framlagða lýsingu og samráðsáætlun. Einnig er óskað eftir samtali við bæjarskipulags Kópavogs um málið.